Landslið karla í handbolta

Viktor Gísli meiddur og ekki með gegn Grikkjum
Viktor Gísli Hallgrímsson, markvörður Nantes í Frakklandi, hefur dregið sig út úr íslenska landsliðshópnum í handbolta vegna meiðsla.

Kláraði háskólanám meðfram atvinnumennsku: „Hefði verið synd að láta þetta sitja á hakanum“
Viggó Kristjánsson, landsliðsmaður í handbolta, útskrifaðist á dögunum úr námi í þroskaþjálfafræði við Háskóla Íslands.

Aldís Ásta: Leiðinlegt að vera ekki valin á HM en gott að vera komin aftur
Aldís Ásta Heimisdóttir spilar sem atvinnumaður hjá sænska félaginu Skara og þekkir því vel sænska handboltann.

Aron og Bjarki fá frí þegar strákarnir okkar mæta Grikkjum
Snorri Steinn Guðjónsson hefur valið átján leikmenn í landsliðshóp sinn sem mætir Grikklandi ytra í tveimur vináttulandsleikjum í landsliðsvikunni 11.-17. mars.

Sýndu rússíbana Bjögga: Reiði, gleði, virðing á nokkrum sekúndum
Við Íslendingar þekkjum vel við hinn litríka markvörð Björgvin Pál Gústavsson og skemmtilegt myndband með kappanum birtist á miðlum evrópska handboltasambandsins.

Strákarnir okkar enn í efsta styrkleikaflokki
Íslenska karlalandsliðið í handbolta verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni EM 2026.

Félag Donna dæmt en hann kveður: „Erum nokkuð fúlir yfir þessu“
Kristján Örn Kristjánsson, Donni, hefur ekki æft handbolta frá því á EM vegna meiðsla í öxl. Félag hans PAUC í Frakklandi stendur frammi fyrir því að verða dæmt niður um deild en það kemur ekki að sök fyrir Donna sem rær á ný mið í sumar.

Óðinn fær samkeppni um mark ársins frá franskri konu
Franska handboltakonan Lucie Granier skoraði magnað mark í Meistaradeildinni um helgina og mark sem fékk um leið samfélagsmiðla til að rifja upp frábært mark íslenska landsliðsmannsins Óðins Þór Ríkharðssonar frá því á EM í Þýskalandi.

Ásmundur Einar: „Formleg yfirlýsing um pólitískan stuðning“
Stjórnvöld hafa lýst yfir stuðningi sínum við umsókn sameiginlegs framboðs Íslands, Danmerkur og Noregs um að halda HM í handbolta karla 2029 eða 2031.

Gísli Þorgeir valinn sá fjórði besti í heimi
Handboltasérfræðingarnir Stig Aa. Nygård og Rasmus Boysen völdu fimmtíu bestu handboltamenn heims í gær eins og þeir gera árlega og Ísland á tvo leikmenn í þessum nýjasta hópi bestu handboltamanna heims.

Ísland mætir Eistlandi eða Úkraínu í umspili fyrir HM
Ísland mun spila tvo umspilsleiki við annað hvort Eistland eða Úkraínu um sæti á HM í handbolta 2025.

„Aldrei á mínum handboltaferli verið jafn svekktur og sár“
Bjarki Már Elísson er tilnefndur sem einn af bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann sjálfur er ekki sáttur með frammistöðu sína á mótinu.

Hafa aldrei klúðrað svo mörgum vítum á einu EM en einn toppar Ómar
Það kemur kannski ekki mörgum á óvart en íslenska karlalandsliðið í handbolta hefur aldrei verið með verri vítanýtingu á einu Evrópumóti en einmitt á mótinu í Þýskalandi sem kláraðist hjá íslenska landsliðinu á miðvikudaginn.

Reiknuðu út að dauðafærin hefðu átt að skila Íslandi í undanúrslitin á EM
Íslenska handboltalandsliðið hefði ekki aðeins komist í umspilið um sæti á næstu Ólympíuleikum heldur hefði líklegast einnig spilað um verðlaun á Evrópumótinu ef liðið hafði nýtt dauðafærin sín á mótinu í Þýskalandi.

EHF heldur áfram að koma á óvart: Bjarki líka tilnefndur í lið mótsins
Bjarki Már Elísson var einn af sex bestu vinstri hornamönnum Evrópumótsins í handbolta en hann er tilnefndur í úrvalsliðið af EHF, evrópska handboltasambandinu.

Ómar Ingi tilnefndur sem besta hægri skytta Evrópumótsins
Íslendingar eru kannski ekki sáttir með frammistöðu Ómars Inga Magnússonar með íslenska landsliðinu á Evrópumótinu í handbolta en hæstráðendur hjá evrópska sambandinu sjá hlutina ekki alveg með sömu augum.

