Ég er alheimsborgari 14. júní 2004 00:01
Mike Pollock, fyrrverandi Utangarðsmaður, gaf út tvær breiðskífur á dögunum. Sólóplötuna World Citizen og svo Apocalypse Revue ásamt hljómsveit sinni The Viking Hillbilly. Plötunum er einnig dreift í nokkrum fylkjum Bandaríkjanna og báðar plötur fengu á dögunum glimrandi góða dóma í dagblaðinu The Courier sem gaf sólóplötu Mikes fjórar stjörnur en plötu sveitarinnar þrjár og hálfa. "Í þessum hópi er mikill kærleikur," segir Mike um hópinn sem mannar The Viking Hillbilly og gefur út plöturnar. "Þegar ég hitti fyrst Ronny árið 1998 og horfði í augu hans hugsaði ég með mér; "hvar hefur þú verið, bróðir?" Við þekktum hvor annan eins og skot. Áttum svo margt sameiginlegt, eins og afmælisdag." Ronny heitir réttu nafni Ron Whitehead og er afkastamikið skáld í Kentucky. Honum kynntist Mike í Central Park í New York árið 1997 á minningarathöfn um skáldið Allen Ginsberg. Platan Viking Hillbilly kemur á óvart. Hún er blanda af ljóðaupplestri, söng, teknó, blús og rokki. Það er síðan skemmtileg staðreynd að Mike vottar Megasi virðingu sína með því að flytja eitt laga hans, Lóa Lóa Lóa, á ensku. Sólóplata Mikes er svo með öðru sniði en hún varð til eftir að Mike lét undan þrýstingi sinna nánustu um að gera sólóplötu í tilefni af fimmtugsafmæli sínu. Viðbrögðin hafa orðið til þess að Mike er byrjaður á annarri sólóplötu sem verður að mestu órafmögnuð. Titill plötunnar gefur þær vísbendingar að Mike sé ekki mikið fyrir þjóðrembu. Einnig er ríkur friðarboðskapur svífandi yfir lögunum. "Það eina sem ég get gert til þess að koma á heimsfriði er að finna friðinn inni í sjálfum mér. Vonandi smita ég út frá mér. Ég er hálfur Bandaríkjamaður og hálfur Íslendingur. Ég var mikið á flakki á uppvaxtarárunum og lenti í tilvistarkreppu. Bandarísku krakkarnir kölluðu mig "íslenska strákinn" en þegar ég var hér var ég "Kaninn". Ég komst að því í restina að ég hlyti að vera alheimsborgari." Um þjóðarstolt hefur Mike þetta að segja; "Ég keypti það aldrei. Ég held að það sé óhollt. Það er gott að vera stoltur af sjálfum sér og fjölskyldu en það er líka til óhollt stolt sem loðir við egóisma og þjóðernishyggju. Þetta er afskaplega lítill heimur. Jörðin er eitt stórt þorp í mínum augum. Við erum öll tengd eins og laufblöð á tré. Hvort sem það er George Bush eða Mahatma Gandhi."
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira