Jákvæð reynsla af reykingabanni 29. nóvember 2004 00:01
Frumvarp sem bannar reykingar á veitingahúsum verður lagt fram á Alþingi fyrir jól. Reynsla annarra landa af slíku reykingabanni er almennt jákvæð en þó hafa ýmsar óvæntar hliðarverkanir komið í ljós. Hvert landið á fætur öðru hefur farið þá leið að banna alfarið reykingar á opinberum vettvangi þó aðeins smáríkið Bútan hafi gengið alla leið og hreinlega bannað sölu tóbaks. Auk Íslands er verið að smíða frumvörp um málið í Bretlandi, þá gengur reykingabann í gildi í Svíþjóð á næsta ári og slíkt bann er þegar við lýði í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna, á Írland og í Noregi þar sem reykingabannið tók gildi síðasta sumar. Afleiðing þessa er að nú sitja norskir reykingamenn úti við iðju sína og það jafnt í sól og sumaryl sem um hávetur og í fimbulkulda. Enda hafa veitingahúsin aðlagast vel og bjóða upp á hitara og teppi. Bannið hefur breytt ásýnd Óslóar að því leyti að nú er algengt að sjá hópa fólks norpandi við reykingar fyrir utan veitingastaði og bari með tilheyrandi reykmengun fyrir aðra vegfarendur. Skoðanir eru skiptar um hvort þetta er rétta leiðin. Björn Jacobsen, þingmaður norska Sósíalistaflokksins, segir of snemmt að segja til um það. Bíða þurfi fram í janúar þegar frostið fer niður í 20 stig til að sjá hvort þetta virki í reynd. „Veitingabransinn sá ekki nógu vel til þess að reyklausum gæti liðið vel úti,“ segir Jacobsen.
Fréttir Innlent Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Innlent Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl Innlent Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 Innlent Slysið austan við Vík var alvarlegt Innlent Fleiri fréttir Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sektaður fyrir að aka á göngugötu Hvalveiðibátarnir haldnir til veiða Mikið tjón eftir eld á Klapparstíg Flækt í kafkaískt stjórnsýslulegt helvíti Undrast „leiðinlega“ Íslendinga Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“