Lífið

Stjörnulífið: Jólagleði, rauðar varir og IceGuys
Stórafmæli, tónleikar og almennur jólaundirbúningur var áberandi hjá stjörnum landsins í liðinni viku. Stjörnulögfræðingurinn Villi Vill fór út á lífið á Ítalíu með knattspyrnumanninum Alberti Guðmundssyni, Sigga Beinteins og kærastan hennar, Eygló Rós fóru á Kjarval á meðan Logi Bergmann skemmti sér á tónleikum Auðar í Iðnó á laugardagskvöldið.

Logi Bergmann í banastuði á sveittum tónleikum Auðuns
Auðunn Lúthersson er mættur til landsins og tróð upp fyrir fullu húsi í Iðnó á laugardagskvöldið. Fremstur í flokki tónleikagesta var sjónvarpsmaðurinn Logi Bergmann sem skemmti sér konunglega.

Sigga Beinteins slær sér upp
Söngdívan Sigríður Beinteinsdóttir er komin með glæsilega konu upp á arminn. Sú heppna heitir Eygló Rós Glódís Agnarsdóttir og ljóst að þar er á ferðinni eitt glæsilegasta par landsins.

Kendall Jenner og Bad Bunny hætt saman
Ofurfyrirsætan og raunveruleikastjarnan Kendall Jenner og rapparinn Bad Bunny eru hætt saman ef marka má heimildir erlendra slúðurmiðla.

„Er ekki dýrt að eiga svona barn?“
„Ég fæ reglulega spurningar eins og „Er þetta ekki erfitt?“ eða „Hvernig farið þið að þessu?“ segir Guðný Erla Guðnadóttir, móðir hins sjö ára gamla Sigurðar Hjálmars. Sigurður Hjálmar er greindur með ódæmigerða einhverfu, þroskahömlun, ADHD, hegðunarerfiðleika, frávik í gróf og fínhreyfifærni og frávik í skynjun.

Klara Elías trúlofuð
Söngkonan Klara Elías sem sem söng í hljómsveitinni Nylon er trúlofuð samkvæmt færslu sem hún birti á Instagram í dag. Sá heppni heitir Jeremy Aclipen og er bardagaíþróttakappi.

Þakklátur fyrir fagmennsku og góðvild
Sundkappinn söngelski Már Gunnarsson segist gríðarlega ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins í dag. Hann og hundurinn hans Max voru kampakátir og segja það hafa verið besta flug þeirra til þessa.

Öllu til tjaldað í steypiboði Birgittu Lífar
Birgitta Líf Björnsdóttir og Enok Jónsson héldu í gær steypiboð eða það sem kallað er á ensku „baby shower“ og var öllu tjaldað til. Parið greindi frá því að þau ættu von á barni í ágúst.

Áttu von á tvíburum en komu heim með eitt barn
Árið 2021 fengu Rúnar Örn Birgisson og Kolbrún Tómasdóttir að vita að þau ættu von á tvíburum. Ekkert gat búið þau undir áfallið sem þau áttu í vændum. Annar tvíburinn lést í móðurkviði og stuttu seinna kom í ljós að bróðir hans hafði orðið fyrir heilaskaða.

Manstu eftir Akraborginni?
Á árunum 1956 til 1998 var Akraborgin helsta fólksflutningaleiðin yfir Faxaflóa. Ófáir Íslendingar eiga minningar af ferðum með Akraborginni enda flutti skipið um 250 þúsund farþega á ári.

Krakkakviss vikunnar: Jólasveinar, Idol og Friðarsúlan
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á krakkakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Heimsklassa hjón í Hörpu og Eiður Smári datt í lukkupottinn
Eiður Smári Guðjohnsen var á meðal verðlaunahafa í jólabingói á Röntgen í vikunni. World Class hjónin Bjössi og Dísa sátu á fremsta bekk á jólatónleikum og sjóðheitar mömmur skelltu sér á tónleika Iceguys með krökkunum.

Listaverk úr grjóti hjá múrarameistara á Sauðárkróki
Það er ævintýri líkast að komast inn í einn af bílskúrnum á Sauðárkróki því þar er 85 ára múrarameistari með steinasafnið sitt og annað spennandi handverk, sem hann er að fást við á hverju degi.

Vann á Íslandi í hálft ár og náði að safna fyrir sex mánaða ferðalagi
Dawid Siódmak er tæplega þrítugur Pólverji sem lifir nokkuð óhefðbundnum lífsstíl. Hann og unnusta hans vinna sex mánuði á ári, lifa mjög spart og safna pening. Hinn helminginn á árinu nýta þau í ferðalög víðsvegar um heiminn þar sem þau lifa á sparifénu. Hafa þau meðal annars heimsótt Víetnam, Kambódíu, Marokkó, Mexíkó og Spán. Undanfarna sex mánuði þau dvalið og unnið á gistiheimili á Íslandi og safnað fyrir næsta ferðlagi.

Fyrsti trommuleikari AC/DC látinn
Ástralski trommuleikarinn Colin Burgess, sem var fyrsti slagverksleikari rokkhljómsveitarinnar AC/DC, er látinn. Burgess varð 77 ára gamall.

