Sameining sparisjóða 8. október 2004 00:01
Viljayfirlýsing um sameiningu SPRON og Sparisjóðs vélstjóra var undirrituð í gær. Á grundvelli mats óháðra endurskoðenda verður hlutur SPRON 60 prósent í sameiningunni, en hlutur SPV 40 prósent. SPRON og SPV hafa verið í sitt hvorri fylkingu innan sparisjóðanna og sameining því söguleg. Óskar Magnússon, stjórnarformaður SPRON, segist vonast til að flokkadráttum linni. "Þarna eru samlegðaráhrif upp á hundruð milljóna, þannig að það er mikilvægt að þetta takist," segir Óskar. Hagnaður smærri fjármálafyrirtækja hefur að mestu verið sprottinn af góðæri á verðbréfamörkuðum. Ný húsnæðislán með 4,2 prósenta vöxtum þrýsta á um stærri einingar. "Það er mikilvægt að búa sig undir það að ekki ríki alltaf góðæri á bréfamörkuðum," segir Óskar. Viðskipti með stofnfjárbréf SPRON voru stöðvuð í gær vegna frétta um viðræður SPV og SPRON. HF verðbréf tóku að sér miðlun bréfa og segir Halldór Friðrik Þorsteinson hjá HF verðbréfum að vegna óvissu hafi viðskipti með þau verið stöðvuð. Þau hefjist aftur á mánudag, en af þeim tíu prósentum sem stjórn SPRON samþykkti viðskipti með var meirihluta miðlað af MP verðbréfum. Sigurður Valtýsson hjá MP verðbréfum sagði fyrirtækið miðla þessum bréfum eins og öðrum verðbréfum og staðfesti áhuga á þeim hjá sínum viðskiptavinum. Viðskipti með bréf SPRON hafa verið á genginu 5,5 sem er svipað og KB banki bauð í upphafi árs. Full stofnfjáreign gefur því um 4,5 milljónir króna í aðra hönd.
Mest lesið Fjölmiðla- og auglýsingabransinn: „Jú, jú, það er alveg að koma nýtt búmm!“ Atvinnulíf Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Fá AA- í einkunn Viðskipti innlent Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá AA- í einkunn Afkoma ríkisins neikvæð um 182 milljarða Neytendastofa tæklar bílastæðamálin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Sjá meira