Stéttarfélög „
1 2 3 4 5 6 … 39 ›
„Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að svo virðist vera sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hafi hana á heilanum. Hún segir ósætti þeirra á milli algjöra einstefnugötu, ekkert sé til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka sem til hafi komið eftir samningaviðræður VR og Samtaka atvinnulífsins. Innlent 11.10.2026 12:25
„Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Formaður Starfsgreinasambandsins segist hafa áhyggjur af stöðunni innan Alþýðusambands Íslands en ársþing sambandsins hefst í næstu viku. Vilhjálmur Birgisson var gestur á Sprengisandi í morgun þar sem hann fór yfir atburðarásina í vikunni þegar kjarasamningar voru framlengdir. Innlent 11.10.2026 12:00
Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar segist telja Höllu Gunnarsdóttur formann VR munu gera tilraun til að sölsa undir sig Alþýðusambands Íslands á aðalþingi sambandsins í næstu viku. Hún segir Höllu hafa komist upp með að draga Samtök atvinnulífsins og stjórnvöld á asnaeyrum án afleiðinga, þvert á móti hafi hún verið verðlaunuð fyrir það í stað þess að trúnaði væri haldið við forystu verka- og láglaunafólks. Því muni fylgja alvarlegar afleiðingar. Innlent 10.10.2026 15:27
„Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Formaður Starfsgreinasambandsins segir að „fjölmiðlasirkus“ Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR, hafi ekki skilað félagsmönnum hennar betri kjörum heldur en Breiðfylkingin svokallaða samdi um fyrr í vikunni. Breiðfylkingin hafi tryggt styttri samningstíma á meðan stytting í samningum VR sé háð verðbólgu. Innlent 8.10.2026 19:08
Ekki rétt sem Halla segir Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri SA segir ekki rétt að SA og fyrirtækin sem þau eru í forsvari fyrir hafi ekki komið til móts við stéttarfélögin í þeirri von um að halda kjarasamningum. Forsvarsfólk VR, Rafiðnaðarsambands Íslands og Fagfélaganna funda nú með SA. Félögin hafa heimild til þess að rifta kjarasamningum en frestur til þess að gera það rennur út klukkan 16. Innlent 8.10.2026 14:01
Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Forsætisráðherra hefur reynt að hafa milligöngu um lausn í kjaradeilunni við Samtök atvinnulífsins, að sögn Höllu Gunnarsdóttur, formanns VR. Hún segir viðleitnina vel metna en stöðuna enn óbreytta. Verið sé að prenta út og undirrita skjöl vegna uppsagna kjarasamninga. Innlent 8.10.2026 12:08
Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Samkomulag náðist á milli VR, Fagfélaganna og LÍV annars vegar og Samtaka atvinnulífsins hins vegar um að kjarasamningar héldu rétt fyrir klukkan fjögur í dag eða í þann mund sem frestur til að segja þeim upp vegna forsendubrests rann út. Vísir fylgist með þróun mála í fréttavakt. Innlent 8.10.2026 10:54
Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag. Innlent 8.10.2026 08:04
Samþykktu að slíta kjarasamningum Stjórn VR hefur ákveðið að slíta kjarasamningum á morgun. Formaðurinn segir að samningar myndu þá renna út í lok mánaðar en þetta geti haft í för með sér að opinberu stéttarfélögin megi einnig segja upp sínum samningum. Innlent 7.10.2026 22:03
SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Hluti starfsmanna Samtaka atvinnulífsins heldur á morgun í árshátíðarferð til eyjunnar Hvar við strendur Króatíu, sama dag og frestur til þess að slíta kjarasamningum rennur út. Innlent 7.10.2026 15:53
Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Formaður VR segir stöðuna í viðræðum félagsins við Samtök atvinnulífsins grafalvarlega og útlit sé fyrir að þær séu leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA segir stál í stál eins og sakir standa. Innlent 7.10.2026 14:20
Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Formaður Eflingar segir það glapræði að hafna tæplega fimm prósenta launahækkun sem sé væntanleg í janúar samkvæmt núgildandi kjarasamningum. Hún segir það setja þau í undarlega stöðu ætli VR að efna til átaka á vinnumarkaði. Formaður VR gefur lítið fyrir þessi ummæli og reynir félagið nú að ná lendingu með Samtökum atvinnulífsins í Karphúsinu. Innlent 7.10.2026 12:09
Fundur VR og SA hafinn Fulltrúar VR og Rafiðnaðarsambands Íslands eru mættir í húsakynni ríkissáttasemjara til að funda með fulltrúum Samtaka atvinnulífsins, sem voru örlítið seinir. Innlent 7.10.2026 09:45
Uggandi yfir afstöðu VR Ákvörðun peningastefnunefndar um að halda stýrivöxtum óbreyttum kom aðalhagfræðingi Íslandsbanka ekki á óvart. Hann segir ljóst að áframhaldandi þétt taumhald peningastefnu hafi tilætluð áhrif á hagkerfið, sem fari hratt kólnandi. Hann hafi þó áhyggjur af því að VR og tengd félög virðist ekki ætla að fylgja fordæmi breiðfylkingar stéttarfélaga og koma í veg fyrir að kjarasamningar slitni. Viðskipti innlent 7.10.2026 09:41
Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst. Innlent 7.10.2026 08:08
