Þýski boltinn

Fréttamynd

Klose biðst afsökunar

Framherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen í Þýskalandi hefur beðið forráðamenn félagsins afsökunar á framkomu sinni í kjölfar þess að upp komst um leynilegan fund sem hann átti með forráðamönnum Bayern Munchen í vikunni. Forráðamenn Bremen segja að ekki komi til greina að selja Klosa til annars liðs í Þýskalandi áður en samningur hans rennur út eftir eitt ár.

Fótbolti
Fréttamynd

Klose átti fund með Bayern Munchen

Þýskir fjölmiðlar slá því upp í dag að framherjinn Miroslav Klose hjá Werder Bremen hafi átt leynilegan fund með forráðamönnum Bayern Munchen á dögunum. Sagt er að þýsku meistararnir séu tilbúnir að bjóða Bremen 15 milljónir evra í kappann, en spænska blaðið Sport fullyrðir að Barcelona hafi einnig mikinn áhuga á markaskoraranum. Forráðamenn Bremen hafa staðfest áhuga Barcelona, en þar á bæ eru menn ekkert að flýta sér að selja hann.

Fótbolti
Fréttamynd

Podolski úr leik hjá Bayern

Þýski landsliðsframherjinn Lukas Podolski hjá Bayern Munchen þarf að fara í hnéuppskurð og leikur ekki meira með liðinu á lokasprettinum í deildinni. Hann verður frá í þrjá mánuði vegna meiðsla sinna, en fyrir eru þeir Owen Hargreaves, Claudio Pizarro og Mark van Bommel allir tæpir vegna meiðsla fyrir mikilvægan leik liðsins gegn Hamburg á laugardaginn.

Fótbolti
Fréttamynd

Klinsmann í sjónvarpið

Jurgen Klinsmann, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu, skrifaði í dag undir vænan samning við þýsku sjónvarpsstöðina Arena og mun starfa við að lýsa leikjum í heimalandinu. Þetta er talið binda enda á orðróm sem verið hefur á kreiki um að Klinsmann taki við starfi Jose Mourinho sem næsti stjóri Chelsea í ensku úrvalsdeildinni. Klinsmann býr enn í Bandaríkjunum en mun fljúga milli landa til að lýsa stærstu leikjunum í Þýskalandi, Englandi og Spáni í sjónvarpi.

Fótbolti
Fréttamynd

Hitzfeld skammar leikmenn sína

Ottmar Hitzfeld og Oliver Kahn, þjálfari og fyrirliði Bayern Munchen, eru allt annað en sáttir með frammistöðu leikmanna liðsins í leiknum gegn Stuttgart í gær. Leikurinn tapaðist 2-0 og eru möguleikar Bayern á titlinum orðnir stjarnfræðilegir. Þá er alls ekki víst að Bayern nái að tryggja sér sæti í Meistaradeildinni á næstu leiktíð.

Fótbolti
Fréttamynd

Bayern Munchen að missa af lestinni

Schalke endurheimti toppsætið í þýsku úrvalsdeildinni í dag með því að leggja Energie Cottbus af velli í dag, 2-0 en Werder Bremen hafði komist á toppinn í gærkvöldi með 3-1 sigri á Alemannia Aachen. Þá má segja að titilvonir Bayern séu að engu orðnar eftir 2-0 tap gegn Stuttgart í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Kahn lætur ekki bugast

Þýski markvörðurinn Oliver Kahn ætlar ekki að láta neina strákpjakka slá sig út úr liði Bayern Munchen og segir ekki koma til greina að deila markvarðarstöðunni með hinum unga Michael Rensing. Kahn er 37 ára og er samningsbundinn Bayern út næstu leiktíð.

Fótbolti
Fréttamynd

Neuville ætlar að berjast til síðasta manns með Gladbach

Þýski landsliðsmaðurinn Oliver Neuville hjá úrvalsdeildarfélaginu Gladbach gagnrýnir nokkra af félögum sínum í liðinu harðlega og segir þá kæra sig kollótta um það hvort liðið haldi sæti sínu í deildinni í vetur eða ekki. Fátt annað en fall blasir við þessu fornfræga liði sem hefur verið á tómu basli síðasta áratug.

Fótbolti
Fréttamynd

Kahn sigursælasti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar

Markvörðurinn Oliver Kahn náði tveimur glæsilegum áföngum þegar hann stóð í marki Bayern Munchen í 2-1 sigri liðsins á Leverkusen um helgina. Kahn lék þá sinn 400. leik fyrir meistarana og vann sinn 292. sigur í úrvalsdeildinni á ferlinum. Enginn leikmaður hefur oftar verið í sigurliði í sögu deildarinnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Allt í járnum í Þýskalandi

Werder Bremen skaust aftur í annað sætið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag eftir góðan 2-0 sigur á Dortmund. Meistarar Bayern Munchen halda í veika von um að verja titilinn eftir 2-1 sigur á Leverkusen.

