Ásta Guðrún Helgadóttir

Fréttamynd

Netöryggi og sam­skipti: Lyktar þú eins og phiskur?

Stafræna umbreytingin er á fullri ferð sem þýðir að við þurfum að læra á nýjar hættur. Ein stærsta ógnin sem bæði einstaklingar og fyrirtæki standa frammi fyrir í dag eru svikapóstar (phishing). Þessir póstar eru ýmist til þess fallnir að reyna að svíkja peninga af viðkomandi, komast inn í kerfi til að taka þau yfir, eða nálgast viðkvæmar eða leynilegar upplýsingar.

Skoðun
Fréttamynd

Tromp teflonhúðaða stjórn­mála­mannsins

Það eru hátt í 50 mál sem bíða afgreiðslu í þinginu á næsta haustþingi. Sum eru smávægileg og sátt ríkir um þau, önnur eru EES-innleiðingar sem við höfum ekki mikið um að segja á þessu stigi. Enn önnur eru kerfisbreytingar af þeirri stærðargráðu sem eitt stutt haustþing hefur varla umboð til þess að trukka í gegn.

Skoðun
Fréttamynd

Um fá­tækt stjórn­mála­manna

Það hefur borið á góma í umræðunni undanfarna daga að það eigi að teljast vera kostur að stjórnmálamenn séu fjár síns ráðandi, engum fjárhagslega háðir og í rauninni sé betra að eiga ríka stjórnmálamenn til að stjórna landinu fremur en efnaminni.

Skoðun
Fréttamynd

Til verndar höfundum eða milli­liðum?

Breytingar á höfundalögum eru í vændum og þá er vert að huga að þeim breytingum sem eiga sér stað. Endurskoðun laga um höfundarétt og afleidd réttindi hans er tímabær og einn hornsteina þeirra stjórnmálasamtaka sem ég tilheyri, Pírötum.

Skoðun
Fréttamynd

Að trúa á rit­skoðun

Þetta snýst ekki um klám. Þetta snýst um ritskoðun. Fyrir erlendar ríkisstjórnir lítur umræðan út eins og Ísland sé alvarlega að íhuga ritskoðun á internetinu. Við höfum heimildir fyrir því að þessi umræða hafi verið þess valdandi að ríkisstjórnir alræðisríkja hafa tekið upp á því að vitna í að í ljósi þess að Ísland sé að ritskoða sitt internet, þá hljóti nú að vera í lagi að þær ritskoði sitt aðeins meira. Ekkert bendir til þess að íslensk yfirvöld séu hæfari nú en nokkru sinni fyrr til að fara með slíkt ofurvald.

Skoðun