
Innherji
Mest lesið
Telja að erlend fjárfestingaráform Íslandsbanka séu komin á ís
Líklegt er að Íslandsbanki hafi að minnsta kosti frestað áformum sínum um fjárfestingar í erlendri fjármálastarfsemi, að mati hlutabréfagreinanda, en mikil endurkaup eigin bréfa og hraður vöxtur erlendra útlána benda til þess að bankinn hafi breytt áherslum við ráðstöfun á umfram eigið fé. Þá mun hækkun sérstaks bankaskatts gera Íslandsbanka erfiðara um vik að ná arðsemismarkmiðum sínum til lengri tíma og setur bankann í lakari stöðu að því leyti en helstu keppinauta hans.
Fréttir í tímaröð
Hluthafar og nýir fjárfestar leggja Brandr til um 145 milljónir
Vörumerkjastofan Brandr hefur lokið við hlutafjáraukningu upp á um 145 milljónir króna. Núverandi hluthafar í fyrirtækinu lögðu fram nýtt fjármagn, en einnig komu inn í eigendahópinn nýir hluthafar frá Íslandi og Bretlandi.
Erlendir bókunarrisar sagðir taka til sín sífellt stærri hluta hagnaðarins
Vaxandi ítök alþjóðlegra bókunar- og sölusíðna þrengja verulega að kaupendastyrk íslenskra ferðaþjónustufyrirtækja og taka til sín stóran hluta tekna af erlendum ferðamönnum. Hjá dæmigerðu fyrirtæki í greininni er bein sala til ferðamanna aðeins talin nema um 15 til 30 prósentum af heildartekjum en um 70 prósent sölunnar fer í gegnum sölusíður, ferðaskrifstofur eða aðra milliliði.
Auknar vaxtatekjur sagðar „skammtíma hvalreki“ sem gangi til baka á næsta ári
Útlit er fyrir að hagnaður Íslandsbanka verði talsvert meiri á seinni hluta ársins en þeim fyrri, samkvæmt nýrri greiningu, meðal annars samhliða stærri efnahagsreikningi og jákvæðum áhrifum hagræðingaraðgerða. Vaxtatekjur hafa drifið afkomuna áfram en greinendur telja að hluti tekjuaukningarinnar sé skammtímaávinningur af mikilli verðbólgu sem gangi til baka þegar líður á næsta ár.
Kólnandi hagkerfi og háir vextir gætu reynt á viðnámsþrótt fjármálakerfisins
Óróleiki í alþjóðlegu efnahagslífi og hátt vaxtastig hér á landi samhliða minnkandi efnahagsumsvifum gæti „reynt á viðnámsþrótt“ fjármálakerfisins, að mati fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Hún beinir sem fyrr einnig sjónum sínum að stöðunni á húsnæðismarkaði, sem einkennist af raunverðslækkunum og lengri sölutíma eigna, og segir þá þróun geta reynt á fyrirtæki í byggingariðnaði og aukið vanskil.
Aukinn launakostnaður gæti kallað á enn frekara aðhald Seðlabankans
Þrátt fyrir vaxandi merki um kólnun í hagkerfinu, meðal annars á fasteignamarkaði, er útlit fyrir þráláta verðbólgu á komandi mánuðum og er þróunin á vinnumarkaði sögð geta ráðið miklu um hvort peningastefnunefnd Seðlabankans sjái ástæðu til frekara aðhalds. Spár flestra greinenda gera ráð fyrir að tólf mánaða verðbólgan hækki í nærri sex prósent í lok þessa mánaðar.
Myntbreyta
ISK
GBP
SEK
USD
EUR
NOK
DKK
JPY
Innviðasjóður setur sig í stellingar fyrir sölu á stórum hlut í HS Veitum
Innlendur framtakssjóður sem fjárfestir í innviðatengdum verkefnum, ásamt tveimur einkafjárfestum, hefur fengið til liðs við sig ráðgjafafyrirtæki vegna áforma um að selja umtalsverðan eignarhlut í HS Veitum. Lífeyrissjóðir eru taldir líklegir til að vilja halda hlut sínum í fyrirtækinu.
Meta Blikastaðalandið á 23 milljarða en óvíst hvort „ásættanlegt“ verð fáist
Verðmæti Blikastaðalandsins, sem er í eigu dótturfélags Arion, er metið á um 23 milljarða króna í nýju verðmati á bankanum. Landið var nýlega sett í söluferli en greinendur telja óvíst hvort ásættanlegt verð fáist fyrir það við núverandi markaðsaðstæður.
