Bíó og sjónvarp

Silfurkirkjugarður

Þórunn Sigríður Þorgrímsdóttir leikmyndahöfundur hefur átt langt og gott samstarf með Stefáni Baldurssyni leikstjóra. Hún hefur unnið á mörgum sviðum landsins en er að gera sína fyrstu leikmynd fyrir stærsta leiksvið á landinu. Raunar er þetta í annað sinn sem hún vinnur fyrir Leikfélag Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu. Aðspurð hvernig hafi verið svarar hún: „Ágætt bara.“

Bíó og sjónvarp

Öfund og undirferli

Stefán Baldursson leikstjóri hefur ekki starfað í Borgarleikhúsinu síðan hann setti opnunarsýninguna á svið 1989. Hann hafði þá starfað í hartnær tvo áratugi fyrir Leikfélag Reykjavíkur og var leikhússtjóri þar árin meðan Borgarleikhúsið var í byggingu.

Bíó og sjónvarp

Spamalot í London

Meðlimir gamanleikhópsins Monty Python voru viðstaddir frumsýningu söngleiksins Spamalot í London. Er hann byggður á kvikmynd Python, Holy Grail, frá árinu 1975.

Bíó og sjónvarp

Erlendur var þraut til að leysa

Íslenska sakamálamyndin Mýrin í leikstjórn Baltasars Kormáks verður frumsýnd á Íslandi á morgun. Myndin byggir, eins og alþjóð sjálfsagt veit, á samnefndri skáldsögu Arnaldar Indriðasonar um rannsóknarlögreglumanninn Erlend. Þórarinn Þórarinsson ræddi við Ingvar E. Sigurðsson sem túlkar Erlend á hvíta tjaldinu.

Bíó og sjónvarp

Clint Eastwood boðið til Íslands um jólin

Leikstjórinn aldni, Clint Eastwood, hefur fengið boðskort frá Sambíóunum um að koma hingað til lands og vera viðstaddur frumsýningu myndar sinnar, Flags of our Fathers. Myndin var að miklu leyti tekin upp í Sandvík á Reykjanesi og er ekki óalgengt að kvikmyndagerðarfólk láti sjá sig á þeim stöðum þar sem upptökur á myndinni fara fram.

Bíó og sjónvarp

Kaurismaki bannar mynd sína í Óskar

Ari Kaurismaki, finnski leikstjórinn góðkunni, hefur lagt blátt bann við að kvikmynd hans Ljós í svartamyrkri fari í forval til Óskarsverðlauna fyrir Finnlands hönd. Það þýðir að engin kvikmynd verður lögð fram af hálfu Finna til Óskarsverðlauna eftir ára­mótin.

Bíó og sjónvarp

Gísli Súrsson sunnan heiða

Kómedíuleikhúsið sýnir einleikinn um Gísli Súrsson sunnan heiða nú um helgina. Höfundur verksins og leikstjóri er Elfar Logi Hannesson sem nú ferðast í þriðja leikárið í röð með þennan fræga kappa í farteskinu.

Bíó og sjónvarp

Leiktjöldin úr hljóðum

Leikverkið Suzannah er óvenjulegt fyrir margra hluta sakir en það mætti með sanni kallast tónleikrit. Sænska leikhúsið Cinnober sýnir verkið í Þjóðleikhúsinu í kvöld en tónskáldið Atli Ingólfsson á heiðurinn af músíkinni sem á köflum tekur völdin í verkinu.

Bíó og sjónvarp

Líf og fjör í London

Kvikmyndahátíðin í London hófst í gær en þetta er í fimmtugasta sinn sem hátíðin er haldin í borginni. Gala-opnunarmynd hátíðarinnar er The Last King of Scotland þar sem Forest Whitaker þykir fara á kostum í hlutverki Idi Amins, fyrrverandi einræðisherra í Úganda.

Bíó og sjónvarp

Með ástríðu fyrir Ástríði

Leikkonan Edda Björgvinsdóttir mun taka sér örstutt skólaleyfi til þess að sýna nokkrar sýningar á verkinu Alveg brilljant skilnaði í Borgarleikhúsinu enda kveðst hún komin með ástríðu fyrir Ástríði.

Bíó og sjónvarp

Leika ástkonur í nýrri bíómynd

Leikkonurnar ungu Keira Knightley og Lindsey Lohan munu leika lesbískar ástkonur í nýrri mynd sem byggist á ævi breska ljóðskáldsins Dylan Thomas. Leikkonurnar eiga það sameiginlegt að vera afar vinsælar um þessar mundir en Lohan hefur verið gagnrýnd mikið fyrir partílifnað upp á síðkastið og að mæta of seint á tökustaði.

