Lífið

Ulrich enn á sjúkrahúsi

Lars Ulrich, trommari væntanlegra Íslandsvina í Metallica, er enn á sjúkrahúsi í Þýskalandi eftir að hafa veikst skyndilega á leið frá Portúgal til Englands þar sem rokksveitin átti að halda tónleika. Ekki er vitað hvað amar að Ulrich og óvíst er hvenær hann muni spila næst með sveitinni á tónleikaferð hennar um Evrópu. Eins og áður hefur komið fram hljópu þeir Dave Lombardo, trommuleikari Slayer, Joey Jordison, trommari Slipknot, og tæknilegur aðstoðarmaður Ulrich í skarðið fyrir hann á tónleikunum á Englandi.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.