Íhlutun SKE sögð „varpa skugga“ á vaxtaráform Ása
Óvissa um möguleg inngrip Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum varpar skugga á sókn félagsins, að mati greinenda IFS, sem segja íhlutun eftirlitsins koma á óvart. Verðmat á félaginu helst óbreytt og er það talið talsvert undirverðlagt á markaði.
Áhersla ESB á miðstýringu er „viðvarandi áskorun“ fyrir EES-samninginn
Aukin miðstýring innan Evrópusambandsins, sem meðal annars er ætlað að efla samkeppnishæfni álfunnar, gæti skapað hættu á „viðvarandi áskorunum“ fyrir EES-samninginn og stöðu Íslands í alþjóðakerfinu, að mati varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Hann segir breytta heimsmynd kalla á að Ísland leiti sér alþjóðlegs skjóls en styrki um leið eigin viðnámsþrótt.
Alvotech rauk upp í milljarðaviðskiptum vísitölusjóða eftir lokun markaða
Miklar sveiflur urðu á gengi fyrirtækja í Kauphöllinni í gær í margra milljarða króna viðskiptum í uppboði eftir lokun markaða þegar erlendir sjóðir voru að endurstilla stöður sínar í samræmi við breytingar á vigt félaga í vísitölum FTSE. Stærstur hluti fjármagnsins streymdi inn í Alvotech og hlutabréfaverð félagsins rauk því upp.
Seðlabankar styðjast við fleiri mælikvarða en skilaboðin verða óskýrari
Seðlabankar víða um heim hafa í auknum mæli horfið frá því að horfa til eins tiltekins mælikvarða á undirliggjandi verðbólgu og styðjast þess í stað við safn ólíkra mælikvarða. Þótt það kunni að gefa betri mynd af verðbólguþrýstingi í hagkerfinu er hætta á því, samkvæmt nýrri greiningu, að skilaboðin verði óskýr og almenningur eigi erfiðara með að átta sig á hvaða mælikvarðar ráða mestu við vaxtaákvarðanir.
Heimilin halda að sér höndum og kortaveltan skreppur saman milli ára
Heimilin virðist vera farin að halda að sér höndum í neyslu en kortavelta Íslendinga, miðað við fast gengi og verðlag, dróst talsvert saman í liðnum mánuði. Verðbóguvæntingar á skuldabréfamarkaði lækkuðu eilítið í fyrstu viðskiptum í morgun.
Alvotech nálgast sitt hæsta gildi á árinu þegar verðmatsgengið var tvöfaldað
Það hefur orðið umtalsverður viðsnúningur í mati greinenda Barclays á Alvotech sem hafa tvöfaldað verðmat sitt á líftæknilyfjafélaginu og ráðleggja fjárfestum núna að vera yfirvigtaðir. Hlutabréfaverð Alvotech hefur rokið upp en greinendur segja að verulega hafi dregið úr áhættu í rekstrinum eftir að FDA lauk útttekt sinni á verksmiðjunni í Reykjavík.
Hækkun bankaskatts þurrkar út nærri tíu milljarða af verðmati Arion
Fyrirhuguð hækkun sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki lækkar verðmat Arion um nærri tíu milljarða króna, samkvæmt nýrri greiningu, en bankinn er eftir sem áður sagður á verulegum „afslætti“ miðað við verðlagningu norrænna banka á markaði. Með dekkri horfum í efnahagslífinu er útlit fyrir talsvert meiri virðisrýrnun af lánasafni Arion og það verði um fimm milljarðar á komandi ári.
Undirbúa risasölu á helmingshlut í HS Orku fyrir tugi milljarða
Breskur innviðasjóður hefur ákveðið að hefja undirbúning að mögulegri sölu á öllum helmingshlut sínum í HS Orku, þriðja stærsta raforkuframleiðanda Íslands, en verði af henni er ljóst að um yrði að ræða risastór viðskipti upp á tugi milljarða. Íslenskir lífeyrissjóðir eiga eftirstandandi hlut í orkufyrirtækinu og þurfa að setja sig í stellingar hvort þeir muni vilja nýta sér forkaupsrétt sinn.
Telja að hallinn geti orðið yfir fjörutíu milljarðar þrátt fyrir fyrirheit um afgang
Útlit er fyrir að afkoma ríkissjóðs á árinu 2027 verði umtalsvert lakari en lagt er upp með í nýju fjárlagafrumvarpi, að mati greinenda Acro, sem telja líklegustu sviðsmyndina vera halli upp á 43 milljarða. Forsendur frumvarpsins eru sagðar of bjartsýnar, „svo ekki sé fastar að orði kveðið“, miðað við hægari efnahagsumsvif og án frekari aðgerða sé erfitt að sjá hvernig markmið um fimm milljarða afgang geti gengið eftir.
