
Vöggustofur í Reykjavík

Býst við kolsvartri skýrslu
Formaður rannsóknarnefndar um Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins á áttunda áratugnum segist hafa fengið afar jákvæð viðbrögð við beiðni um að fólk lýsi reynslu sinni af starfsemi stofnunarinnar. Talsmaður fólks á Vöggustofum býst við jafn kolsvartri skýrslu um þetta tímabil og önnur sem hafa þegar verið rannsökuð.

Ítrekar afsökunarbeiðni til vöggustofubarna og fjölskyldna þeirra
Borgarstjóri ítrekar afsökunarbeiðni borgarstjórnar til barna og fjölskyldna þeirra sem sættu illri meðferð á vöggustofum í Reykjavík. Þá sé mikilvægt að Alþingi komi sér saman um lög um sanngirnisbætur til þeirra sem þar dvöldu.

Hið opinbera skuldi sér og öðrum mæðrum afsökunarbeiðni
Kona sem missti barn sitt á Vöggustofu vegna veikinda og var þar neitað um að umgangast það fer fram á að Reykjavíkurborg og aðrir opinberir aðilar sem komu að málinu biðji sig afsökunar. Fátækar, einstæðar og veikar mæður sem hafi misst börnin sína á slíkar stofnanir eigi inni afsökunarbeiðni frá hinu opinbera.

Frekari athugun verði gerð á meðferð vöggustofubarna
Þriggja manna nefnd óháðra sérfræðinga verður skipuð til að gera heildstæða athugun á starfsemi vöggustofu Thorvaldsenfélagsins á tímabilinu 1974 til 1979 en skýrsla sem gerð var um starfsemi hennar auk vöggustofunnar á Hlíðarenda sýndi fram á að börn sem þar dvöldu hefðu orðið fyrir varanlegum skaða vegna vistunarinnar.

Vöggustofubörn fá tíu sálfræðiviðtöl
Einstaklingar sem vistaðir voru á vöggustofunni að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins fá ókeypis sálfræðiþjónustu á kostnað borgarinnar. Þessi ákvörðun kemur í kjölfar niðurstaðna skýrslu um starfsemi vöggustofa í Reykjavík á árunum 1949 til 1973.

Tár féllu þegar borgarfulltrúar báðust afsökunar á illri meðferð
Ræður borgarfulltrúa á borgarstjórnarfundi í dag voru tilfinningaþrungnar en til umræðu var skýrsla vöggustofunefndar sem og tillaga að yfirlýsingu borgarstjórnar. Á ræðum og flutningi borgarfulltrúa mátti heyra að þeim þætti innihald skýrslunnar afar þungbært.

Fylgja eftir svartri skýrslu um vöggustofurnar
Borgarráð ætlar að fylgja eftir tillögum nefndar um málefni vöggustofa. Nefndin kynnti niðurstöðu sína í síðustu viku og benti á að vera barna á vöggustofum hafi haft veruleg áhrif á framtíð þeirra. Til að mynda væru lífslíkur þeirra einstaklinga minni en jafnaldra þeirra og þeir líklegri til að glíma við örorku.

Tengslarof barnaverndar, fyrr og nú
Kerfisbundið tengslarof barnaverndar gegn börnum og fjölskyldum þeirra á sér enn stað í dag árið 2023.

Ennþá raunveruleiki fyrir ættleiddu börnin okkar
Ég hlusta og les skelfilegar frásagnir frá vöggustofu. Sem betur fer er þetta ekki lengur raunin hér á íslandi.En á sama tíma eru börn að koma hingað til landsins sem hafa upplifað svipað, ættleidd börn þar á meðal ættleidda barnið mitt sem bjó á stofnun ekki langt frá því að vera eins og vöggustofan.

Furða sig yfir að rannsóknin nái ekki yfir allan tímann
Fólk sem var vistað á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins gagnrýnir að heimilið hafi ekki verið rannsakað allan þann tíma sem það starfaði. Vísbendingar séu um að börn hafi sætt illri meðferð þar allt til ársins 1979. Ráðherra býst við að sanngirnisbætur verði ákveðnar í vetur.

„Því miður entist þeim ekki aldur eins og fjölmörgum vöggustofubörnum“
Vöggustofubörn sættu illri meðferð að mati vöggustofunefndar. Þá virðast afdrif þeirra talsvert verri en annarra jafnaldra. Maður sem vistaður var á vöggustofu sem og einn þeirra fimmmenninga sem kallaði eftir því að starfsemin yrði rannsökuð segir niðurstöðuna áfellisdóm en henni fylgi þó líka mikill léttir.

Hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra
Einstaklingar sem voru sem börn á Vöggustofunni Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins hafa lifað skemur en jafnaldrar þeirra. Þá voru þeir einnig líklegri til að fara á örorku.

