Viðskipti erlent

Kmart og Sears sameinast

Verslunarkeðjan Kmart hefur fest kaup á verslunarkeðjunni Sears og verða fyrirtækin sameinuð. Búist er við að tekjur hins sameiginlega félags nemi um 55 milljörðum dala árlega. Það samsvarar um 3.800 milljörðum íslenskra króna. Kmart hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum á síðustu árum og farið í gegnum greiðslustöðvun og endurfjármögnun. Nú kaupir Kmart aðra verslunarkeðju á ellefu milljarða dala (um 770 milljarða króna). Sameinaðar mynda keðjurnar þriðja stærsta þátttakandann á bandaríska smásölumarkaðinum. Hlutabréf í báðum fyrirtækjum tóku kipp upp á við þegar greint var frá samningnum í gær.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×