Ástin á götunni

Young fetar í fótspor Neville
Luke Young, leikmaður Charlton, vill feta í fótspor Gary Neville með enska landsliðinu, en vill ekki gera sér of miklar vonir um að eiga sæti í enska landsliðinu ef það fer á HM í Þýskalandi næsta sumar.

Guðjón smalar fólki á völlinn
Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri Notts County, hefur sent út skilaboð til stuðningsmanna liðsins á heimasíðu félagsins, þar sem hann hvetur alla sem vettlingi geta valdið til að mæta á völlinn á laugardaginn til að verða vitni að toppslag í deildinni.

Neville vill meiri hörku
Gary Neville, leikmaður Manchester United, þykir nauðsynlegt að félagar hans í liðinu sýni meiri hörku ef þeir ætla sér að veita Chelsea harða samkeppni um meistaratitilinn á Englandi í vor.

Nokkur meiðsli í landsliðinu
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Búlgörum á morgun í Sofiu í undankeppni fyrir heimsmeistaramótið. Auðun Helgason og Heiðar Helguson tóku ekki þátt á fullu á æfingu í gær og Auðun er tæpur fyrir morgundaginn vegna meiðsla í hné. <font face="Tms Rmn"></font>

Bölvun á íslenska landsliðinu
Það má með sanni segja að bölvun hvíli á íslenska landsliðinu í knattspyrnu þegar kemur að því að spila á Balkanskaga en í níu heimsóknum sem liðið hefur átt þangað hefur liðið aldrei unnið sigur. Afrakstur landsliðsins í heimsóknum til Balkanskagans í gegnum tíðina er eitt stig sem náðist gegn Tyrkjum fyrir 17 árum síðan.

Tvær breytingar hjá Eyjólfi
Eyjólfur Sverrisson, þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands hefur gert tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum við Króatíu á KR-vellinum á dögunum, en strákarnir mæta Búlgaríu í Sofíu í dag klukkan 14 að íslenskum tíma.

Mutu að ná fyrri styrk
Rúmenski markaskorarinn Adrian Mutu er óðum að koma til baka eftir sjö mánaða keppnisbann sem hann fékk vegna eiturlyfjaneyslu þegar hann lék með Chelsea og er farinn að skora grimmt fyrir landslið Rúmeníu.
Bonhof íhugar að segja af sér
Ranier Bonhof , þjálfari U-21 árs liðs Skota, hefur látið í veðri vaka að hann muni segja af sér á næstu dögum í kjölfar neyðarlegs atviks í leik liðsins við Ítali um síðustu helgi, þegar hann leyfði leikmanni að spila sem var í banni í leiknum.

Owen þarf að sanna sig
Framherjinn Michael Owen segist eiga skilið að vera í enska landsliðshópnum gegn Norður-Írum annað kvöld, en bendir á að hann muni þurfa að sanna að hann eigi þar heima eftir fjarveruna vegna leikbanns.

Stoichkov vill skora mörk
Hristo Stoichkov, landsliðsþjálfari Búlgaríu, gerir þá kröfu til sinna manna að þeir skori mörk þegar þeir taka á móti Íslendingum í landsleik þjóðanna á morgun, en hann er mjög ósáttur við tap sinna manna gegn Svíum í síðasta leik.

Þorlákur Árnason í Stjörnuna
Þorlákur Árnason, sem sagði af sér sem þjálfari Fylkis á dögunum, hefur verið ráðinn til að taka við yngriflokkastarfi Stjörnunnar í Garðabæ og mun verða skólastjóri knattspyrnuskóla félagsins.

Campbell nálgast fyrra form
Varnarmaðurinn Sol Campell hjá Arsenal er nú í óðaönn að ná fyrra formi eftir erfið meiðsli og í kvöld spilar hann annan leikinn í röð með varaliði félagsins. Talið er að Arsene Wenger muni freistast til að velja hann í aðalliðið í framhaldinu, ef vel tekst til.

Kerr og Keane rifust ekki
Brian Kerr, landsliðsþjálfari Íra í knattspyrnu, hefur þvertekið fyrir að hafa lent í rifrildi við Roy Keane eða nokkurn annan af leikmönnum írska liðsins, en í gær spurðist út að ólga væri innan írska hópsins.

Mourinho er ósáttur
Franski landsliðsmaðurinn Claude Makelele hjá Chelsea segir að Jose Mourinho sé ósáttur við leik liðsins í úrvalsdeildinni til þessa og segir liðið eiga langt í land með að ná því formi sem það var í undir lok síðustu leiktíðar.

Cole treystir á Rooney
Ashley Cole hefur mikla trú á að enska landsliðið geti gert góða hluti á HM í Þýskalandi næsta sumar og telur Wayne Rooney vera lykilmann liðsins í þeim efnum.

King að ná heilsu
Enski landsliðsmaðurinn Ledley King er óðum að ná sér af nárameiðslum sínum og stefnir á að vera með liði sínu Tottenham þegar það tekur á móti Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn,

Jónas æfur vegna slakrar dómgæslu
Jónas Sigursteinsson, þjálfari Þór/KA/KS í knattspyrnu kvenna, var afar ósáttur með Marínó Þorsteinsson, dómara í úrslitaleiknum við Fylki í 1.deild kvenna, en honum lauk með 3-2 sigri Fylkis og vann Árbæjarliðið sér með því sæti í efstu deild á næsta keppnistímabili.