Sendir röng skilaboð og hreyfir við verðbólguvæntingum á brothættum stað
Afleiðingarnar af því að boða hækkun á gjöldum ríkisins í samræmi við verðbólgu, sem hefur verið gert í síðustu tveimur fjárlagafrumvörpum, verða til þess að hreyfa við verðbólguvæntingum sem eru fyrir á „brothættum stað“, að sögn varaseðlabankastjóra, og að Seðlabankinn myndi gjarnan vilja sjá þetta endurhugsað. Hann segir jákvætt að aðhaldsstigið í ríkisfjármálum eigi að aukast á milli ára og varar við því að fara í meiri launahækkanir á vinnumarkaði, einkum núna þegar það er að myndast „mikill slaki í þjóðarbúinu.“
Seðlabankinn bætir í gjaldeyriskaupin þegar evran fór undir 140 krónu múrinn
Ekkert lát er á gengisstyrkingu krónunnar, meðal annars drifin áfram af góðum viðskiptakjörum í sumum útflutningsgreinum og innflæði í ríkisverðbréf, og í vikunni fór hún undir gildið 140 gagnvart evrunni í fyrsta sinn í fjögur ár. Seðlabankinn ákvað á sama tíma að bæta í reglubundin gjaldeyriskaup sín en segist samt telja að þau hafi „ekki teljandi áhrif“ á gengið við núverandi aðstæður.
Framkvæmdastjóri AGS varar við vítahring skulda, verðbólgu og hækkandi vaxta
Skuldir hins opinbera í heiminum stefna í að fara yfir hundrað prósent af landsframleiðslu innan áratugar og eru nú þegar þær mestu frá lokum síðari heimsstyrjaldar. Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við því að þrálát verðbólga og veik staða ríkisfjármála geti þrýst langtímavöxtum enn hærra og kallað á harðari peningastefnu hjá seðlabönkum margra ríkja.
Milljarðaútflæði og áfallið hjá Oculis minnkar slagkraft hlutabréfasjóða
Einn helsti hlutabréfasjóður Íslandssjóða, sem var með stórt veðmál á Oculis, hefur séð eignir sínar skreppa saman um rúmlega fjörutíu prósent það sem af er ári samhliða miklu útflæði og snarpri gengislækkun. Innlendir hlutabréfasjóðir sem beita virkri stýringu hafa allir átt undir högg að sækja undanfarið en samanlögð afkoma sjóðastýringafélaga stóð nánast í stað á fyrri árshelmingi.
Veltan erlendis tvöfaldast með kaupum á Haman Group og fleiri yfirtökur í pípunum
Með kaupum á Haman Group tekur Travel Connect sitt stærsta skref til þessa í alþjóðlegri uppbyggingu samstæðunnar og tvöfaldar veltuna sína erlendis. Stjórnendur félagsins ætla að halda áfram yfirtökum á erlendum mörkuðum en segja auknar álögur stjórnvalda með engum fyrirvara og takmarkaða vaxtarmöguleika valda því að fjárfestingar samstæðunnar nýtist nú betur erlendis en á Íslandi.
Telja samþættingu JBT og Marel ganga betur en vænst var
Þrátt fyrir áskoranir þá eru hlutabréfagreinendur bjartsýnni en áður á að JBT-Marel nái fram fyrirhugaðri samlegð og rekstrarbata eftir samruna félaganna, samkvæmt nýrri greiningu. Hlutabréfaverð fyrirtækisins er talið verulega undirverðlagt á markaði.
„Sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá ríkisstjórninni
Það „vekur furðu“ að ríkisstjórnin sé að endurtaka sömu mistökin frá því um áramótin með hækkunum á krónutölugjöldum sem ýtir undir verðbólguvæntingar og verðbólgu, að sögn sjóðstjóra á skuldabréfamarkaði, og kallar aðgerðirnar „sannkallað efnahagslegt og pólitískt sjálfsmark“ hjá stjórnvöldum. Aðhaldið sem er boðað í fjárlögunum er töluvert í sögulegu samhengi, með nokkuð minni útgjaldavexti milli ára en hefur sést að jafnaði síðasta áratuginn, en á móti benda greinendur á að viðsnúningurinn sem á að nást í afkomunni sé að litlum hluta vegna niðurskurðar eða aðhalds í rekstri.









