Gervigreind

Fréttamynd

„Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“

Volker Türk, mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna, segir áríðandi að fólk missi ekki móðinn í mannréttindabaráttu. Hann segir nauðsynlegt að ná böndum á þau 60 átök sem geisa víða um heim. Einræðisherrar heimsins vilji láta fólki líða eins og það sé hjálparvana og valdalaust en það sé ekki þannig. Hann segir að bregðast verði við bakslagi í mannréttindum og óttast verulega þróun gervigreindar. 

Innlent
Fréttamynd

Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 

Innlent
Fréttamynd

Engin yfir­sýn hvort það séu Tik Tok-mynd­bönd eða klám sem eigi að geyma

Björg Eva Erlendsdóttir framkvæmdastjóri Landverndar varar við stefnuleysi í uppbyggingu gagnavera. Það verði að vera skýrt hvaða gögn gagnaver á Íslandi geymi og hvort að gögn sem séu Íslendingum samfélagslega mikilvæg séu. Björg Eva segir í aðsendri grein náttúru Íslands eiga betra skilið en „stefnulausa uppbyggingu orkufrekasta iðnaðar nútímans“.

Innlent
Fréttamynd

Gervi­greind skýrsla gervigreindrar ríkis­stjórnar

C2PA er ekki ný persóna í Stjörnustríðsmyndunum, þótt nafnið hljómi óneitanlega eins og týndur ættingi R2-D2. Sá síðarnefndi er þó ekki bara gagnlegur félagi sem kann að segja sögur, heldur hefur hann líka nokkuð sem sífellt verður verðmætara í heimi gervigreindarinnar. Hann hefur unnið sér inn traust.

Skoðun
Fréttamynd

Malasar í sam­starf við GreenFish

Íslenska tæknifyrirtækið GreenFish undirritaði í dag samstarfssamning við Supratechnic, sem er hluti af USP Group Ltd., um að koma Afla, nýju smáforriti GreenFish fyrir smábátaútgerðir, á markað í Malasíu, Singapúr og Indónesíu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Tæknirisarnir horfa til Ís­lands en raf­orku­kerfið ræður ekki við eftir­spurnina

Öll stærstu bandarísku tæknifyrirtækin hafa kannað möguleika á uppbyggingu gagnavera á Íslandi en umfang þeirra verkefna sem þau horfa til er langt umfram það sem raforkukerfið ræður við. Ekki er talið raunhæft að ráðast í mjög stór gagnaversverkefni hér á landi á næstu fimm til sjö árum miðað við fyrirliggjandi áætlanir um aukna orkuframleiðslu.

Innherji
Fréttamynd

Gervi­greind kallar á nýja hugsun í rekstri

Eigi gervigreind að skila árangri má innleiðingin ekki snúast um að reka sömu starfsemi með færra fólki. Hún þarf að snúast um að endurskipuleggja fyrirtækið á grunni þriggja framleiðsluþátta; vinnuafls, fjármagns og gervigreindar.

Skoðun
Fréttamynd

Stofnar „Ofur­greindar­stjórnina“ þrátt fyrir á­kall um hægari þróun

Donald Trump Bandaríkjaforseti segist hafa stofnað nýja verkefnastjórn sem á að sjá um málefni gervigreindar í Bandaríkjunum. Þetta gerir hann nokkrum dögum eftir að hann undirritaði tilskipun þess efnis að gervigreind myndi frekar bera heitið ofurgreind. Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækja hafa kallað eftir því að hægt verði á þróun gervigreindarinnar af öryggisástæðum.

Erlent
Fréttamynd

Hver kennir okkur að hugsa?

Flest okkar muna eflaust eftir einhverjum ákveðnum kennara frá skólagöngunni. Þeim sem fann aðra leið til að útskýra þegar við skildum ekki, tók spurningarnar okkar alvarlega eða hvatti okkur til að halda áfram þegar við vorum við það að gefast upp.

Skoðun
Fréttamynd

Kostnaðurinn við nei

Á þriðjudaginn kynnti OpenAI nýjan gervigreindarþjón sem heitir Dots. Hann er síkveiktur, keyrir á GPT-6 Astra, hefur eigin tölvu í skýinu og vinnur verk í bakgrunni. Í tilkynningunni stóð setning sem ég las tvisvar: sérhæfð Dots eru í prófunum hjá fyrirtækjum, meðal annars fyrir reikningavinnslu og viðskiptasamninga. Þremur vikum áður sendi Meta frá sér Muse, sama flokk. Fyrir flesta var þetta enn ein tæknifréttin. Fyrir mig var þetta hljóðlát staðfesting.

