Innlent

Spassky býður aðstoð sína

Stuðningsnefnd Bobby Fischers hér á landi hefur borist kærar kveðjur og þakkir frá Boris Spassky, fyrrverandi heimsmeistara í skák, vegna ákvörðunar íslenskra stjórnvalda að veita Fischer dvalarleyfi hér á landi. Í tölvupóstinum sem Spassky sendi í fyrrakvöld segir að á meðan allur skákheimurinn hafi staðið þögull og huglaus hjá hafi íslenska þjóðin leikið sjálfsagðan og djarfan leik til hjálpar Fischer. Spassky býður jafnframt fram aðstoð sína í málinu ef á þurfi að halda og kveðst, með mikilli ánægju, ganga til liðs við hina djörfu íslensku þjóð. Að lokum óskar hann Íslendingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Í póstinum, sem stílaður er á Einar S. Einarsson í stuðningsnefnd Fischers, segir orðrétt: Dear Einar,Thank you very much for very good news. Now when the whole chess world is cowardly silent, Icelandic people made a natural and brave move to help Bobby. Congratulations. And my applause. If you need my assistance or help, please let me know. I will join with great pleasure the group of brave Icelandic people. I take the opportunity wish you all Merry Christmas and a Happy new Year.Boris Spassky


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×