Bein útsending: Skýra frá athugun sinni á vöggustofunum
Nefnd sem hafði það verkefni að kynna sér starfsemi tveggja vöggustofa sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld mun kynna niðurstöðu skýrslu sinnar á blaðamannafundi í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Kaldar kveðjur forsætisráðherra
Nú liggja fyrir drög að frumvarpi Katrínar Jakobsdóttur, forsætisráðherra, til heildarlaga um sanngirnisbætur til vistheimilabarna sem urðu fyrir varanlegum líkamlegum, sálrænum eða félagslegum skaða vegna illrar meðferðar meðan á vistun þeirra stóð.

Heyrir einhver til mín?
Fyrir ekki svo löngu síðan var ill meðferð á börnum á vöggustofum uppúr miðri síðustu öld afhjúpuð í fjölmiðlum og, eðlilega, krafist rannsóknar og yfirbóta.

„Þetta varð alltaf verra og verra“
Talið er að um fimm þúsund börn hafi dvalið á um þrjátíu vistheimilum á vegum hins opinbera frá síðustu öld. Þá er ótalið öll þau börn sem dvöldu á sveitabæjum. Nú hafa sanngirnisbætur verið greiddar eða eru á leiðinni fyrir dvöl á næstum öðru hverju heimili. Umsjónarmaður sanngirnisbóta segir að algjört eftirlits-og stefnuleysi hafi ríkt í málaflokknum á sínum tíma. Það sé því miður raunin að nokkru leyti ennþá.

Hefja athugun á starfsemi tveggja vöggustofa
Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að skipa nefnd um heildstæða athugun á starfsemi vöggustofu að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins. Börn sem dvöldu á vöggustofunum hafa bent á að sum barna hafi hlotið varanlega skaða vegna rofs á tilfinningalegum þroska þeirra.

Léttir að yfirvöld viðurkenni að brotið var á þeim
Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að greiða fólki sem dvaldi á barnaheimili á Hjalteyri á síðustu öld sanngirnisbætur. Nú þegar liggi fyrir nægar sannanir um að þau hafi verið beitt þar gríðarlegu ranglæti. Maður sem dvaldi á Hjalteyri ásamt systkinum sínum segist klökkur, léttir sé að stjórnvöld hafi ákveðið að hlusta.

Opið bréf til Borgarstjórnar Reykjavíkur
Réttlæti gerir eftirfarandi athugasemdir við vinnubrögð í tengslum við „Frumvarp til laga um heimild Reykjavíkurborgar til að skipa nefnd til að kanna starfsemi vöggustofa“

Opið bréf til borgaryfirvalda
Nauðsynlegar spurningar í fyrirhugaðri rannsókn Reykjavíkurborgar á starfsemi vöggustofa að mati Réttlætis.

Samþykktu að ráðast í úttekt á vöggustofum
Borgarráð samþykkti í dag að setja á stofn þriggja manna sérfræðinganefnd til að ráðast í heildstæða athugun á starfsemi Vöggustofunnar að Hlíðarenda og Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins sem reknar voru í Reykjavík á síðustu öld.

Hvað á að gera við smábörn?
Þegar ég les „gleðifréttir” um væntanlega fjölgun leikskólaplássa fyrir ungbörn veit ég ekki hvort ég á að hlæja eða gráta.

Glíma enn við afleiðingar alvarlegrar vanrækslu á vöggustofu
Systkini sem voru fóstruð á Vöggustofu Thorvaldsenfélagsins sem ungbörn segjast enn glíma við afleiðingar alvarlegrar vanrækslu sem þau urðu fyrir þar. Þau segja nauðsynlegt að borgin rannsaki allan þann tíma sem stofnunin starfaði. Þau segja að systkini sín hafi þurft að þola mikið andlegt og líkamleg ofbeldi árum saman fósturheimili á Hjalteyri. Það hafi aldrei verið rannsakað.

Hörmulegar afleiðingar vöggustofanna: Brotið sjálfsmat, höfnunarótti og einræna
Fimm manna hópur manna sem var vistaður á vöggustofum og á fleiri opinberum uppeldisstofnunum á vegum Reykjavíkurborgar eftir miðbik síðustu aldar fundaði með borgarstjóra í dag. Þeir lýsa skaðlegum áhrifum dvalar sinnar á stofnunum í viðtali við fréttastofu eftir fundinn.

Vilja að borgin rannsaki starfsemi vöggustofa
Fimm karlmenn sem voru vistaðir á vöggustofum sem reknar voru á vegum Reykjavíkurborgar á síðustu öld krefjast þess að borgaryfirvöld rannsaki starfsemi þeirra og afleiðingar hennar á börn. Þeir segja að vistunin á vöggustofunum hafi valdið þeim og fjölskyldum þeirra skaða.