
Sambandsdeild Evrópu

Jón Guðni og félagar með bakið upp við vegg fyrir seinni leikinn
Jón Guðni Fjóluson og félagar hans í sænska liðinu Hammarby heimsóttu svissneska liðið Basel í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Tvö mörk heimamanna á lokamínútunum tryggðu þeim 3-1 sigur og Hammarby hefur því verk að vinna í seinni leik liðanna.

Allt jafnt fyrir seinni leik Alfons Sampsted og félaga í Bodø/Glimt
Alfons Sampsted og félagar hans í norska liðinu Bodø/Glimt heimsóttu litháíska liðið Zalgiris í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í dag. Það stefndi allt í sigur Bodø/Glimt, þar til að Zalgaris jafnaði metin í uppbótartíma. Lokatölur 2-2.

Blikabanarnir Aberdeen þurfa á sigri að halda í seinni leiknum
Skoska liðið Aberdeen sló Breiðablik út í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Þeir heimsótti Qarabak frá Aserbaídsjan í fyrri leik liðanna um laust sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar og þurftu að sætta sig við 1-0 tap.

Sjáðu mörkin er Blikar féllu úr leik í Skotlandi
Breiðablik tapaði með eins marks mun gegn Aberdeen í síðari leik liðanna í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu. Aberdeen vann einvígið samtals 5-3 en Blikar stóðu svo sannarlega upp í hárinu á einu besta liði Skotlands.

Óskar Hrafn: Fengum færin til að komast yfir
Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Breiðabliks var ánægður með frammistöðu sinna manna í einvíginu gegn Aberdeen í Sambandsdeild Evrópu þar sem Skotarnir fóru áfram eftir 5-3 sigur samanlagt.

Umfjöllun: Aberdeen - Breiðablik 2-1 | Blikar úr leik eftir tap í Skotlandi
Breiðablik er úr leik í Sambandsdeild Evrópu eftir 2-1 tap gegn Aberdeen á útivelli í kvöld. Skotarnir vinna einvígið samanlagt 5-3 og fara áfram í umspilsleiki um sæti í riðlakeppni Sambandsdeildarinnar.

Björn Bergmann tryggði Molde framlengingu en tapaði í vítaspyrnukeppni
Björn Bergmann Sigurðarson og félagar hans í Molde tóku á móti Trabzonspor í seinni leik liðanna í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. Grípa þurfti til framlengingar og vítaspyrnukeppni til að skera úr úm sigurvegara eftir að endaði 1-1 eftir venjulegan leiktíma, þar sem að gestirnir höfðu betur.

Alfons Sampsted og félagar snéru einvíginu við og eru komnir áfram
Alfons Sampsted spilaði allan leikinn í liði Bodø/Glimt sem tók á móti Prishtina frá Kósovó í seinni viðureign liðanna í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Prishtina unnu fyrri leikinn 2-1, en Alfons og félagar höfðu nú betur á heimavelli, 2-0, og unnu því einvígið samtals 3-2.

Öll íslensk lið nema eitt hafa tapað á Pittodrie í Aberdeen: Sir Alex Ferguson sá ekki að þar færu áhugamenn
Breiðablik verður í kvöld fimmta íslenska liðið til að spila Evrópuleik á Pittodrie leikvanginum í Aberdeen og aðeins eitt hinna fjögurra tókst að ná í úrslit.

Hafa selt 13 þúsund miða fyrir leikinn við Breiðablik
Skoska liðið Aberdeen býst við fleiri áhorfendum en sést hafa í langan tíma á Pittodrie-vellinum er Breiðablik kemur í heimsókn annað kvöld. Liðin eigast við í síðari leik einvígis síns í þriðju umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu en Aberdeen leiðir einvígið 3-2.

Hólmar Örn og félagar í Rosenborg fóru örugglega áfram í Sambandsdeildinni
Hólmar Örn Eyjólfsson og félagar hans eru komnir áfram í sambandsdeildinni eftir 2-1 sigur gegn Domzale frá Slóveníu. Rosenborg vann fyrri leikinn 6-1 og því samanlagður sigur norska liðsins 8-2.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Aberdeen 2-3 | Blikar hafa verk að vinna
Breiðablik tók á móti Aberdeen á Laugardalsvelli í fyrri leik liðanna í 3. umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld. Lokatölur 3-2 sigur Aberdeen og þeir fara því með eins marks forskot í seinni leik liðaanna að viku liðinni.

Óskar Hrafn: Gerðu enga tilraun til að spila fótbolta
Breiðablik þarf að vinna Aberdeen með tveimur mörkum út í Skotlandi í næstu viku ætli þeir sér áfram í Sambandsdeildinni en þeir töpuðu leiknum 2-3 þar sem mörk í upphafi beggja hálfleika gerðu þeim ansi mikla skráveifu. Þrátt fyrir úrslitin geta Blikar verið bjartsýnir á að ná í þessi úrslit í næstu viku því frammistaða þeirra á löngum köflum var frábær.

Alfons Sampsted og félagar í Bodø/Glimt þurfa sigur í seinni leiknum
Alfons Sampsted og félagar hans í Bodø/Glimt þurfa á sigri að halda í seinni viðureign liðsins gegn Pristhina frá Kósovó eftir 2-1 tap á útivelli í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í kvöld.

Hólmar Örn og félagar með stórsigur í Sambandsdeildinni
Hólmar Örn og félagar hans í Rosenborg eru svo sannarlega í góðum málum eftir 6-1 sigur gegn slóvenska liðinu Domzale í þriðju umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu.

