Skroll-Fréttir

Fréttamynd

Fórnarlamb Ólafs Skúlasonar vill sannleiksnefnd

Sigrún Pálína Ingvarsdóttir skorar á þjóðkirkjuna að setja saman sannleiksnefnd til að komast til botns í máli Ólafs Skúlasonar en Sigrún segir Karl Sigurbjörnsson biskup og Hjálmar Jónsson sóknarprest hafa reynt að sannfæra hana um að láta af ásökunum sínum á hendur Ólafi árið 1996.

Innlent
Fréttamynd

Slitastjórn í mál við fyrrum bankastjóra

Slitastjórn Landsbankans ætlar að krefjast fjögur hundruð milljóna króna af fyrrverandi bankastjórum bankans, Sigurjóni Þ. Árnasyni og Halldóri J. Kristjánssyni, og millistjórnanda í bankanum, fyrir að hafa innleyst kaupréttasamninga nokkrum dögum fyrir hrun þrátt fyrir að þeir væru ekki innleysanlegir fyrr en um tveimur mánuðum síðar.

Innlent
Fréttamynd

Stórhættulegar slysagildrur á Klukkuvöllum

Íbúar á Klukkuvöllum í Hafnarfirði hafa ítrekað kvartað undan slæmum frágangi á byggingarlóðum í götunni. Eftir hrunið hafa húsgrunnar staðið ókláraðir, byggingarkranar eru orðin leiktæki krakkana í hverfinu og stór gryfja þar sem blokk átti að rísa er nú slysagildra við hlið leikskóla. Og fyrir ofan götuna má sjá glitta í ljósastaura og gangstéttir - en engin hús.

Innlent
Fréttamynd

Óstarfhæf ríkisstjórn

Formaður Sjálfstæðisflokksins segir ríkisstjórnina óstarfhæfa og hún ráði ekki við Magma-málið með neikvæðum áhrifum á atvinnulífið á Reykjanesi. Enginn meirihluti sé fyrir því á Alþingi að þjóðnýta HS Orku eins og Vinstri grænir virðist vilja.

Innlent
Fréttamynd

Vill stuðning ESB við krónuna

Utanríkisráðherra leggur áherslu á það í viðræðum Íslands við Evrópusambandið að krónan verði bökkuð upp af Seðlabanka Evrópu strax við aðild, áður en evran verði síðan tekin upp sem gjaldmiðill á Íslandi. Hann telur viðræðurnar taka lengri tíma en bjartsýnustu menn geri sér vonir um.

Innlent
Fréttamynd

Tilboð í Búðarhálsvirkjun opnuð í næstu viku

Landsvirkjun hyggst standa við þá áætlun að opna tilboð í smíði Búðarhálsvirkjunar í næstu viku, þrátt fyrir að óvissa ríki um fjármögnun. Enn hefur ekki tekist að koma neinum nýjum stórframkvæmdum í gang í landinu eftir efnahagshrunið.

Innlent
Fréttamynd

Skelfilegt að tapa fyrir EFTA-dómstól

Fjármálaráðherra segir að það yrði skelfileg staða ef Íslendingar töpuðu máli Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Icesave fyrir EFTA-dómstólnum. Stjórnvöld vinna nú að svari til eftirlitsstofnunarinnar og vona að samningaviðræður um Icesave hefjist að nýju í næsta mánuði.

Innlent
Fréttamynd

Skriftarbarn getur ekki bundið samvisku prestsins

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna greinar séra Geirs Waage og birtist í Morgunblaðinu í morgun. Þar sagði Sveinn að þagnarskylda presta gagnvart sóknarbörnum væri algjöra og þar væri engan milliveg að finna.

Innlent
Fréttamynd

Óð út í beljandi Krossá og bjargaði ferðamönnum

Björgunarsveitarmaðurinn Ásmundur Þór Kristmundsson bjargaði tveimur frönskum ferðamönnum úr sjálfheldu þegar hann óð út í Krossá, tók á móti Frökkunum úr bíl sem þeir voru fastir í og hjálpaði þeim í land.

Innlent