Bíó og sjónvarp

Clint ánægður með Ísland

Rúmt ár er síðan Sandvík var hertekin af kvikmyndagerðarfólki frá Hollywood og Clint Eastwood fyrir kvikmyndina Flags of Our Fathers. Óðum styttist í að Íslendingar fái að sjá afraksturinn af þessum rúmlega mánaðartökum á Reykjanesi.

Bíó og sjónvarp

Velgengni leikskálds

Breska leikskáldið Peter Morgan gerir það gott þessa dagana. Handrit hans að kvikmyndinni The Queen fellur í kramið hjá flestum sem sjá þessa ágætu mynd.

Bíó og sjónvarp

Goodman í Hafnarfirði

Í kvöld verður bandarísk kvikmyndin The Benny Goodman Story (1955) í leikstjórn Valentine Davies sýnd í Bæjarbíó á vegum Kvikmyndasafnsins. Hefst sýningin kl. 20.

Bíó og sjónvarp

Götustrákar í Feneyjum

Sýningar á ævintýramyndinni The Thief Lord hófust um helgina. Myndin er gerð eftir vinsælli skáldsögu Corneliu Funke sem greinir frá ævintýrum tveggja munaðarlausra drengja, Prosper og Bo. Þeir strjúka úr þrúgandi vist vondrar frænku og flýja til Feneyja þar sem þeir lenda á vergangi.

Bíó og sjónvarp

Stefán Karl talar íslensku í bandarískri stórmynd

Stefán Karl Stefánsson leikur á móti Ben Stiller og Owen Wilson. Ben Stiller hittir fyrir nokkra víkinga í myndinni og það vantaði því íslenskar víkingaraddir í myndina, segir Stefán Karl Stefánsson, leikari, sem mun láta í sér heyra í gamanmyndinni Night at the Museum sem skartar stórstjörnum á borð við Robin Williams, Owen Wilson, Ricky Gervais og Mickey Rooney.

Bíó og sjónvarp

Rokland kvikmynduð á næsta ári

Marteinn Þórsson, framleiðandi, skrifar undir samning þess efnis að hann skrifi kvikmyndahandrit eftir sögu Hallgríms Helgasonar, Rokland. "Það er rétt, ég skrifa undir samningin í dag og því er þetta í höfn,“ sagði Marteinn þegar Fréttablaðið innti hann eftir þessu.

Bíó og sjónvarp

Handhafar Eddu 2004

Edduverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn á hótel Nordica þann 14. nóvember 2004. Hlaut kvikmyndin Kaldaljós flest verðlaun. Heiðursverðlaun ÍKSA 2004 hlaut Páll Steingrímsson kvikmyndagerðarmaður fyrir langan og farsælan feril á sviði heimildamynda, með sérstaka áherslu á náttúru og umhverfi.

Bíó og sjónvarp

Takk fyrir

Takk fyrir þátttökuna. Nafn þitt fer nú pott og verður dregið úr nöfnum þátttakenda að lokinni kosningu. Einn heppinn þátttakandi fær miða fyrir tvo á verðlaunahátíð Eddunnar á Hótel Nordica sunnudaginn 13. nóvember. Haft verður samband við vinningshafa.

Bíó og sjónvarp

Latibær með flestar tilnefningar

Tilnefningar til Edduverðlaunanna voru kynntar á blaðamannafundi í hádeginu í dag. Latibær fær flestar tilnefningar eða fimm talsins; Strákarnir okkar, One Point O og Voksne mennesker fá fjórar hver og Stelpurnar og Reykjavíkurnætur þrjár hver. Önnur verk fá tvær eða færri. Stöð2 hlýtur flestar tilnefningar vegna sjónvarpsefnis.

Bíó og sjónvarp

Tilnefningar til Eddunnar: Heimildamynd ársins

Fimm myndir hlutu tilnefningu í flokknum "Heimildamynd ársins." RITHÖFUNDUR MEÐ MYNDAVÉL eftir Helgu Brekkan, RAGNAR Í SMÁRA eftir Guðnýju Halldórsdóttur, AFRICA UNITED eftir Ólaf Jóhannesson, UNDIR STJÖRNUHIMNI. eftir Helga Felixson og Titti Johnson og GARGANDI SNILLD eftir Ara Alexander.

Bíó og sjónvarp