Skoðun
Fréttamynd

Heila­rotnun og hug­ræktar­stöðvar á tímum gervi­greindar

Líkur eru á að gervigreind muni tortíma mannkyni innan áratugar. Þannig hljóma fréttir um allan heim þessa dagana. Erfitt er að greina hvað er raunveruleg ógn og hvað er áróður tæknirisanna sem stæra sig af tækninni í þeim tilgangi að laða að fjárfesta.

Skoðun
Fréttamynd

OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan

Bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI hefur hætt við að gefa út nýtt gervigreindarlíkan, GPT-6.1 Astra af öryggiástæðum. Líkanið er sagt hafa sýnt af sér svikula hegðun og sagt hafa reynt að nota utanaðkomandi verkfæri þrátt fyrir að hafa vitað að það væri ekki öruggt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagn­vart gervi­greind

Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra boðar ný lög um gervigreind strax í vetur. Mikilvægt sé að ná tökum á tækninni sem er í sífelldri þróun og best væri ef alþjóðasamfélagið gæti komið sér saman um sameiginlegan lagaramma.

Innlent
Fréttamynd

Er gervigreindin spegill mann­kyns

Nútíma gervigreind er ekki forrituð í hefðbundnum skilningi, þar sem hver regla hegðunar er skrifuð fyrirfram. Hún er að miklu leyti þjálfuð — eða, eins og sumir segja, ræktuð.

Skoðun
Fréttamynd

Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervi­greind?

Stóra málið sem var tekið fyrir í þætti tvö varðaði gervigreindina enda virðist fátt annað rætt við matarborð landsmanna þessa dagana. Miklar vendingar hafa orðið í gervigreindarheiminum og virðast Bandaríkin og Kína leggja allt í sölurnar til að verða ofan á í gervigreindarkapphlaupinu.

Innlent
Fréttamynd

Gekk um með töfra­sprota, fann ástina í TF-LUV og nýtir gervi­greindina fyrir þriðju vaktina

„Ég vaknaði með strákinn okkar, fékk mér kaffi og sá fyrirsögnina á Vísi: WOW air heyrir sögunni til. Maðurinn minn var enn sofandi, á leið í flug þennan dag. Þetta var algjört áfall – við vorum bæði að missa vinnuna og tekjurnar fóru í núll á einu augabragði,“ segir Marín Jónsdóttir þegar hún rifjar upp örlagamorguninn þegar Vísir – eins og aðrir fjölmiðlar – birti fréttir um þrot WOW.

Atvinnulíf
Fréttamynd

Tor­tímir gervi­greindin mann­kyninu?

„Dómsdagur er í nánd,“ hafa verið skilaboð gervigreindariðnaðarins til almennings og stjórnmálamanna á undanförnum vikum. Forseti tölvunarfræðideildar HÍ ræðir við Vísi um hvort gervigreindin sé í þann veginn að tortíma mannkyninu.

Innlent
Fréttamynd

Gervi­greind hakkaði sig inn á vef stjórn­valda

Anthony Albanese, forsætisráðherra Ástralíu, greindi frá því í dag að gervigreindarfulltrúi sem var þróaður af OpenAI hafi hakkað sig inn á vefsíðu ástralskra stjórnvalda í júní og komist í óopinberar skrár.

Erlent
Fréttamynd

Svona var ræða Trumps: Spurning um „ger­eyðingu“ og nýtt nafn á gervi­greind

Donald Trump Bandaríkjaforseti fór um víðan völl eins og hans er von og vísa í árlegri ræðu hans frammi fyrir Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York. Hann segist standa frammi fyrir mikilli ákvörðun hvað varðar Íran, að gera samning við þarlend stjórnvöld eða eyða íslamska lýðveldinu. Þá gekk sendinefnd Kúbu út úr salnum og forsetinn sagði Bandaríkjamenn bera höfuð og herðar yfir Kína þegar kemur að gervigreind, sem hann nefndi nýju nafni.

Erlent