Tinna Rós Steinsdóttir

Fréttamynd

Í stærri kjól fyrir jól?

Nú nálgast jólin og fólk byrjað að huga að því að finna til uppáhaldssmákökuuppskriftirnar sínar, kafa eftir jólaskrautinu og velja jólagjafir handa nánustu vinum og aðstandendum.

Bakþankar
Fréttamynd

Ísland, eyjan í norðri!

Joey í Friends orðaði það vel með ódauðlegum orðum sínum "London baby!“ Greyið varð þó fyrir miklum vonbrigðum þegar yfir hafið var komið og vildi helst komast aftur heim til Bandaríkjanna þar sem allt var svo miklu betra.

Bakþankar
Fréttamynd

Ég er bara svo upptekin

"Vissir þú að stór hluti fólks á elliheimilum fær aldrei neinn í heimsókn til sín,“ sagði afi minn við mig í barnaafmæli í sumar. "Já, hugsaðu þér,“ svaraði ég hneyksluð á meðan ég hrósaði sjálfri mér í huganum fyrir að vera betri afkomandi en það.

Bakþankar
Fréttamynd

Samfélagið versus heimurinn

Það má ekki pissa bak við hurð, ekki henda grjóti oní skurð, hvorki skoða lítinn kall né gefa ketti drullumall og ekki segja ráddi heldur réði. Þessar eru á meðal þeirra lífsreglna sem okkur eru kenndar í Laginu um það sem er bannað, eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson.

Bakþankar
Fréttamynd

Ósjálfbjarga og elska það

Erlendur blaðamaður greip mig á rölti niður Laugaveginn á dögunum. Hún var að skrifa grein fyrir bandarískt tímarit um stefnumótamenningu Íslendinga og bað um mitt álit. Ég jós úr viskubrunni mínum á þessu sviði í dágóðan tíma og bölvaði því að riddaramennskan væri steindauð hérlendis. Þegar hún spurði mig af hverju ég héldi að það væri var ég þó alveg mát.

Bakþankar