Snorri Steinn þarf í aðra aðgerð 25. nóvember 2008 16:03 Snorri Steinn stefnir á að fara í aðgerð á næstu dögum AFP
Landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson mun væntanlega fara í annan hnéuppskurð á næstu dögum til að láta fjarlægja beinflís úr hnénu á sér. Snorri, sem leikur með GOG í Danmörku, fór í aðgerð vegna sama vandamáls í september og fór svo í endurhæfingu og spilaði sinn fyrsta leik fyrir félagið fyrir nokkrum dögum. Fljótlega varð ljóst að ekki var allt með felldu og hefur Snorri nú fengið staðfest af lækni hér á landi að flísin í hnénu á honum er að öllum líkindum sú sama og mynduð var fyrr í haust. Þetta er grátleg niðurstaða fyrir Snorra sem fyrir vikið er væntanlega úr leik með GOG og landsliðinu fram í febrúar eða mars. Hann íhugar að fara í aðgerð heima á Íslandi í þetta sinn og það jafnvel á allra næstu dögum. "Þetta þýðir það auðvitað að þessi hluti tímabilsins er bara ónýtur. Það er ekki hægt að orða það öðruvísi. Það eru vonbrigði og erfitt að kyngja því að maður hafi farið í tilgangslausa aðgerð. Ég vona þá að ég verði bara tilbúinn í febrúar þegar skemmtilegasti hluti tímabilsins fer í gang," sagði Snorri í samtali við Vísi. GOG lenti í milliriðli með Ciudad Real, Kiel og Barcelona í Meistaradeildinni og því er ljóst að verðugt verkefni bíður danska liðsins á þeim vettvangi. Ciudad og Kiel hafa með sér tvö stig í milliriðilinn og GOG mætir ekki Ólafi Stefánssyni og félögum í Ciudad í milliriðli þar sem liðin léku saman í riðli í undanriðlum. Snorri fagnar því að leika í þessum ógnarsterka riðli. "Þessi riðill hefði alveg geta verið auðveldari, en á sama hátt hefði hann kannski ekki geta verið skemmtilegri. Ciudad Real og Kiel eru klárlega tvö bestu liðin í heiminum í dag og ég held að þurfi eitthvað mikið að gerast svo þau leiki ekki til úrslita," sagði Snorri.
Handbolti Mest lesið Hló að Haaland: Kom út úr vélinni með uppstoppaðan þvottabjörn Fótbolti Haaland stakk af og fagnaði ekki með fólkinu Fótbolti Segir engan Frakka vera í franska landsliðinu Fótbolti Uppgjör: Breiðablik-Keflavík 2-1 | Kristinn tryggði Blikum sigurinn Íslenski boltinn Lést aðeins nokkrum vikum eftir að hann var rekinn úr hópi HM-dómara Fótbolti Segja einn mann hafa séð um að aflétta banni Balogun Fótbolti Kærastan birti viðbjóðinn: Sörloth sagt að fremja sjálfsvíg eftir tapið á HM Fótbolti Lögreglan hefur hafið rannsókn á andláti HM-leikmannsins Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Sjáðu markasúpuna úr Bestu deildinni í gær Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Sjá meira