Lög og regla

Hæstiréttur lækkaði bæturnar
Hæstiréttur lækkaði í dag bætur til konu sem varð fyrir slysi er hún var farþegi í bifreið með ölvuðum ökumanni. Maðurinn andaðist í slysinu. Héraðsdómur dæmdi konunni eina og hálfa milljón í bætur en Hæstiréttur lækkaði bæturnar í rúma milljón.

Sýknaður á grundvelli skófars
Hæstiréttur sýknaði í dag mann af ákæru fyrir að hafa stolið þrjú þúsund krónum í innbroti í verslun í Mjóddinni. Héraðsdómur hafði dæmt manninn í sex mánaða fangelsi en hann er síbrotamaður. Vafinn um sekt snerist um skófar.
Fangelsi fyrir fjársvik
Rúmlega þrítug kona var í Héraðsdómi Reykjaness dæmd í fimm mánaða fangelsi fyrir fjársvik. Konan sveik út vörur og þjónustu fyrir tæpar 260 þúsund krónur með því að gefa símleiðis upp númer á greiðslukorti sem hún átti ekki.
Spenntu upp spilakassa
Nokkuð hefur verið um innbrot á Akureyri að undanförnu. Í fyrrinótt var brotist inn í tvö fyrirtæki í bænum, Bónusvideo við Geislagötu og tölvufyrirtækið Skrín við Furuvelli.
Skilorð fyrir hnefahögg
Hæstiréttur staðfesti átta mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni á þrítugsaldri. Maðurinn var fundinn sekur um að slá annan mann hnefahöggi í andlitið.
Sýknaður af innbroti
Hæstiréttur sýknaði síbrotamann af innbroti í verslun í Mjódd þar sem 3.000 þúsund krónum var stolið úr peningakassa verslunarinnar.
Árekstur á miðri brú
Árekstur varð á miðri brúnni yfir Tungnaá skammt frá Hrauneyjum í gærdag. Glerhált var og náðu ökumenn bílanna sem komu úr gagnstæðri átt ekki að stöðva áður en bílarnir lentu saman að sögn Lögreglunnar á Hvolsvelli.
Síbrotamaður í fangelsi
Hæstiréttur mildaði þriggja ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir síbrotamanni í tveggja og hálfs árs fangelsi. Maðurinn var sakfelldur fyrir hylmingu, níu þjófnaðarbrot, eina tilraun til þjófnaðar og umferðarlagabrot.
Hæstiréttur lækkar bætur
Hæstiréttur lækkaði slysabætur til ungrar konu, vegna miska sem hún hlaut í bílslysi árið 1998, vegna ölvunar ökumannsins. Ökumaðurinn, sem var kærasti konunnar, lést í slysinu. Áfengismagn í blóði hans reyndist vera 2,15 prómill.

Dæmdur fyrir að rífa upp klósett
Maður á sextugsaldri var, í Héraðsdómi Norðurlands eystra, dæmdur í þrjátíu daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að rífa salernisskál upp úr gólfi hjá nágranna sínum. Salernisskálin eyðilagðist.

Tuttugu karlar yfirheyrðir
Meira en tuttugu karlmenn hafa verið yfirheyrðir af lögreglunni í Reykjavík vegna rannsóknar á starfsemi nuddstofu sem auglýsti erótískt nudd. Grunur er um að á nuddstofunni hafi farið fram vændi af einhverju tagi. Mennirnir eru taldir hafa keypt kynlífsþjónustu á nuddstofunni. Rannsókn málsins er rétt að ljúka.
Byssumaður við Hrauneyjar
Karlmaður á sjötugsaldri skaut úr skotvopni upp í loft við Hrauneyjarfossvirkjun í nótt. Hann mun samkvæmt upplýsingum fréttastofu hafa verið í uppnámi vegna uppsagna starfsmanna við virkjunina.

Fjórir þjófar handteknir
Reykjavíkurlögreglan handtók fjóra menn á bíl í nótt eftir að tilkynnt var að þeir hefðu brotist inn í fjölbýlishús og látið greipar sópa í geymslum hússins. Lögreglumenn stöðvuðu mennina skammt frá húsinu og reyndist ýmiskonar varningur vera í bílnum sem menn eru ekki vanir að fara með í bíltúr um miðja nótt.

Framburður Jónasar þótti ótrúlegur
Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas, þremenningarnir í líkfundarmálinu, voru í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi. Þeir voru fundnir sekir um fíkniefnabrot, fyrir að koma manni í lífshættu ekki til hjálpar og fyrir illa meðferð á líki.

Sjö handteknir í Hafnarfirði
Lögreglan í Hafnarfirði handtók samtals sjö manns í tveimur fíkniefnamálum sem upp komu í bænum í gærkvöldi og í nótt. Lítilsháttar af efnum var gert upptækt og er talið að fólkið hafi ætlað það til eigin nota. Málin teljast bæði upplýst og hefur öllum verið sleppt en sektir verða ákveðnar síðar.

Mörg siðferðileg álitamál
Mörg siðferðileg álitamál skutu upp kollinum samtímis þegar maður fyllti tankinn af bensíni á sjálfsafgreiðslustöð í Reykjavík og ók brott án þess að fara fyrst inn og borga. Hann sagðist svo eftir á hafa verið að taka upp í það sem olíufélögin væru búin að stela af honum með ólöglegu samráði í gegnum tíðina.