Ögmundur enn utan hóps og Sverrir Ingi sömuleiðis
Hvorugur landsliðsmannana tveggja, Ögmundar Kristinssonar né Sverris Inga Ingasonar, voru í leikmannahópi sinna liða er þau kepptu í Evrópukeppnum karla í fótbolta í kvöld. Hvorugt liðanna fagnaði sigri.

Nýjar reglur í Skotlandi þýða að Blikar geta spilað fyrir fullum velli
Nicola Sturgeon, forsætisráðherra Skotlands, tilkynnti í dag um breytingar á reglum vegna kórónuveirufaraldursins í Skotlandi. Dregið verður úr fjöldatakmörkunum á íþróttaviðburðum að því gefnu að ákveðin skilyrði séu uppfyllt. Reglurnar taka gildi fyrir leik Breiðabliks við Aberdeen ytra í næstu viku.

Breiðablik mætir Aberdeen á Laugardalsvelli
Fyrri leikur Breiðabliks og Aberdeen í 3. umferð forkeppni forkeppni Sambandsdeildar Evrópu fer fram á Laugardalsvelli þar sem Kópavogsvöllur stenst ekki kröfur UEFA.

Blikar til Kýpur eða Aserbaídsjan?
Dregið var í næstu umferðir Evrópukeppnanna í dag og þar kom í ljós hverjum Breiðablik gæti mætt, komist liðið áfram úr einvíginu við Aberdeen.

Óvíst hvort Blikar fái að leika á heimavelli gegn Aberdeen
Óvissa ríkir um hvort heimaleikur Breiðabliks gegn Aberdeen í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu verði leikinn á heimavelli félagsins, Kópavogsvelli.

Þakkaði mömmu sérstaklega eftir fyrsta leikinn með aðalliði FCK
Skagamaðurinn ungi Hákon Arnar Haraldsson lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið FC København í gær. Hann þakkaði móður sinni eftir frumraunina.

Sjáðu mörkin sem skutu Blikum áfram í Evrópu
Breiðablik vann frækinn 2-1 sigur á atvinnumannaliði Austria Vín frá Austurríki á Kópavogsvelli í kvöld og komst þannig áfram í þriðju umferð í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta.

Íslendingaliðin áfram - Hákon lék sinn fyrsta leik fyrir FCK
Íslendingaliðin Molde og Hammarby komust bæði áfram í Sambandsdeild Evrópu í kvöld. 18 ára Íslendingur spilaði þá sinn fyrsta leik fyrir FC Kaupmannahöfn er danska liðið fór sömuleiðis áfram í keppninni.

Umfjöllun og viðtöl: Breiðablik - Austria Vín 2-1 | Breiðablik sló út Austria Vín með stórkostlegri frammistöðu
Breiðablik var rétt í þessu að slá út Austria frá Vínarborg 3-1 samanlagt í Sambandsdeild Evrópu. Virkilega góður fyrri hálfleikur og svo þéttur varnarleikur í þeim seinni skilaði þeim 2-1 sigri í dag og farseðilinn í næstu umferð.

Árni Vilhjálmss.: Ótrúlega góð samheild hjá liðinu
Breiðablik vann frækinn sigur á Austria Wien fyrr í dag 2-1 og 3-2 samanlagt í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Árni Vilhjálmsson tvöfaldaði forskot Blika í dag og leiddi línuna til að koma liði sínu í næstu umferð Sambandsdeildarinnar. Honum fannst liðsheildin skila sigrinum í dag.

Óskar Hrafn: Karakter, dugnaður, samvinna, traust og vinátta
Breiðablik vann frækinn sigur á Austria Wien fyrr í dag 2-1 og 3-2 samanlagt í annarri umferð forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Óskar Hrafn Þorvaldsson gat verið ánægður með sína menn en þeir skiluðu mjög góðri frammistöðu sóknarlega í fyrri hálfleik og varnarlega í þeim seinni til að skila liðinu í næstu umferð Sambandsdeildarinnar.

Jón Dagur blóraböggullinn er AGF féll úr keppni
Landsliðsmaðurinn Jón Dagur Þorsteinsson fékk að líta tvö gul spjöld með átta mínútna millibili er lið hans AGF féll úr keppni í Sambandsdeild Evrópu í kvöld.

Öruggt hjá Rosenborg gegn FH í Þrándheimi
Rosenborg vann 4-1 sigur á FH í síðari leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu í fótbolta í Þrándheimi í kvöld. FH-ingar eru úr leik í keppninni eftir samanlagt 6-1 tap í einvíginu.

Íslandsmeistararnir úr leik eftir tap í Noregi
Íslandsmeistarar Vals voru slegnir út úr Sambandsdeild Evrópu af Noregsmeisturum Bodö/Glimt er liðin mættust í síðari leik einvígis síns í Noregi í kvöld. Norska liðið vann einvígið samanlagt 6-0.

Þeir hafi öllu að tapa en muni refsa ef Blikar gefa „heimskuleg færi“
Höskuldur Gunnlaugsson, fyrirliði karlaliðs Breiðabliks, segist spenntur fyrir komandi verkefni liðsins gegn Austria Wien í Sambandsdeild Evrópu. Liðin skildu jöfn, 1-1, í Vín í síðustu viku og mætast að nýju á Kópavogsvelli annað kvöld.