Stíla inn á húmor í þáttunum 14. júní 2004 00:01 "
Þetta er svolítið öðruvísi sumarvinna en að liggja í beði og reyta arfa," segir Karl Sigurðsson en hann er einn af fjórum fræknum krökkum sem sjá um útvarpsþáttinn Ungmennafélagið á Rás 2. "Þetta er þáttur fyrir ungt fólk og við umsjónarmennirnir erum öll fimmtán ára. Við verðum í samstarfi við UMFÍ í sumar og erum á sömu launum og vinnuskólinn býður upp á," segir Karl en auk hans hafa þau Bryndís Erla Sigurðardóttir, Vilborg Pétursdóttir og Guðfinnur Sveinsson umsjón með þættinum. "Við viljum hafa þáttinn fjölbreyttan og í sumar ætlum við að vera dugleg við að fara út úr stúdíóinu og ræða við unglinga sem eru að gera skemmtilega hluti. Við stílum svolítið inn á að hafa húmor í þáttunum og erum með Dallinn þar sem nokkrir krakkar sjá um að búa til stuttar grínsenur. Tónlistin skiptir okkur líka miklu máli. Margir halda að unglingar hlusti bara á Britney Spears eða svona fm tónlist en við spilum líka rokktónlist með böndum eins og Metallicu og íslenska hallæristónlist í bland við það heitasta." Þátturinn er í loftinu fjögur kvöld vikunnar frá mánudögum til fimmtudags frá átta til tíu. "Við erum með nokkra fasta dálka og hópur ungra læknanema heimsækir okkur á mánudögum til að fræða okkur um kynlíf og ýmiss konar forvarnir. Við fáum líka heilsupistla frá Gaua litla og fræðslu frá Regnbogasamtökunum en á fimmtudögum eru þættirnir tileinkaðir landsbyggðinni." Ragnar Páll Ólafsson er dagskrárgerðarmaður þáttarins."Raggi Palli er reyndur útvarpsmaður og hann hefur sýnt okkur hvernig hlutirnir virka," segir Karl, "og það er svaka flott að hafa heila tvo tíma í útvarpinu þar sem unglingar geta miðlað til unglinga."
Mest lesið Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Lífið Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Lífið „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Lífið Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Lífið Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu Lífið IceGuys boða sína síðustu tónleika: Sonur Arons Can gerði allt vitlaust Tónlist Innipúki er ekki það sama og fýlupúki Lífið Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Lífið „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Lífið Big Pussy er látinn Lífið Fleiri fréttir Myndaveisla: Stjörnufans fyrir norðan á Einni með öllu „Ég er svolítið svífandi á bleiku skýi“ Sló pabba út með að kasta sér yfir línuna Vill skapa staðinn sem sonur hennar þurfti en fann aldrei Innipúki er ekki það sama og fýlupúki „Við getum ekki kvartað undan veðrinu“ Klukkutíma bröns getur kostað marga daga í rúminu Krakkatía vikunnar: Hungurleikar, biskup og geirfuglinn Big Pussy er látinn Fréttatía vikunnar: Vasaþjófar, KFC og morðhótanir Fiðrildi og flugeldar í maganum í Herjólfsdal Selur aflátsbréf fyrir forsjálustu syndgara helgarinnar Loðinn laumufarþegi sníkti far frá Úlfarsfelli Þjóðhátíð sett í blíðviðri í Eyjum Hættur í Jesus Christ Superstar eftir útgáfu lags til stuðnings Ísrael Ískaldur töffari, skapstór snillingur og afkastamikill vinnuþjarkur Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Sam Smith trúlofað Halla Hrund og uglurnar þrjár Útför Megasar Gerði sátt við aðstoðarkonuna sem sakaði hann um nauðgun „Þegar við sáum kastalann var ekki aftur snúið“ Gladiator kveikti neistann við brennuna og úr varð ódauðlegt þjóðhátíðarlag Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Sjá meira