Fótbolti
Fréttamynd

Schalke í vænlegri stöðu

Schalke tók stórt skref í átt að fyrsta meistaratitli sínum í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag með sannfærandi 3-0 útisigri á Mainz. Kevin Kuranyi, Gerald Asamoah og Lincoln skoruðu mörk Schalke, sem hefur nú fjögurra stiga forskot á Bremen á toppnum. Bremen á leik til góða gegn Dortmund á morgun.

Fótbolti
Fréttamynd

Bayern heldur í vonina

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen eiga enn veika von um að verja titilinn í vor eftir góðan 2-0 sigur á toppliði Schalke í dag. Bayern er nú taplaust í átta heimaleikjum í röð og er í fjórða sæti. Schalke hefur sex stiga forystu á meistarana en hefur aðeins unnið einn af síðustu sex leikjum sínum. Bremen náði aðeins jafntefli gegn Cottbus og er í öðru sætinu, tveimur stigum á eftir Schalke.

Fótbolti
Fréttamynd

Lehmann útilokar ekki að spila á HM 2010

Þýski landsliðsmarkvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal útilokar ekki að spila þangað til hann verður fertugur og verða jafnvel með þýska landsliðinu á HM í Suður-Afríku árið 2010. Hann segist ekki sjá neina beina arftaka sína hjá landsliðinu í dag.

Fótbolti
Fréttamynd

Makaay segr Bayern þurfa kraftaverk

Hollenski framherjinn Roy Makaay hjá Bayern Munchen segir að liðið þurfi á kraftaverki að halda ætli það sér að verja meistaratitil sinn í Þýskalandi frá því í fyrra. Níu stigum munar á Bayern og toppliðinu Schalke þegar aðeins átta leikir eru eftir og telur Makaay að það sé einfaldlega of lítið.

Fótbolti
Fréttamynd

Varalið Þjóðverja gegn Dönum

Joachim Loew, þjálfari þýska landsliðsins, ætlar að gefa átta lykilmönnum liðsins frí þegar það tekur á móti Dönum í vináttuleik á miðvikudag. Loew ætlar að nota leikinn til að gefa ungum og óreyndum leikmönnum tækifæri, en Þjóðverjar unnu frækinn útisigur á Tékkum í gærkvöldi.

Fótbolti
Fréttamynd

Doll blæs í herlúðra hjá Dortmund

Thomas Doll, nýráðinn þjálfari þýska úrvalsdeildarliðsins Dortmund, vill að leikmenn liðsins hætti að væla í fjölmiðlum og einbeiti sér að því að bjarga liðinu frá falli. Dortmund hefur átt mjög erfitt uppdráttar í vetur og er Doll þriðji þjálfari liðsins síðan um jól.

Fótbolti
Fréttamynd

Pizarro hótar að hætta hjá Bayern

Perúmaðurinn Claudio Pizarro hjá Bayern Munchen segist ætla að fara frá félaginu ef honum verði ekki boðinn nýr og betri samningur fljótlega. Samningur hans rennur út í sumar og sagt er að hann vilji fá allt að 50.000 pund í vikulaun.

Fótbolti
Fréttamynd

Dýrkeyptur sigur Gummersbach

Íslendingaliðið Gummersbach burstaði Melsungen 38-26 í þýska handboltanum í gærkvöldi. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 12 mörk og Róbert Gunnarsson 8. En sigurinn var Gummersbach dýrkeyptur. Franski landsliðsmaðurinn Daniel Narcisse fingurbrotnaði og spilar ekki næstu 6 vikurnar.

Fótbolti
Fréttamynd

Bremen styrkir stöðu sína

Werder Bremen styrkti stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með 2-0 sigri á Mainz á heimavelli. Jurica Vranjes og Diego skoruðu mörk heimamanna, sem eru þremur stigum á eftir toppliði Schalke. Leverkusen vann dýrmætan 1-0 sigur á botnliði Gladbach með marki Andriy Voronin í uppbótartíma. Sigurinn kom Leverkusen í Evrópusæti í fyrsta sinn síðan í fyrstu umferð deildarinnar, en Gladbach er í mjög vondum málum á botninum.

Fótbolti
Fréttamynd

Schalke á toppnum - Bayern tapar enn

Schalke styrkti stöðu sína á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag með 1-0 sigri á Stuttgart. Á sama tíma tapaði Bayern 1-0 fyrir Frankfurt á útivelli. Schalke hefur 53 stig eftir 26 leiki en Bremen getur minnkað forskot þeirra í þrjú stig með sigri á Mainz á morgun. Stuttgart er í þriðja sætinu með 46 stig og Bayern er í fjórða með 44 stig.

