Íslenski boltinn
331 332 333 334 ›
Giggs skrifar undir nýjan samning Ryan Giggs er búinn að skrifa undir nýjan saming við Manchester United. Giggs, sem er 31 árs, er núna samningsbundinn United þar til í júní 2008. Markvörðurinn Tim Howard er einnig búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið.d Sport 13.10.2005 19:13
Glazer eignast 75% hlut í Man. Utd Bandaríski auðkýfingurinn Malcolm Glazer er sagður hafa eignast 75% eignarhlut í Manchester United. Á föstudag bárust þær fregnir að hann hafi klófest 74,81% hlutabréfa og væri við hinn mikilvæga 75% þröskuld sem gerir hann að einráði í félaginu. Sport 17.10.2005 23:41
Á nú 75% í Man. Utd Bandaríski auðkýfingurinn, Malcolm Glazer, hefur eignast 75 prósent hlutabréfa í fótboltafélaginu Manchester United og talið er að hann auki eign sína í 90 prósent fyrir vikulok. Það þýðir að Glazer er í sjálfsvald sett að taka félagið af hlutabréfamarkaði. Sport 13.10.2005 19:13
WBA bjargaði sér frá falli Eftir æsilegan dag í ensku úrvalsdeildinni voru það nýliðarnir í West Bromwich Albion sem stóðu uppi sem "sigurvegarar" og náðu að bjarga sér frá falli. Norwich byrjaði daginn í hinu eftirsótta 17. sæti, Southampton tók við eftir fyrri hálfleik, þá Crystal Palace og að lokum West Brom þegar 8 mínútur voru eftir af leikjum dagsins Sport 13.10.2005 15:33
Fyrsti titlinn Barcelona í sex ár Barcelona varð í gærkvöldi spæsnkur meiststari í knattspyrnu í 17. sinn og í fyrsta sinn í sex ár þegar liðið gerði jafntefli við Levante, 1-1. Alberto Rivera náði forystunni fyrir Levante í fyrri hálfleik en Samuel Eto'o jafnaði fyrir Barcelona í síðari hálfleik. Eitt stig dugði Börsungum til að landa fyrsta meistaratitlinum frá árinu 1999. Sport 13.10.2005 15:33
Segja Guðjón á leið til Englands Enskir fjölmiðlar telja sig hafa heimildir og vissu fyrir því að Guðjón Þórðarson verði ráðinn knattspyrnustjóri hjá enska 3. deildar liðinu Notts County á næstu dögum. Í viðtali í Íslandi í dag á Stöð 2 í gærkvöldi sagði Guðjón Þórðarson það úr lausu lofti gripið að hann hefði rætt við forráðamenn enska félagsins um knattspyrnustjórastöðuna. Sport 13.10.2005 19:12
Breiðablik og Víkingi spáð sigri Breiðablik og Víkingur sigra í 1. deild karla í knattspyrnu í sumar samkvæmt spá þjálfara deildarinnar. Norðanmenn í Þór og KA berjast um 3.-4. sætið en Víkingi Ólafsvík og KS á Siglufirði er spáð falli. Sport 13.10.2005 19:12
Mótmæltu yfirtöku Glaziers Fimm stuðningsmenn enska knattspyrnuliðsins Manchester United voru handteknir í gær eftir að mikil mótmæli brutust út fyrir utan heimvöll liðsins vegna fyrirhugaðrar yfirtöku bandaríska auðkýfingsins Malcolms Glaziers á liðinu. Mörg hundruð stuðningsmenn liðsins söfnuðust í gærkvöldi saman fyrir utan Old Trafford, heimavöll Manchester United, og létu öllum illum látum. Sport 13.10.2005 19:12
Osasuna í úrslit bikarkeppninnar Osasuna komst í gærkvöld í úrslit í spænsku bikarkeppninni í knattspyrnu þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Atletico Madrid í síðari leik liðanna, en Osasuna vann fyrri leikinn með einu marki gegn engu og mætir Real Betis í úrslitum. Sport 13.10.2005 19:12
