The Shins á Airwaves 13. júní 2004 00:01
Erlendu sveitirnar The Shins, Radio 4, Keane, The Stills, Kid Koala og Magnet hafa allar tilkynnt þátttöku sína á Iceland Airwaves-tónleikahátíðinni sem haldin verður í sjötta sinn dagana 20.-24. október. Búist er við því að um tvær til fjórar erlendar sveitir bætist við. Ekki er óhugsandi að um stór nöfn verði þar að ræða. Radio 4 kemur frá New York og er hluti af elektróclash-stefnunni nýju sem blandar saman áhrifum sveita á borð við The Clash við lágstemmda raftónlist. The Stills koma frá Kanada og leika nýbylgjurokk sem svipar til New Order, Coldplay og The Cure. Breska sveitin Keane gaf nýverið út frumraun sína og þykir með efnilegri sveitum í heimalandinu. Kid Koala býður gestum svo upp á kanadískt hiphop sem hann sýður saman á þrjá plötuspilara. Magnet er frá Noregi og leikur ljúft rokk, sem smellpassar við íslenska skammdegið. The Shins er svo rúsínan í pylsuendanum. Glaðleg nýbylgja frá Bandaríkjunum sem hefur heillað tónlistaráhugamenn um allan heim. Þegar er búið að bóka fjölda íslenskra sveita en reiknað er með að pláss sé fyrir um 20 til viðbótar. Þeir flytjendur sem þegar hafa staðfest þátttöku sína eru Brain Police, Ghostigital, Eivör Pálsdóttir, Jagúar, Maus, Dikta, Skytturnar, Botnleðja, Singapore Sling, Trabant, Tenderfoot, Vinyl, Manhattan, O.N.E, Nilfisk, Lára, Mugison, Hudson Wayne, Úlpa, Kimono, Mínus, Leaves, Jan Mayen, Solid I.V., Ensími, Ske og 200.000 naglbítar. Eins og í fyrra verður hátíðin eingöngu haldin í miðborginni. Það fyrirkomulag þótti henta sérstaklega vel bæði fyrir tónlistarfólkið og gesti.
Mest lesið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Lífið Rúrik í næstvinsælustu Netflix mynd í heimi Bíó og sjónvarp Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Lífið Offset skotinn við spilavíti í Flórída Lífið Ráðherrabarn komið í heiminn Lífið Furðubandið sem tryllti netið Lífið Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur Lífið Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Lífið „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Lífið Allir komust lifandi út – nema Beethoven Gagnrýni Fleiri fréttir Ráðherrabarn komið í heiminn Furðubandið sem tryllti netið Móðir drengs í ofbeldissambandi opnar sig Offset skotinn við spilavíti í Flórída „Ekki óttast mistök, en vertu skíthrædd við eftirsjá“ Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Stjörnulífið: „Sannleikurinn er sexí“ Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi Ákváðu að gifta sig strax þegar ljóst var að tíminn væri naumur „Við erum öll nóg“ „Sjálfsvinna er ævistarf“ „Þetta var morðingi frænda míns, bara alvöru morðingi“ „Þetta gekk eins og í lygasögu“ „Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ „Ég ræð ferðinni“ Jökull og Telma hvort í sína áttina „Þessi Barbie-dúkka horfir ekki á neitt nema spegilinn“ „Fegurð er miklu meira en bara útlit“ Stórum hluta kærunnar vísað frá Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Birnir á lag ársins Myndaveisla: Hundar og kettir velkomnir síðan árið 2017 „Enginn skömm að því að leita sér hjálpar“ Logi Bergmann spyr fjölmiðlamenn spjörunum úr „Ef þú ert að fara í gegnum helvíti haltu bara áfram“ Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Hvað veistu um… Óskarsverðlaunin? Bubbi, kílómetragjaldið og svikin um boltaland fyrir fullorðna Notaði allar líflínurnar í byrjun þáttarins Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Sjá meira