Barist um sætin í Íslandsbanka 28. október 2004 00:01
Níu framboð eru um sjö sæti í bankaráði Íslandsbanka sem kosið verður um á hluthafafundi 3. nóvember næstkomandi. Hópur hluthafa sem í eru bankaráðsmenninrnir Karl Wernersson, Einar Sveinsson og Jón Snorrason telur sig hafa sterka stöðu og eigi fyrir fimm mönnum í bankaráðið. Auk þeirra eru í hópnum Steinunn Jónsdóttir sem einnig býður sig fram til setu í bankaráðinu. Þessi hópur taldi allt þar til í gær að Straumur myndi tilnefna tvo menn í bankaráðið sem ekki hefðu setið þar áður og að sjálfkjörið yrði í bankaráðið. Framboð Helga Magnússonar og Guðmundar B. Ólafsssonar, sem eiga sæti í bankaráðinu, kom því þessum aðilum á óvart. Þar á bæ er framboðið túlkað sem að þrýstingur hafi komið frá eigendum Landbankans innan Straums um að Helgi settist í bankaráðið. Innan Straums er því neitað að nokkurt samkomulag hafi legið fyrir um menn og fylking Straums hafi alltaf talið sig eiga fyrir þremur í bankaráðið. Auk Helga og Guðmundar er Úlfar Steindórsson fulltrúi Straums í framboði til bankaráðsins. Helgi og Guðmundur mynduðu í raun meirihluta í bankaráðinu með Víglundi Þorsteinssyni og Orra Vigfússyni. Hin fylkingin býður, auk bankaráðsmannanna þriggja og Steinunnar, fram Ólaf B. Thors, fyrrverandi forstjóra Sjóvár-Almennra, og Róbert Melax, stofnanda Lyfju og aðaleiganda Skífunnar. Báðar fylkingarnar telja sig eiga vísan stuðning í hópi annarra hluthafa. Straumur fjárfestingarbanki á samkvæmt eignarhlut fyrir tveimur mönnum. Fjármálaeftirlitið á eftir að úrskurða um hæfi Straums sem kjölfestufjárfestis í Íslandsbanka og fram til þess tíma getur Straumur ekki nýtt atkvæðisrétt sinn yfir tíu prósent. Líklegt er að ef ekki liggi fyrir niðurstaða Fjármálaeftirlitsins muni Straumur selja bréf til vilhalls aðila til að atkvæðarétturinn falli ekki dauður. Vika er til hluthafafundar og má allt eins má búast við að fylkingarnar reyni að styrkja stöðu sína fram að fundi, bæði með því að biðla til hluthafa og hugsanlega með frekari kaupum bréfa í bankanum.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Eftirsóttustu starfsmenn framtíðarinnar Atvinnulíf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira