Baugur og Samherji með Björgólfi 23. september 2004 00:01
Burðarás, fjárfestingarfélag undir stjórn Björgólfsfeðga og Kaldbakur sem er undir stjórn Baugs og Samherja munu sameinast. Gengið var frá samningum þess efnist síðdegis í gær. KEA sem var stór hluthafi í Kaldbaki seldi sig út og fjárfesti í staðinn beint í Samherja. Með viðskiptunum eru Björgólfsfeðgar komnir í samstarf við Jón Ásgeir Jóhannesson og Þorstein Má Baldvinsson í fjárfestingarfélagi með um 40 milljarða í eigið fé og markaðsvirði upp á 80 milljarða. Kaldbakur er upprunalega afsprengi KEA. Andri Teitsson forstjóri KEA hefur lýst því yfir að félagið hyggist beita sér fyrir arðsömum fjárfestingum á Norðurlandi Eystra. Fjárfestingar Kaldbaks hafa ekki markast af landfræðilegri stöðu. "Kaldbakur var ekki mikið að hjálpa okkur í verkefnum okkar hér, þannig að við töldum meira virði að tengjast Samherja og mynda sterkan eigendahóp þar." KEA fékk 3,7 milljarða fyrir bréf sín í Kaldbaki og fjárfesti í Samherja fyrir rúma tvo milljarða. KEA innleysir 2,5 milljarða hagnað af viðskiptunum. Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs segir nauðsynlegt að fjárfestingarfélög af þessu tagi hafi afl til að takast á við stór verkefni. Samanlagt séu félögin fjárhagslega sterk og geti tekist á við stór erlend verkefni. Friðrik Jóhannsson, framkvæmdastjóri Burðaráss segir að eftir sameiningu hafi Burðarás afl til að takast á við stærri verkefni. Hann segir umræðu um sameiningu hafa komið upp. "Þetta gerðist hins vegar mjög hratt." Stefna Burðaráss er að þrír fjórðu fjárfestingar séu erlendis. Forystumenn hluthafahópsins hafa allir mikil tengs á erlendum vettvangi. Friðrik segir að þótt stefna Burðaráss sé að fjárfesta í fjarskiptum og fjármálstarfsemi komi einnig til greina að taka þátt í verkefnum tengd smásölu, en Baugur hefur látið til sín taka á þeim vettvangi í Bretlandi.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira