Írsk yfirvöld eru „innilega ósammála,“ úrskurði Framkvæmdastjórnar ESB um að bandaríski tæknirisinn þurfi að greiða 13 milljarða evra, um 1700 milljarða króna, vegna ógreiddra skatta í Írlandi að sögn fjármálaráðherra Írlands, Michael Noonan.
Segir hann að það liggi fyrir að Apple hafi greidd alla þá skatta sem fyrirtækinu hafi verið skylt að greiða á Írlandi og að Írland hafi ekki veitt Apple neina ríkisaðstoð.
Segir Noonan að hann muni sækjast eftir heimild frá ríkisstjórninni í Írlandi til þess að áfrýja úrskurðinum. Það sé mikilvægt til þess að viðhalda skattkerfi Írlands.
Sjá einnig: Apple skipað að greiða þúsundir milljarða vegna ógreiddra skatta í Írlandi
Apple var í dag skipað að greiða írskum yfirvöldum 13 milljarða evra vegna vangreiddra skatta þar í landi. Að mati ESB nýtti Apple sér úrskurði írskra yfirvalda til þess að lágmarka skattgreiðslur sínar þar í landi. Telur ESB það vera ígildi ólöglegrar ríkisaðstoðar.
Fyrirtækið nýtir sér þetta fyrirkomulag með því að beina stórum hluta tekna af alþjóðlegri sölu á vörum sínum í gegnum Írland.
Framkvæmdastjórn ESB segir að fyrirkomulagið hafi gert það að verkum að eitt árið hafi Apple til að mynda að eins greitt 50 evrur í skatt fyrir hverja milljón evrur sem fyrirtækið halaði inn í Evrópu.
