Lífið

Nágranna Joeys skipt út

Breytingar hafa verið gerðar á gamanþáttunum Joey sem frumsýndir verða í Bandaríkjunum í haust. Matt LeBlanc, sem lék Joey í Friends, fer með aðalhlutverkið í þáttunum. Eftir margra vikna vangaveltur hafa framleiðendur þáttanna ákveðið að skipta út hinni kynæsandi nágrannakonu Joeys í Los Angeles, sem var leikin af Ashley Scott. Eftir að prufuþáttur var tekinn upp og sýndur áhorfendum kom í ljós að þeir voru ósáttir við nágrannakonuna og töldu hana eina veika hlekkinn. Þess vegna hefur verið ákveðið að breyta atriðunum sem hún var í og taka þau aftur upp með nýrri leikkonu.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.