Gróði hjá Gates 22. október 2004 00:01
Hugbúnaðarrisinn Microsoft hagnaðist um 2,9 milljarða Bandaríkjadala á síðasta ársfjóðungi. Þetta samsvarar um tvö hundruð milljörðum íslenskra króna. Þetta er ellefu prósent hækkun frá því á sama tíma í fyrra. Þrátt fyrir þetta féllu hlutabréf í fyrirtækinu í verði í kjölfar fréttanna. Fjárfestar efast um að félaginu takist að viðhalda yfirburðastöðu sinni til langframa auk þess sem tafir á útgáfu nýs stýrikerfis hafa vakið upp efasemdir. Þá hefur Microsoft gengið verr en áður að gera langtímasamninga við stóra viðskiptavini og skrifast það að hluta til á þá staðreynd að fyrirtækið hefur ekki boðið upp á miklar nýjungar upp á síðkastið. Næsta uppfærsla af Microsoft Windows stýrikerfinu er ekki væntanleg á markað fyrr en árið 2006 og ný útgáfa sem gengur undir vinnuheitinu Windows Longhorn kemur líklega ekki á markað fyrr en árið 2007. Sérfræðingar segja að Microsoft hafi hins vegar tekist betur upp en mörgum öðrum tæknifyrirtækjum að draga úr kostnaði við reksturinn.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Samstarf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira