Innlent

Slasast verr í jeppum

Meiri líkur eru á að fólk slasist illa í bílslysum aki það jeppa fremur en fólksbíl. Þetta er niðurstaða rannsóknar sem íslenskur sérfræðingur gerði. Hann segir breytta jeppa oft stöðugri ökutæki en óbreytta. Guðmundur Freyr Úlfarsson er doktor í umferðarverkfræði og hefur meðal annars rannsakað áhrifaþætti meiðsla í umferðarslysum. Niðurstöður hans koma ugglaust mörgum á óvart. Þannig koma jeppar mun verr út en aðrir bílar í slysum þar sem ekki verður árekstur, eins og þegar keyrt er út af, keyrt í skurð eða keyrt á staur. Guðmundur segir það hafa komið sér mest á óvart að meira en 100% líkur séu á dauðsfalli hjá ökumanni jeppa en fólksbíls ef bíll fer út af vegi. Það sé því erfitt að svara því hvort bílstjórar stórra bíla séu öruggari en aðrir. Það eigi einungis við þegar jeppi ekur á mun minni bíl. Lendi jeppi og fólksbíll í árekstri eru einmitt líkur á að ökumaður fólksbílsins slasist mun meira. Guðmundur segir að ökumenn jeppa verði að hafa hugfast að þeir láta öðruvísi að stjórn en venjulegir fólksbílar. Léttara sé að velta jeppunum, en þyngdarpunktur í breyttum jeppum sé þó oft stöðugri en í óbreyttum jeppum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×