Fótbolti
Fréttamynd

Hitzfeld framlengir við Bayern

Þjálfarinn Ottmar Hitzfeld hefur skrifað undir nýjan samning við Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og gildir hann út næstu leiktíð. Hitzfeld samdi fyrir nokkru við félagið út þessa leiktíð eftir að Felix Magath var rekinn, en aldrei stóð til hjá honum að vera lengur hjá félaginu en til vors.

Fótbolti
Fréttamynd

Þýska úrvalsdeildin í samstarf við MLS

Forráðamenn þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu undirrituðu í dag umfangsmikinn samstarfssamning við kollega sína í bandarísku MLS deildinni. Samningurinn nær yfir allt frá leikmannamálum til markaðsmála og voru talsmenn beggja aðila bjartsýnir á að samstarfið eigi eftir að skila góðum ávöxtum í framtíðinni.

Fótbolti
Fréttamynd

Thomas Doll tekur við Dortmund

Thomas Doll hefur verið ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðsins Dortmund í Þýskalandi og tekur við af Jörgen Röber sem var rekinn í gær. Dortmund er í bullandi fallbaráttu í úrvalsdeildinni. Doll var síðast hjá liði Hamburg í úrvalsdeildinni en þar var hann rekinn í febrúar þar sem liðið sat í botnsætinu. Doll hefur skrifað undir eins árs samning við félagið, sem varð Evrópumeistari fyrir tíu árum.

Fótbolti
Fréttamynd

Kahn gæti framlengt við Bayern

Svo gæti farið að markvörðurinn Oliver Kahn framlengi samning sinn við Þýskalandsmeistara Bayern Munchen ef marka má orð framkvæmdastjóra félagsins. Mistök markvarðarins urðu til þess að Bayern náði aðeins 1-1 jafntefli við Bremen í stórleik helgarinnar í Þýskalandi, en Karl-Heinz Rummenigge segir hann eiga nóg eftir.

Fótbolti
Fréttamynd

Bayern Munchen og Werder Bremen skildu jöfn

Meisturum Bayern Munchen í Þýskalandi mistókst að blanda sér af alvöru í toppbaráttuna í úrvalsdeildinni í dag en þá gerði liðið 1-1 jafntefli við Werder Bremen á heimavelli sínum í Munchen. Bayern spilaði einn sinn besta leik á tímabilinu og aðeins einstök óheppni og klaufaskapur upp við mark Bremen kom í veg fyrir sigur liðsins.

Fótbolti
Fréttamynd

Gunnar Heiðar byrjaði hjá Hanover

Landsliðsmaðurinn Gunnar Heiðar Þorvaldsson spilaði í 72 mínútur fyrir lið sitt Hanover þegar það gerði 1-1 jafntefli við topplið Schalke í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Gunnar Heiðar er greinilega að komast í fyrra form, en hann hefur verið þjakaður af meiðslum stærstan hluta tímabilsins. Forysta Schalke á toppnum í Þýskalandi minnkar stöðugt.

Fótbolti
Fréttamynd

Ziege kominn á skrifstofuna

Fyrrum knattspyrnumaðurinn Christian Ziege hefur verið ráðinn yfirmaður knattspyrnumála hjá þýska úrvalsdeildarfélaginu Gladbach. Ziege spilaði á sínum tíma 68 landsleiki fyrir Þjóðverja og spilaði með liðum eins og Liverpool, Tottenham og AC Milan. Gladbach er í mikilli fallbaráttu í þýsku úrvalsdeildinni og hefur þetta fornfræga félag verið í vandræðum síðustu ár.

Fótbolti
Fréttamynd

Bayern aftur í baráttuna

Þýskalandsmeistarar Bayern Munchen unnu mikilvægan 3-2 útisigur á Hertha Berlin í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Bayern hafði tapað fimm útileikjum í röð fyrir sigurinn í dag og er liðið nú aðeins sex stigum á eftir toppliði Schalke sem er í bullandi vandræðum þessa dagana.

Fótbolti
Fréttamynd

Santa Cruz: Komið og náið í mig

Framherjinn Roque Santa Cruz hjá Bayern Munchen er orðinn hundleiður á að sitja á varamannabekknum hjá þýsku meisturunum og skorar á lið í ensku eða spænsku úrvalsdeildinni að kaupa sig.

Fótbolti
Fréttamynd

Fimm leikja bann fyrir Rambo-árás

Brasilíski miðjumaðurinn Lincoln hjá Schalke var í dag dæmdur í fimm leikja keppnisbann fyrir að veita Bernd Schneider hjá Bayer Leverkusen hnefahögg í leik liðanna í Gelsenkirchen um helgina. Tilþrifum þess brasilíska var lýst sem Rambo árás í þýskum fjölmiðlum.

Fótbolti