Eldur tekur jóðsótt ...
Fjölmennt slökkvilið var sent að verksmiðju Lýsis við Grandaveg um klukkan fimm í morgun eftir að nágranni verksmiðjunnar tilkynnti um eld og reyk í húsinu. Þegar til kom sást þar ekkert athugavert nema hvað laus járnplata blakti í vindinum og var hún fest.

Allir dæmdir í 2 1/2 árs fangelsi
Sakborningarnir í líkfundarmálinu svokallaða, Grétar Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnarsson og Thomas Malakauskas, voru dæmdir í tveggja og hálfs árs fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Þeir voru ákærðir fyrir að koma Litháanum Vaidas Juceviciusi ekki til hjálpar í neyð, ósæmilega meðferð á líki hans og innflutning á tæplega 224 grömmum af amfetamíni.

Færri glæpir en fleiri fangar
Bandarískum föngum fjölgaði á síðasta ári þrátt fyrir að bæði ofbeldisglæpum og þjófnuðum fækkaði samkvæmt nýrri skýrslu bandaríska dómsmálaráðuneytisins.
Stýrði fjárkúgun úr fangaklefa
Mafíuforingi sem var dæmdur fyrir fjárkúgun hélt áfram að stýra starfseminni úr fangaklefa sínum. Hann kom skilaboðum fyrir í óhreina þvottinum sem hann lét ættingja sína sækja í fangelsi. Þannig kom hann fyrirskipunum áfram til undirmanna sinna sem héldu áfram að kúga fé út úr vínsölum á Sikiley.

Saksóknari þarf leyfi Hæstaréttar
Ríkissaksóknari hefur lagt fram beiðni til Hæstaréttar um áfrýjun vegna dóms Héraðsdóms Reykjaness þar sem frestað var refsingu manns sem beitti eiginkonu sína ofbeldi.

Ekki vafasamt fólk til landsins
"Við viljum ekki svona hópa inn í landið," segir Georg Lárusson, forstjóri Útlendingastofnunar, um danska meðlimi vélhjólasamtakanna Hogriders, sem vísað var úr landi á laugardag. Georg vill ekki tjá sig um hvaðan upplýsingar um mennina koma en segir lögregluna fylgjast með slíkum hópum.

Sextán tölvuskjám stolið
Sextán nýjum IBM-tölvuskjám var stolið í innbroti í Menntaskólann við Sund síðastliðna nótt. Kjallaragluggi var spenntur upp og skjáirnir handlangaðir út um hann. Tölvurnar sjálfar voru hins vegar á sínum stað, sem og tölvuprentari.

Amfetamín falið í loftpressu
Fimm eru enn í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á einu stærsta fíkniefnamáli síðari ára þar sem um ellefu kílóum af amfetamíni og 600 grömmum af kókaíni var smyglað með Dettifossi í tveimur ferðum. Tvö þúsund skammtar af LSD komu með póstinum.
Fíkniefni í húsleit
Nokkuð af fíkniefnum fannst í húsleit í Grafarvogi sem gerð var hjá manni á þrítugsaldri síðastliðinn föstudag. Þar fundust um 200 grömm af hassi, 200 grömm af maríjúana, átján grömm af kókaíni og sextán grömm af amfetamíni.

Þrír handteknir í Keflavík
Lögreglan í Keflavík færði þrjá menn í fangageymslur í nótt vegna ölvunarástands þeirra að sögn Víkurfrétta. Einn þremenninganna hafði sparkað í fót eins lögreglumanns sem þurfti að hafa afskipti af honum. Allir mennirnir voru látnir sofa úr sér vímuna.

Slapp ómeiddur úr bílveltu
Fólksbifreið valt í umdæmi Selfosslögreglu laust eftir klukkan sjö í morgun á Biskupstungnabraut á móts við bæinn Torfastaði. Ungur ökumaður var einn í bílnum og slapp hann nánast ómeiddur úr veltunni.
Ók utan í bíla á stolnum bíl
Maður um þrítugt var handtekinn á áttunda tímanum í morgun á Frakkastíg í miðborg Reykjavíkur. Hann sat þversum undir stýri á bíl sem hann hafði stolið og hafði hann ekið utan í fjórar kyrrstæðar bifreiðar í næsta nágrenni á ferðalagi sínu.

Vélhjólamönnum vísað úr landi
Félögum í vélhjólaklúbbnum Hog Riders, sem landamæravarslan í Leifsstöð stöðvaði við komuna til landsins í gær, hefur verið vísað úr landi. Stærsti hluti hópsins bíður enn í flugstöðinni eftir því að fá sæti utan en nokkrir eru þegar farnir.

Fangageymslur fylltust á Selfossi
Allar fangageymslur lögreglunnar á Selfossi fylltust í nótt. Þar gista nú sex karlar á milli tvítugs og þrítugs, allir handteknir í tengslum við fíkniefnaneyslu. Sá fyrsti var handtekinn undir stýri í nótt, undir áhrifum fíkniefna. Lögregla fann kannabisefni á manninum og var hann lagður til svefns í fangaklefa.