Gautaborg leikur til úrslita IFK Gautaborg leikur til úrslita í Skandinavíudeildinni í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Brann í undanúrslitum í gær. Hjálmar Jónsson lék síðustu tíu mínútur leiksins fyrir Gautaborg. Kristján Örn Sigurðsson var í byrjunarliði Brann en Ólafur Örn Bjarnason var hins vegar ekki í leikmannahópi norska liðsins. Sport 13.10.2005 19:12
Guðni gefur Everton álit Guðni Bergsson er mikils metinn í Englandi sem álitsgjafi á fótboltanum og hefur nokkrum sinnum farið ytra til lýsinga á leikjum í sjónvarpi þar í landi. Í dag birtist ítarlegt viðtal við Guðna á heimasíðu Everton þar sem hann er inntur skoðunar á liðinu sem á dögunum tryggði sér rétt til að leika í Meistaradeildinni á næsta tímabili. Sport 13.10.2005 19:12
Glazer kominn í 74,8% Red Football Limited, fyrirtæki ameríska auðnjöfursins Malcolm Glazer, á nú 74,8% af hlutabréfum Manchester United að því er fram kom á Sky sjónvarpsstöðinni bresku síðdegis. Fari eignarhluturinn yfir 75% verður að afskrá félagið af hlutabréfamarkaði og mun Glazer þá loks leggja fram margumrætt formlegt kauptilboð í félagið. Sport 13.10.2005 19:12
Eriksson velur landsliðið Sven Goran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, hefur valið 22-manna hóp sem spilar í Bandaríkjunum í lok maí. Athygli vekur að Scott Carson, markvörður Liverpool og Peter Crouch, sóknarmaður Southampton, eru í hópnum. Sport 13.10.2005 19:12
Maniche og Costinha til Moskvu Porto hefur samþykkt að selja portúgölsku landsliðamennina Maniche og Costinha til rússneska félagsins Dynamo Mokva, en félagið greindi frá þessu í dag. Sport 13.10.2005 19:12
Henry vill Bergkamp áfram Thierry Henry hefur sagt að hann vilji að Arsene Wenger hætti öllum vangaveltum um framtíð Hollendingsins Dennis Bergkamp og semji við hann til eins árs. Sport 13.10.2005 19:12
GLAZER AÐ EIGNAST MAN UTD !!! Ameríski auðnjöfurinn Malcolm Glazer og eigandi ameríska fótboltaliðsins Tampa Bay Buccaneers, eignaðist í dag meirihluta í Manchester United eftir að hafa keypt 28,7% hlut írsku auðnjöfranna, JP McManus og John Magnier. Glazer sem átti fyrir 28.1% í félaginu á því nú samtals 56.8% í félaginu eða ráðandi hlut. Þetta er mikið áfall fyrir stuðnigsmenn Man Utd. Sport 13.10.2005 19:12
Baros þögull um Everton Milan Baros, sóknarmaður Liverpool, vildi í dag ekki tjá sig um þann orðróm að hann muni færa sig um set í Liverpool borg í sumar og skrifa undir hjá Everton. Tékkneski landsliðsframherjinn mun líklega yfirgefa Liverpool í sumar og verður nú æ háværari sá orðrómur að Everton sé hans næsti áfangastaður. Sport 13.10.2005 19:12
Glazer kaupir og kaupir Malcolm Glazer nálgast nú óðfluga þann 75% hlut í Man Utd sem til þarf svo hann geti bundið um alla lausa enda við yfirtöku á þessu ríkasta knattspyrnufélagi heims. Glazer hefur nú eignast samtals 63.25% hlut í Man Utd en hann lagði í dag inn tilboð upp á 690 milljónir punda fyrir félagið. Það stefnir því í að Man Utd verði orðið að amerísku hlutafélagi innan klukkustunda. Sport 13.10.2005 19:12
Stutt í endalok ferils Zidanes Knattspyrnusnillingurinn Zinedine Zidane segir að svo geti farið að hann leggi skóna á hilluna áður en samningur hans við Real Madríd rennur út árið 2007. Hann segir alveg ljóst að hann hætti knattspyrnuiðkun þegar samningurinn rennur út en svo geti farið að styttra væri í það. Sport 13.10.2005 19:12
