Erlent

Hrottaleg árás í Svíþjóð

Áköf leit stendur nú yfir í Svíþjóð að tveimur mönnum sem stungu konu á fertugaldri til bana í fyrrakvöld og stungu augun úr eiginmanni hennar. Hjónin ráku veitingastað í miðbæ Málmeyjar og var konan að tæma peninga úr spilakössum þegar mennirnir létu til skarar skríða. Tveir synir hennar, átta og tíu ára, urðu vitni að atburðinum. Mennirnir höfðu fjármuni á brott með sér og hurfu út í myrkrið. Ekki er vitað hvort lögregla hefur einhverja sérstaka grunaða um verknaðinn en heimamenn eru slegnir óhug vegna þessarrar hrottalegu árásar.


Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×