„Sá á öllu fasi hans hvað þetta skipti hann ógeðslega miklu máli“
Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, átti flott fyrirliðamót og leiddi íslenska liðið á Evrópumótinu í handbolta. Aron fékk líka hrós frá strákunum í Besta sætinu.

EM í dag: Hundfúlir með niðurstöðuna
Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar. Þátttöku strákanna okkar á EM 2024 er lokið. Árangurinn var ekki góður og frammistaða liðsins langt frá þeim væntingum sem voru gerðar.

Danskur sérfræðingur gagnrýnir Elliða
Danski handboltasérfræðingurinn Peter Bruun Jørgensen gagnrýndi Elliða Snæ Viðarsson eftir sigur Íslands á Austurríki á EM í gær og sakaði hann um óíþróttamannslega hegðun.

Bjarni gaf Ómari Inga ráð eftir „glatað mót“
Ómar Ingi Magnússon á ekki aðeins að vera besti leikmaður íslenska liðsins heldur einn besti handboltamaður heims. Hann var hins vegar langt frá því á Evrópumótinu sem endaði hjá íslenska handboltalandsliðinu í gær.

Segir að Bjarki hafi skipt sjálfum sér út af
Frammistaða Bjarka Más Elíssonar var til umræðu í Besta sætinu, hlaðvarpi íþróttadeildar Sýnar, og menn veltu fyrir sér hvort hann hefði skipt sjálfum sér út af í leiknum gegn Austurríki.

Myndasyrpa frá síðasta leik mótsins
Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur í síðasta leik Evrópumótsins gegn Austurríki í gær. Eftir úrslit gærdagsins er mótinu lokið hjá Íslandi og draumur liðsins um að komast á Ólympíuleikana er úti.

Skýrsla Sindra: Þeir voru svo sannarlega veikir
Á einhvern ótrúlegan hátt enn með góða von um að komast á Ólympíuleika, langt yfir á móti bensínlausum Austurríkismönnum, undirstrikuðu strákarnir okkar það sem komið hefur í ljós á EM. Að það er eitthvað stórkostlega mikið að og í dag er Ísland veikt lið.

Umfjöllun: Frakkland - Ungverjaland 35-32 | Engin hjálp í Ungverjum og Ólympíudraumurinn úr sögunni
Íslenska karlalandsliðið í handbolta á ekki lengur möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París. Þetta var ljóst eftir sigur Frakklands á Ungverjalandi, 35-32, í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag.

Viktor með tárin í augunum eftir leik: „Þetta er ógeðslega svekkjandi“
Viktor Gísli Hallgrímsson varði frábærlega í fyrri hálfleiknum á móti Austurríki en náði ekki að fylgja því eftir í þeim síðari. Þrátt fyrir tveggja marka sigur var íslenski markvörðurinn með tárin í augunum eftir leikinn.

„Ég á helling inni og þarf að gera betur“
Ómar Ingi Magnússon var niðurlútur þrátt fyrir tveggja marka sigur Íslands gegn Austurríki í lokaleik íslenska karlalandsliðsins í handbolta á Evrópumótinu í Þýskalandi þetta árið, 26-24.

Einkunnir Strákanna okkar á móti Austurríki: Sigvaldi góður en Bjarki brást
Íslenska karlalandsliðið í handbolta vann tveggja marka sigur á Austurríki, 24-26, í lokaleik sínum í milliriðli 1 á EM í Þýskalandi í dag. Afleit byrjun á seinni hálfleik gerði úti um vonir Íslands á að vinna nógu stóran sigur til að komast beint í forkeppni Ólympíuleikanna.

„Algjör viðbjóður og ógeðslegt að kyngja því“
„Við vorum bara með þetta fyrsta hálftíman,“ sagði Aron Pálmarsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í handbolta eftir tveggja marka sigur liðsins gegn Austurríki í dag, 26-24.

Tölfræðin á móti Austurríki: Skoruðu ekki mark í rúmar þrettán mínútur
Íslenska landsliðið hefur átt marga slæma kafla á Evrópumótinu í ár en fáir voru þó verri en byrjunin á seinni hálfleiknum í dag.

Samfélagsmiðlar um leik Íslands gegn Austurríki: Seinni hálfleikur vonbrigði
Íslenska landsliðið vann tveggja marka sigur gegn Austurríki 24-26 í síðasta leik í milliriðli á EM karla í handbolta. Aðdáendur íslenska landsliðsins fóru yfir leikinn og létu skoðanir sínar í ljós á samfélagsmiðlum.