Upp undir kvótaþakinu 22. nóvember 2004 00:01
Tillaga um samruna HB Granda, Tanga og Svans RE-45 verður lögð fyrir stjórnir félaganna í dag. HB Grandi er fyrir sameiningu með mestan kvóta allra sjávarútvegsfyrirtækja á landinu. Eftir sameiningu verður fyrirtækið með 31 þúsund þorskígildistonna kvóta innan íslenskrar lögsögu sem er níu prósent af úthlutuðum kvóta. Sé úthafskvótinn tekinn með er kvótinn 52 þúsund tonn eða tólf prósent af heildarkvótanum. Kristján Þ. Davíðsson, aðstoðarforstjóri HB Granda, segir Tanga liggja vel við síldar- og kolmunnaveiðum, auk þess sem bræðslur fyrirtækisins eru nær miðum á fyrrihluta loðnuvertíðar. Tangi hefur fryst síld og loðnu á Vopnafirði auk mjölframleiðslu. "Síldarfrysting hefur verið í gangi hjá Tanga með miklum ágætum í haust, meðal annars með afla skipa HB Granda," segir Kristján. "Meðan þeir Tangamenn hafa verið í þessu hafa þeir átt bágt með að manna bolfisksvinnsluna. Það hefur þýtt að þeir hafa látið okkur hafa þorskinn til vinnslu á Akranesi." Kristján segir þetta samstarf hafa gengið vel og því sé sameining rökrétt framhald af þessari samvinnu. Við sameininguna er HB Grandi kominn þétt upp að kvótaþakinu. Kristján vill engu spá um hvort eða hvenær kvótaþakinu verði lyft. "Við höfum í sjálfu sér nóg að gera við að vinna úr þessari sameiningu sem við gerum ráð fyrir að verði. Það verður kappnóg að ná fram samlegðaráhrifum og vinna úr hagræðingunni."
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira