Handbolti

Íslendingar í undanúrslit á EM
Íslenska karlalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum átján ára og yngri tryggði sér í dag sæti í undanúrslitum á EM með sigri á Noregi, 31-25.

Bóna bíla til að eiga fyrir Evrópukeppni
Það er gömul saga og ný að kostnaðarsamt sé fyrir íslensk íþróttalið að taka þátt í Evrópukeppnum í handbolta. Haukakonur ætla að þrífa bíla um helgina til að safna fyrir sinni þátttöku.

Tekur fimmtánda tímabilið með FH
Ásbjörn Friðriksson, spilandi aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara FH í handbolta, hefur skrifað undir nýjan eins árs samning við félagið.

Stór skellur í fyrsta leik á HM í Kína
Stelpurnar í íslenska átján ára landsliðinu í handbolta töpuðu stórt í fyrsta leik sínum í heimsmeistarakeppni U18 í Chuzhou í Kína.

Tap gegn Spáni en Ísland gæti enn spilað um verðlaun
Strákarnir okkar í íslenska U18-landsliðinu í handbolta urðu loks að sætta sig við tap í dag þegar þeir mættu ríkjandi Evrópumeisturum Spánar á Evrópumótinu í Svartfjallalandi.

„Ætti að læsa þann inni sem fann upp á þessu kerfi“
„Á næstum fimmtíu ára ferli í íþróttum hef ég aldrei séð eins ósanngjarnt keppnisfyrirkomulag!“ Þetta segir Nenad Sostaric, þjálfari Króata, hundfúll með að hafa ekki komið sínu liði í átta liða úrslit EM U18-landsliða karla í handbolta, eins og Íslendingum tókst að gera.

Óttast um framtíð handboltans á Ólympíuleikunum
Íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur ekki komist á síðustu tvo Ólympíuleika og ef marka má áhyggjur handboltasérfræðings þá er mögulega hver að verða síðastur að keppa í handbolta á leikunum.

Íslenski Daninn náði slemmunni
Danski landsliðsmaðurinn Hans Lindberg kom sér í úrvalshóp í gær þegar hann varð Ólympíumeistari í París.

„Nú færðu loksins tíma til að gera það sem þú hefur mest gaman af“
María Þórisdóttir var meðal áhorfanda í París um helgina þegar faðir hennar, Þórir Hergeirsson, gerði norska kvennalandsliðið í handbolta að Ólympíumeisturum.

Rústuðu Þjóðverjum í úrslitaleiknum
Danir urðu í dag Ólympíumeistarar í handbolta karla eftir risasigur á Þjóðverjunum hans Alfreðs Gíslasonar í úrslitaleik, 26-39.

Enn og aftur unnu Spánverjar brons
Spánn vann Slóveníu, 23-22, í leiknum um bronsið í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París í morgun.

Tíundu gullverðlaun Þóris sem þjálfara Noregs
Noregur varð í dag Ólympíumeistari í handbolta kvenna í þriðja sinn og annað í sinn undir stjórn Þóris Hergeirssonar eftir sigur á heimaliði Frakkalands í úrslitaleiknum, 29-21.

Handboltaparið bæði í úrslitum á Ólympíuleikunum
Það gerist ekki á hverjum degi að par spilar til úrslita á Ólympíuleikum, hvað þá í sömu grein.

Fyrstu verðlaun Dana í tuttugu ár
Danir tryggðu sér bronsverðlaun í handboltakeppni kvenna á Ólympíuleikunum í París með því að vinna Svía í morgun, 30-25.

Hetjulegur endasprettur dugði Slóvenum skammt
Danir eru komnir í úrslitaleik Ólympíuleikanna í handbolta, þriðju leikana í röð, eftir 31-30 sigur á Slóveníu í kvöld.

Alfreð stýrði Þýskalandi í úrslitaleik Ólympíuleikanna
Þýska handboltalandsliðið undir stjórn Alfreðs Gíslasonar mun keppa til úrslita á Ólympíuleikunum eftir 25-24 sigur gegn Spáni í æsispennandi undanúrslitaleik. Spánverjar munu því aftur leika um bronsið sem þeir unnu fyrir fjórum árum síðan.

Hver er þessi þýski Petersson sem skaut Frakkana í kaf?
Íslenskum handbolta barst góður liðsstyrkur á sínum tíma þegar Alexander Petersson fékk ríkisborgararétt og byrjaði að spila með íslenska landsliðinu. Ein helsta handboltaþjóð heims, Þýskaland, hefur nú einnig fengið góðan liðsauka frá Lettlandi.

Þórir með norska liðið í úrslitaleik Ólympíuleikanna
Norska kvennalandsliðið í handknattleik tryggði sér í kvöld sæti í úrslitaleik Ólympíuleikanna eftir öruggan sigur á Dönum. Þórir Hergeirsson er því á leið í sinn annan úrslitaleik á Ólympíuleikum sem þjálfari liðsins.

Frakkar í úrslit eftir dramatík
Frakkland varð í dag fyrra landið til þess að tryggja sig inn í úrslitaleikinn í handbolta kvenna á ÓL í París. Frakkar skelltu þá Svíum, 31-28, eftir framlengdan leik.

Norðmenn úr leik og Slóvenar í undanúrslit í fyrsta sinn
Handboltalandslið Slóveníu sló Noreg úr leik á Ólympíuleikunum með 33-28 sigri og komst áfram í undanúrslit í fyrsta sinn þar sem þeir munu mæta Danmörku.

Heimsmeistararnir áfram í undanúrslit eftir spennutrylli gegn Svíum
Ríkjandi heimsmeistararþjóðin í handbolta, Danmörk, er komið áfram í undanúrslit á Ólympíuleikunum eftir 32-31 sigur gegn Svíþjóð í æsispennandi.

Þjóðverjar í undanúrslit eftir ótrúlega dramatík
Þjóðverjar undir stjórn Alfreðs Gíslasonar eru komnir í undanúrslit í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París eftir sigur á Frökkum, 35-34. Renars Uscins fór hamförum í þýska liðinu og skoraði fjórtán mörk, þar á meðal sigurmarkið.

Spánverjar í undanúrslit eftir mikla spennu og framlengingu
Framlengingu þurfti til að knýja fram úrslit í fyrsta leik átta liða úrslitanna í handboltakeppni karla á Ólympíuleikunum í París. Spánverjar unnu þá Egypta, 29-28.

Norsku stelpunar hans Þóris flugu í undanúrslit
Norska kvennalandsliðið í handbolta, undir stjórn Selfyssingsins Þóris Hergeirsson, vann öruggan 17 marka sigur er liðið mætti Brasilíu í undanúrslitum handboltakeppninnar á Ólympíuleikunum í kvöld.

Frakkar og Danir í undanúrslit
Frakkland og Danmörk komust í undanúrslit í handbolta kvenna á Ólympíuleikunum. Danmörk mætir að líkindum Noregi, sem leikur undir stjórn Þóris Hergeirssonar.

Dagur og Króatía úr leik á Ólympíuleikunum í París
Króatíska handboltalandsliðið kemst ekki í átta liða úrslit handboltakeppni Ólympíuleikanna í París. Nú er líka ljóst hvaða þjóðir mætast í átta liða úrslitunum.

Gidsel getur klárað einstaka markakóngsþrennu á þessum leikum
Danski handboltamaðurinn Mathias Gidsel hefur skorað 43 mörk í fyrstu fimm leikjum Dana á Ólympíuleikunum í París.

Frakkar rétt sluppu inn í átta liða úrslitin
Franska karlalandsliðið í handbolta tryggði sér sæti í átta liða úrslitunum á Ólympíuleikunum í París með sigri á Ungverjum í dag.

Lærisveinar Alfreðs unnu lokaleikinn og enduðu efstir í riðlinum
Þýska handboltalandsliðið tryggði sér efsta sætið í A-riðli með 36-29 sigri gegn Slóveníu í síðasta leik riðlakeppninnar á Ólympíuleikunum.

Svona líta átta liða úrslitin út í handbolta kvenna á ÓL
Þórir Hergeirsson og stelpurnar hans í norska kvennalandsliðinu í handbolta mæta Brasilíu í átta liða úrslitum Ólympíuleikanna í París.