Vandi hjá General Motors 14. október 2004 00:01
Bandaríski bílaframleiðandinn General Motors ætlar að fækka starfsmönnum sínum í Evrópu um tólf þúsund fyrir árslok 2006. Stjórnendur fyrirtækisins telja að launakostnaður sé of hár í Evrópu auk þess sem spurn eftir bílum fari minnkandi. "Sé litið þrjú ár aftur í tímann hefði enginn spáð því hve veikur evrópski markaðurinn yrði, sérstaklega sá þýski," segir Carl-Peter Forster forstjóri General Motors í Evrópu. Hann segir að mikil verðsamkeppni hafi þrýst niður verði á Þýskalandsmarkaði og ekki sé útlit fyrir bata. Stærstur hluti uppsagnanna verður í þýskum verksmiðjum General Motors. Þar er launakostnaður hár auk þess sem ýmsar reglugerðir svo sem eins og 35 stunda vinnuvika og langvinn sumarfrí hafa vond áhrif á reksturinn. Í gær tilkynnti General Motors að tap á rekstrinum á þriðja ársfjórðungi í Evrópu næmi 236 milljónum Bandaríkjadala (tæplega 17 milljörðum króna). Vandræði General Motors einskorðast þó ekki við Evrópu því reksturinn hefur undanfarið verið verri en sérfræðingar telja ásættanlegt. Verð bréfa í General Motors lækkaði í kauphöllinni í New York í gær og er nú lægra en það hefur verið allt síðasta ár.
Mest lesið Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Viðskipti innlent Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Kaupa CCP aftur frá Kóreu Viðskipti innlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira