Líka kosið í öldungadeildina 1. nóvember 2004 00:01
Þó að athygli umheimsins beinist einkum að forsetakosningunum í Bandaríkjunum er kosið um fleira, til að mynda um sæti í öldungadeild Bandaríkjaþings. Ingólfur Bjarni, sem er í Washington, kannaði hvaða áhrif þær kosningar gætu haft. Forseti Bandaríkjanna hverju sinni er án efa einhver valdamesti maður heims. En hann er ekki einvaldur. Á Bandaríkjaþingi sitja 535 þingmenn sem hafa töluverð áhrif á framgang stefnumála forsetans og á morgun verður kosið um nokkurn fjölda sæta á þinginu. Þau sæti gætu skipt sköpum hvað valdajafnvægi þar varðar, og um leið hvað stefnuna næstu fjögur ár snertir. Cristpher Joyner, prófessor við Georgetown-háskóla, telur repúblíkana líklegri til að fá meirihluta í Öldungadeildinni þótt nú muni aðeins einu sæti. Hann segir áhrifa frá forsetakosningunum þó geta gætt. „Ef Kerry verður forseti getur hann dregið með sér demókrata inn á þing. Ef Bush nær endurkjöri getur það á sama hátt orðið til þess að repúblíkanar nái kosningu til Öldungadeildarinnar,“ segir Joyner. Úrslitin gætu hins vegar orðið þveröfug, þ.e.a.s. forseti úr röðum demókrata gæti setið upp með öldungadeild sem repúblíkanar réðu, og jafnvel öfugt þótt það sé ekki eins líklegt. Hvernig sem litið sé á þetta er samt líklegt að þingið verði andsnúið ýmsum stefnumálum sem bæði Bush og Kerry hafa sett fram að sögn Joyners.
Erlent Forsetakosningar í Bandaríkjunum Fréttir Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Fleiri fréttir „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Sjá meira