Hagnaður hjá Arsenal
Hagnaður á rekstri Arsenal á síðasta ári jókst um tæpar níu milljónir punda, en þetta kemur fram í ársskýrslu félagsins sem lögð var fram í morgun. Hagnaður félagsins jókst úr 10,6 milljónum punda í 19,3 milljónir á tímabilinu sem lauk í maí í vor.

Wenger fær peninga í janúar
Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, mun njóta góðs af góðri afkomu Arsenal þegar leikmannakaupaglugginn opnast á ný í janúar ef marka má orð Keith Edelman, stjórnarmanns Arsenal.

Annasöm nótt hjá Paul Robinson
Landsliðsmarkverði Englendinga, Paul Robinson hjá Tottenham Hotspur, brá heldur betur í brún þegar hann kom til síns heima eftir landsleikinn gegn Wales um helgina, því í ljós kom að brotist hafði verið inn í íbúð hans á meðan hann var í burtu með landsliðinu.

Owen aftur í hópinn
Sven-Göran Eriksson segir líklegt að Michael Owen muni taka sæti sitt í byrjunarliði enska landsliðsins þegar hann snýr aftur í hópinn gegn Norður-Írum, en hann var sem kunnugt er í leikbanni gegn Wales um helgina.

Guðjón fagnar 8 daga hvíld
Guðjón Þórðarson þjálfari Notts County segir í viðtali við BBC í dag að hann fagni mjög svo hvíldinni sem leikmenn hans fái í kringum landsleikjakrinuna. Notts County fær 8 daga hvíld eftir talsverða keyrslu í fyrstu umferðunum í ensku 2.deildinni þar sem liðið er efst.

Margt jákvætt í okkar leik
Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins, var vitanlega svekktur yfir úrslitum leiks Íslands og Króatíu á Laugardalsvellinum í gær, þar sem gestirnir höfðu sigur, 3-1, eftir að Eiður Smári hafði skorað fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik.

Línur að skýrast fyrir HM2006
Ný styttist í HM í fótbolta sem fer fram í Þýskalandi á næsta ári og eru línur aðeins farnar að skýrast með hvaða þjóðir munu mætast á stærsta sviði knattspyrnunnar í heiminum. Gestgjfarnir eru sjálfkrafa með í keppninni og eru 13 aðrar þjóðir úr Evrópu sem komast í lokakeppnina þar sem alls 32 landslið komast að.
Undanúrslit hafin í 3. deild karla
Fyrri viðureignir liðanna í undanúrslitum á Íslandsmótinu í 3. deild karla í fótbolta fóru fram í dag. Sindri Hornafirði og Leiknir Fáskrúðsfirði gerðu markalaust jafntefli á Sindravöllum og Grótta vann Reyni í 9 marka leik á Sandgerðisvelli, 4-5.

Ashley Cole í sögubækurnar?
Ashley Cole, varnarmaður Arsenal og enska landsliðsins í fótbolta ætlar að láta reyna á réttmæti knattspyrnulaganna og áfrýja til gerðardóms, dómi sem yfir hann var felldur á dögunum. Cole var fundinn sekur af aganefnd enska knattspyrnusambandsins um að eiga í ólöglegum viðræðum við Chelsea á meðan hann er samningsbundinn Arsenal.

Brynjar B. aftur í byrjunarliðið
Landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, hafa tilkynnt byrjunarlið Íslands gegn Króatíu, en liðin mætast á Laugardalsvelli kl. 18:05 í dag í undankeppni HM 2006 í fótbolta. Nokkrar breytingar eru á byrjunarliðinu frá síðasta leik sem var gegn S.Afríku.

Naumur sigur Englendinga á Wales
Joe Cole leikmaður Chelsea tryggði Englendingum sigur á Wales, 0-1 í undankeppni HM 2006 í fótbolta í dag. Sigurmarkið kom á 54. mínútu en leikurinn fór fram í Cardiff. Með sigrinum komst England á topp riðilsins með 19 stig, einu stigi ofar en Pólverjar sem eru í 2. sæti þegar bæði liðin eiga þrjá leiki eftir.
Leiknir og Stjarnan í 1. deild
Leiknir og Stjarnan tryggðu sér í gær sæti í 1. deild karla í knattspyrnu á næstu leiktíð. Leiknir vann Njarðvík 3-2 og trónir á toppnum í 2. deild með 37 stig og hefur tryggt sér deildarmeistaratitilinn. Stjarnan tryggði einnig sæti sitt í 1. deild með 5-0 sigri á Leiftri/ Dalvík. Stjarnan í öðru sæti deildarinnar með 33 stig.

Tap gegn Króötum
Íslendingar töpuðu fyrir Krótötum, 1-3, á Laugardalsvellinum í leik liðanna í undankeppni HM í kvöld. Íslendingar höfðu verðskuldaða 1-0 forystu í hálfleik en í þeim síðari tóku gestirnir öll völd á vellinum og skoruðu þrjú mörk.