Ljót, skrýtin og skemmtileg jólatré til styrktar góðu málefni
Kaffihúsið og vínstofan Kramber stendur fyrir sölu á misheppnuðum, ljótsætum, skrýtnum og einstökum jólatrján á pallinum fyrir utan. Allur ágóði rennur óskiptur til Konukots.

Að verða edrú breytti öllu
Einkaþjálfarinn Hreinn Orri segir líkamsrækt og mikla sjálfsvinnu hafa hjálpað sér út úr harðri fíkniefnaneyslu. Síðastliðið ár hefur hann tekist á við erfiðar tilfinningar í kjölfar sjálfsvígs föður síns, á sama tíma og hann fótar sig sjálfur í nýju hlutverki sem stjúpfaðir.

Gleymdi textanum en Bríet hvatti hann áfram og þá gekk allt eins og í sögu
Það var rafmagnað andrúmsloftið í Idol-þætti gærkvöldsins þegar keppendur fengu að syngja lagabút og freista þess að heilla dómnefndina til að komast í næstu umferð.

Fréttakviss vikunnar: Hauskúpa, Helga Þóra og háloftin
Hversu vel fylgdist þú með fréttum í vikunni sem líður? Spreyttu þig á fréttakvissinu til þess að komast að því. Sem fyrr er aðeins montréttur að launum fyrir góða frammistöðu.

Dánarorsök Matthew Perry ljós
Leikarinn Matthew Perry sem fór með hlutverk Chandlers Bing í gamanþáttunum Friends lést eftir að hann tók inn ketamín. Efnið er notað sem lyf við þunglyndi og kvíða en einnig sem vímuefni.

Dansa til styrktar konum á Gasa
Hinn margverðlaunaði dansari og danshöfundur Þyri Huld Árnadóttir ásamt hópi dansara stendur fyrir dansviðburðinum Hringrás x Gasa sem haldinn verður í Ásmundarsal klukkan 16:00 á morgun.

Folar fagna stórafmæli
Gísli Örn Garðarsson leikari og Herbert Guðmundsson tónlistarmaður standa á tímamótum í dag. Þeir fagna stórafmæli sínu hvor með sínum hætti. Annar í Brasilíu en hinn með nýbakaðri tebollu og því að gera það sem hann gerir best - að skemmta fólki.

IKEA sameinar húsgögn og líkamsrækt
Sænski húsgagnaframleiðandinn IKEA ætlar sér að breyta því hvernig fólk hugsar um líkamsræktarbúnað með nítján vörum sem nýtast á fleiri en einn hátt á heimilinu.

Herra Hnetusmjör og Sara Linneth trúlofuð
Tónlistarmaðurinn Árni Páll Árnason, þekktur sem Herra Hnetusmjör, fór á skeljarnar og bað um hönd Söru Linneth Lovísudóttur Castañeda, tómstunda- og félagsmálafræðings. Sara greindi frá trúlofuninni á Instagram í gærkvöldi.

Toni setur ókláraða höll á Arnarnesi á sölu
Anton Kristinn Þórarinsson, einnig þekktur sem Toni, hefur sett glæsilegt einbýlishús sitt á Arnarnesinu í Garðabæ á sölu. Húsið, sem er enn í byggingu, telur rúma 620 fermetra á tæplega 1500 fermetra lóð, en fasteignamat þess er 258 milljónir króna, og brunabótamat tæpar 138 milljónir.

Brooklyn Nine-Nine-stjarnan lést úr lungnakrabbameini
Bandaríski leikarinn Andre Braugher, frægur fyrir að hafa farið með hlutverk varðstjórans Raymond Holt í vinsælu gamanþáttunum Brooklyn Nine-Nine, lést úr lungnakrabbameini. Hann féll frá þann 11. desember síðastliðinn, 61 árs að aldri.

Siggi Þór og Sonja orðin foreldrar
Leikarinn Sigurður Þór Óskarsson, eða Siggi Þór eins og hann er kallaður, og unnusta hans Sonja Jónsdóttir vefhönnuður eignuðust dreng 14. nóvember síðastliðinn.

Bylgjan órafmögnuð hringir inn jólin
Síðustu tónleikarnir í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð fer fram á Stöð 2 Vísi og Vísi í kvöld klukkan 20.

Sjáðu norska kofann sem Þorsteinn Már keypti á 260 milljónir
Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, hefur fest kaup á 254 fermetra fjallakofa fyrir utan Lillehammer í Noregi. Fyrir kofann greiddi Þorsteinn 260 milljónir króna.

„Ekki að segja að við viljum meiri laun en flugumferðarstjórar, en allt að því“
Viðræður eru í gangi um seríu tvö á sjónvarpsþáttunum Iceguys. Rúrik Gíslason segir tónlistarmennina fimm, sem skipa sveitina, alla vera að „springa úr egói,“ og verið sé að reyna finna flöt á launamálum. Stórtónleikar á laugardaginn eru þó ekki gerðir með sem mestan hagnað í huga, heldur sé allur metnaður lagður í að hafa þá sem glæsilegasta.