Framlengja samninga út næsta ár Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn hafa gert samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga. Samkomulagið felur í sér að kjarasamningar halda gildi sínu út næsta ár og var skrifað undir það í kvöld. Innlent 6.10.2026 23:04
Bíði og bíði eftir Bjarna Það virðist vera langt á milli húsa í Borgartúninu, að sögn formanns VR, sem segist hafa beðið eftir því að fulltrúar Samtaka atvinnulífsins mæti til fundar í karphúsinu frá því klukkan 13. Innlent 6.10.2026 16:32
Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Talsmenn Samtaka atvinnulífsins og VR funduðu um forsendur kjarasamninga í morgun. Formaður VR segir samtalið efnismeira en áður þó að enn sé talsverð gjá á milli og hætta á að samningar falli. Ögurstund er í kjaramálum. Innlent 6.10.2026 12:11
Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Stjórn VR og samninganefnd LÍV hafa fengið óskorðað umboð til þess að segja upp kjarasamningum. Formaður VR segir afstöðuna afgerandi. Forsvarsmenn VR funda með Samtökum atvinnulífsins á morgun og vonast til að lausn finnist í málinu. Innlent 5.10.2026 21:30
Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Einróma samþykki var um að segja upp kjarasamningum á fimmtudag að öllu óbreyttu á fundi Fagfélaganna sem fór fram í kvöld. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir niðurstöðuna vera skýra en að félögin séu meðvituð um að vilja leita allra leiða til þess að komast að niðurstöðu þangað til á fimmtudag næstkomandi þegar frestur til að segja upp kjarasamningum rennur út. Innlent 5.10.2026 19:46
Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Formaður VR segir viðbragðsleysi hafa einkennt aðkomu Samtaka atvinnulífsins (SA) að forsendubresti kjarasamninga og að raunveruleg hætta sé á að þeim verði sagt upp í kjölfar fundar stjórnar VR og trúnaðarráðs þess. Innlent 5.10.2026 18:13
SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Tekin verður ákvörðun um það í dag hvort kjarasamningum VR og Fagfélaganna verði sagt upp. Formaður Rafiðnaðarsambandsins segir að Samtök atvinnulífsins hafi skilað auðu og segir að verði ákveðið að segja kjarasamningum upp muni það hafa gríðarlega víðtæk áhrif. Innlent 5.10.2026 13:34
Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Trúnaðarráð VR og stjórn félagsins munu koma saman til funda síðdegis í dag þar sem farið verður yfir stöðuna og næstu skref vegna forsendubrests kjarasamninga. Stjórn VR, sem jafnframt er samninganefnd félagsins, fundar í kjölfarið og tekur afstöðu til þess hvort segja eigi upp kjarasamningum, komi ekki til viðunandi viðbragð frá SA. Viðskipti innlent 5.10.2026 10:26
Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Fagfélögin hafa boðað trúnaðarmenn og fulltrúa í samninganefndum aðildarfélaganna til fundar á mánudag til að kalla eftir heimild þeirra til að segja upp kjarasamningum. Innlent 2.10.2026 16:29
Gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða VR, LÍV og Fagfélögin gera alvarlegar athugasemdir við málflutning Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra í viðtali sem birt var fyrr í dag, miðvikudaginn 30. september, á Vísi. Þau segja málflutning ráðherrans ríma illa við þá stöðu sem blasi við launafólki og að hann vinni gegn því. Innlent 30.9.2026 15:36
Fulltrúi prentara vill verða forseti ASÍ Georg Páll Skúlason, formaður GRAFÍU, stéttarfélags í prent- og miðlunargreinum, ætlar að bjóða sig fram til forseta Alþýðusambandsins á þingi þess í næsta mánuði. Hann segist leggja áherslu á samstöðu innan sambandsins. Innlent 29.9.2026 10:20
Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Elva Hrönn Hjartardóttir, fyrrverandi frambjóðandi til formanns VR, sakar Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, um að hafa hrakið hana úr starfi eftir að þau tókust á um formannsembætti VR árið 2023. Hún gleymi aldrei svip Ragnars þegar hún tilkynnti honum um framboðið en hatur hafi skinið úr andliti hans. Ragnar og stuðningsmenn hans hafi gert allt til að sverta mannorð hennar og var það ekki hennar ákvörðun að segja skilið við VR eftir sigur Ragnars. Innlent 26.9.2026 14:27
Freyr látinn fara frá Eflingu Freyr Rögnvaldsson upplýsingafulltrúi Eflingar var látinn fjúka á stuttum fundi í morgun. Perla Ösp Ásgeirsdóttir framkvæmdastjóri Eflingar segir að uppsögn hans hafi ekkert með ESB eða nýafstaðna þjóðaratkvæðagreiðslu að gera. Innlent 25.9.2026 12:38
Prís neitar að frysta verð en heldur verði áfram lágu Lágvöruverðsverslunin Prís mun ekki verða við ákalli verkalýðshreyfingarinnar um að halda aftur af verðhækkunum vegna verðbólgunnar sem nú geisar. Að sögn Prís er ástæðan einföld, fyrir Prís sé lágt verð ekki tímabundin aðgerð heldur einföld og skýr stefna. Neytendur 25.9.2026 11:16
Flugvirkjar aflýsa verkfalli Flugvirkjafélag Íslands hefur ákveðið að aflýsa verkfalli sínu. Þetta staðfestir Óskar Einarsson, formaður félagsins, í samtali við Vísi. Innlent 23.9.2026 11:13