Metal-hátíð á þjóðhátíðardaginn 14. júní 2004 00:01
Það er ekki nóg með það að þjóðin fagni 60 ára afmæli lýðveldisins á Þjóðhátíðardaginn 17. júní með hátíðarhöldum í bænum heldur verður unnendum harðkjarnarokks gefin sérstök ástæða til þess að fagna. Í gamla Sjónvarpshúsinu við Laugaveg verður nefnilega haldin stærsta metalhátíð sem haldin hefur verið á Íslandi, til þessa. Hátíðin verður opin öllum aldurshópum og ber yfirskriftina Masters of the Universe. Þar koma fram fjórar erlendar sveitir auk rjómans af íslensku senunni. Bandaríska sveitin Shai Hulud þykir sérstaklega ástríðufull og einlæg og laus við alla tilgerð. Nýjasta plata þeirra, That Within Blood Ill-Tempered, og frumburðurinn, Hearts Once Nourished With Hope & Compassion, frá 1997 þykja sönnun þess. Bandaríska sveitin Give up the Ghost er íslenskum metal-hundum vel kunn enda komu þeir hingað á dögunum og héldu ógleymanlega tónleika. Danska sveitin Urkraft hafa verið kallaðir fánaberar metalsins í Danmörku og hefur á stuttum tíma vakið á sér mikla athygli. Síðast gaf hún út plötuna Eternal Cosmic Slaughter sem fékk góða dóma víðsvegar um heim. Sveitin spilar melódískt dauðarokk í anda At the Gates og The Haunted. Emo-rokksveitin 27 stingur mest í stúf á hátíðinni. Tónlist sveitarinnar er lýst sem dreymandi, ambient rokki sem er undir léttum djassáhrifum. Sveitin hefur gefið út tvær breiðskífur, Songs from the Edge of the Wing (1999) og Animal Life (2002) sem báðar fengu lofsamlega dóma gagnrýnenda í Bandaríkjunum. Íslensku sveitirnar sem spila á hátíðinni verða I Adapt, Changer, Drep. Fighting Shit og Afsprengi Satans. Fjörið hefst kl. 17 í gamla Sjónvarpshúsinu, inngangseyrir verður 1800 kr og ekkert aldurstakmark verður.
Mest lesið Arnór Sig kominn á fast Lífið Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Lífið „Erum bara vinir“ Lífið Þetta þrennt hefði ég viljað vita tvítugur Áskorun Iceguys reyndu við Hasselhoff Bíó og sjónvarp Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Lífið Skaut sig óvart í fótinn Bíó og sjónvarp Góðir straumar á Straumi Menning Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Lífið Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Lífið Fleiri fréttir Safna í minningu Johns Snorra fyrir munaðarlaus börn Ólafía Þórunn orðin þriggja barna móðir „Erum bara vinir“ Áhrifavaldur lést í mótorhjólaslysi Útúrkókaður lögreglumaður stökk á mann sem var að slá garðinn um nótt Arnór Sig kominn á fast Stjörnulífið: Fáklædd og frjáls Mistök að hafa klætt sig upp sem heimilislausa Robert Irwin nýtti fríið og ferðaðist um Ísland Vonlaust að gagnrýna vini sína Luku þrjátíu ára hjónabandi með skilnaðarferð Krakkatía vikunnar: Hrekkjavaka, þjóðtrú og goðafræði Hnýta í Trump í nýrri herferð: „Velkomin til skítalands“ Níutíu og einn meistari útskrifaðist Andri Snær keppir við Elizabeth Holmes Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“ Hrekkjavökukort sem sé drifið áfram af samfélaginu Nýjar upplýsingar um morðið á Hrafnhildi Lilju átján árum síðar Fréttatía vikunnar: Brasilía, Ofurskálin og Pútín Halla forseti var ekki heima þegar hann loks skilaði sér á leiðarenda Halla bað sáran áhrifavald um að ofgera sér ekki fyrir samfélagsmiðla Ráðherrar brugðu á leik og tóku lagið Nablinn hættur á leikskóla Keppast um að minnast Stewarts Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Patrick Stewart látinn Erna Mist og Þorleifur selja „Nú erum við trúlofaðar dúllur“ Missti röddina á ögurstundu Barbara Barrie lést með aðstoð lækna Sjá meira
Barn kom í heiminn á Vesturlandsvegi: „Þá er hún bara komin á fjóra fætur í Nissan Leaf-inum okkar“