Fátt um varnir í tapi fyrir Norðmönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. júní 2017 19:40 Ómar Ingi var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk. vísir/getty
Ísland beið lægri hlut fyrir Noregi, 36-30, í fyrsta leik liðsins á Gjensidige Cup, fjögurra liða æfingamóti í Noregi. Fjölmarga sterka leikmenn vantar í íslenska liðið, þ.á.m. alla þá sem spila í Þýskalandi. Yngri og óreyndari leikmenn fá því tækifæri til að láta ljós sitt skína á mótinu. Leikurinn var jafn til að byrja með en í stöðunni 6-5 skoruðu Norðmenn átta mörk gegn tveimur og náðu góðri forystu sem þeir létu ekki af hendi. Ísland endaði fyrri hálfleik ágætlega en að honum loknum var staðan 19-15, Noregi í vil. Íslenska liðið náði aldrei að minnka muninn í meira en þrjú mörk í seinni hálfleik og Norðmenn unnu að lokum sex marka sigur, 36-30. Ómar Ingi Magnússon var markahæstur í íslenska liðinu með átta mörk. Ólafur Guðmundsson skoraði sex mörk, þar af fimm í fyrri hálfleik. Theodór Sigurbjörnsson, Arnar Freyr Arnarsson og Tandri Már Konráðsson skoruðu þrjú mörk hver. Sander Sagosen, Magnus Søndenå, Espen Lie Hansen og Magnus Jøndal skoruðu fimm mörk hver fyrir Noreg. Næsti leikur Íslands gegn Póllandi á morgun.Mörk Íslands: Ómar Ingi Magnússon 8, Ólafur Guðmundsson 6, Theodór Sigurbjörnsson 3, Arnar Freyr Arnarsson 3, Tandri Már Konráðsson 3, Vignir Stefánsson 2, Kári Kristján Kristjánsson 2, Gunnar Steinn Jónsson 2, Ýmir Örn Gíslason 1.Varin skot: Stephen Nielsen 8, Sveinbjörn Pétursson 5.
Handbolti Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Einmana á botninum í hléinu Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Atli Steinn kláraði Stjörnuna Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik „Sóknarleikurinn vel smurður“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Fimmti sigur Eyjakvenna í röð Fjórði sigur Valskvenna í röð Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Arnar með fleiri á tánum: „Hefðum alveg getað verið heppnari“ Samningur Arnars að renna út: „Vonandi ekki síðasta mótið“ Hópurinn sem fer til Rúmeníu á EM Svona var EM-fundur Arnars „Förum að gera klaufamistök og klikka á dauðafærum“ „Stemning í liðinu og traust“ Uppgjörið: Fram - Haukar 26-29 | Haukar enn með fullt hús Magnús Dagur tryggði fyrsta útisigur Eyjamanna síðan í september Ólíkt gengi hjá Íslendingaliðum í sama riðli í Meistaradeildinni Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Sjá meira