Sevilla á eftir Luis Fabiano Spænska liðið Sevilla eru komnir í kapphlaupið um brasilíska framherjann Luis Fabiano hjá Porto ef marka má fréttir frá Portúgal. Sport 13.10.2005 19:12
Beckham meiddur David Beckham meiddist á æfingu og gæti misst af leik Real Madrid gegn Sevilla á laugardaginn. Hinn þrítugi enski landsliðsfyrirliði, sem hefur verið í fínu formi að undanförnu, gat ekki æft í dag né í gær. Sport 13.10.2005 19:12
Pearce áfram með Man City Manchester City hefur ráðið Stuart Pearce sem framkvæmdastjóra félagsins. Þessi fyrrum landsliðsfyrirliði Englendinga er 43 ára og hefur stýrt liðinu síðan Kevin Keegan hætti fyrir tveim mánuðum síðan. Undir hans stjórn hefur liðinu gengið vel og eru sem stendur í áttunda sæti og eiga góðan möguleika á Uefa sæti. Sport 13.10.2005 19:12
Smicer aftur til Lens? Vladimir Smicer, leikmaður Liverpool, segist vera að íhuga flutnig aftur til franska liðsins Lens, en Smicer mun nær örugglega yfirgefa Liverpool í sumar þegar samningur hans rennur út. Sport 13.10.2005 19:12
Fótbrotinn en skoraði samt Jason Roberts, sóknarmaður Wigan, skaut liði sínu fótbrotinn í hóp þeirra bestu á Englandi. Liðið leikur í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð í fyrsta sinn í sögu sinni. Roberts skoraði eitt mark og lagði upp annað í 3-1 sigri á Reading síðasta laugardag. Sport 13.10.2005 19:11
Leeds vill Heiðar Enska blaðið <em>The Mirror</em> greinir frá því í morgun að 1. deildarliðið Leeds United vilji kaupa landsliðsmanninn Heiðar Helguson frá Watford á eina milljón sterlingspunda eða rúmlega 120 milljónir íslenskra króna. Sport 13.10.2005 19:11
Orðaður við Leeds en er sáttur Í enskum fjölmiðlum í gær var sagt frá því að Leeds United ætlaði að bjóða rúmar 120 milljónir króna í íslenska landsliðsmanninn Heiðar Helguson. Í samtali við Fréttablaðið sagðist Heiðar reikna með að vera áfram í herbúðum Watford. Sport 13.10.2005 19:12
Arsenal 7 - Everton 0 Arsenal fór hamförum og gjörsamlega niðurlægði Meistaradeildarnýliðana í Everton með 7-0 sigri í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld þar sem Dennis Bergkamp fór á kostum, lagði upp nokkur markanna og skoraði eitt. Staðan í hálfleik var 3-0. Sport 13.10.2005 19:12
Ætla að kveðja með titli Besti leikmaður Landsbankadeildarinnar í fyrra, Heimir Guðjónsson, ætlar að leggja skóna á hilluna eftir tímabilið og er staðráðinn í að kveðja með stæl. Sport 13.10.2005 19:12
Veigar skoraði fernu í bikarnum Veigar Páll Gunnarsson skoraði fernu fyrir Stabæk í norska bikarnum í kvöld en Stabæk-liðið vann þá 7-0 sigur á Fossum í 1. umferð norsku bikarkeppninnar. Haraldur Freyr Guðmundsson var einnig á markaskónum með Álasund sem vann Hareid 4-0. Engin óvænt úrslit voru í þessarri fyrstu umferð og öll lið úrvalsdeildarinnar komust klakklaust áfram. Sport 13.10.2005 19:12
Galatasaray bikarmeistari Galatasaray tryggði sér í kvöld tyrkneska bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu eftir stórsigur á nágrönnum sínum í Fenerbahce, 5-1. Leikurinn fór fram Ólympíuleikvanginum í Aþenu sem mun hýsa úrslitaleik Meistaradeildarinnar milli AC Milan og Liverpool en hann tekur 80.000 manns í sæti. Aðeins 18.000 áhorfendur treystu sér þó á völlinn í kvöld. Sport 13.10.2005 19:12