Þórólfur Matthíasson

Fréttamynd

Lyklalög, bót eða böl

Allt frá hruni fjármálakerfisins íslenska hafa ítrekað komið upp hugmyndir um að breyta lagaákvæðum um uppgjör veðlána þar sem íbúðarhúsnæði er veðandlag.

Skoðun
Fréttamynd

Mörg er matarholan

Nýlega bárust fréttir af því að íslenska ríkið hefði tapað máli sem var höfðað vegna ákvörðunar Jóns Bjarnasonar, þáverandi landbúnaðarráðherra, frá árinu 2009. Með alþjóðasamningum er Ísland skuldbundið til að heimila innflutning örfárra tonna af nánar tilteknum flokkum landbúnaðarvara ár hver. Jón ákvað að hækka ofurtolla sem þegar voru lagðir á þennan innflutning. Tollar takmarka innflutning og hækka það verð sem innlendir framleiðendur geta selt afurðir sínar á. Ofurtollar og ofurofurtollar stoppa innflutning og gefa innlendum framleiðendum frjálsar hendur um verðlagningu afurða sinna. Héraðsdómur hefur nú komist að þeirri niðurstöðu að Jón hafi gengið of langt í stuðningi við innlenda framleiðendur. En hvert er umfang þessa stuðnings?

Skoðun
Fréttamynd

Úttekt á samfélagslegum þáttum fiskveiðistjórnunar

Fiskveiðar hafa frá landnámi verið mikilvægar fyrir afkomu Íslendinga. Sjósókn var og er ein af undirstöðugreinum þjóðarinnar og það er ljóst að sá auður sem orðið hefur til við nýtingu á gæðum sjávar hefur skipt sköpum til að bæta lífsskilyrði landsmanna.

Skoðun
Fréttamynd

Samhengi skuldanna

Ekkert einfalt samband ríkir milli skuldaaukningar eða skuldaminnkunar einstakra fyrirtækja annars vegar og heildarskulda þeirrar atvinnugreinar sem fyrirtækið tilheyrir hins vegar. Skoðum fjögur dæmi:

Skoðun
Fréttamynd

Spurningar áréttaðar

Í grein hér í blaðinu þann 3ja maí síðastliðinn spurði ég forystu Bændasamtaka Íslands, að gefnu tilefni, nokkurra spurninga. Nú eru liðnar þrjár vikur frá birtingu greinarinnar og í millitíðinni hefur málgagn Bændasamtakanna, Bændablaðið, komið út.

Skoðun
Fréttamynd

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 2009 að sjá til þess að þjóðin nyti eðlilegs arðs af sameign sinni, fiskinum í sjónum.

Skoðun
Fréttamynd

"Hækkun í hafi“?

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna lofaði fyrir þremur árum, í stjórnarsáttmála, að stofna auðlindasjóð sem sæi um innheimtu afgjalda fyrir fénýtingu einstaklinga og fyrirtækja á sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar. Líta má á hækkun veiðigjalds í fiskveiðum undangengin ár sem veika viðleitni til að standa við þetta loforð. En loforðið er engu að síður enn óefnt að flestra manna mati.

Skoðun
Fréttamynd

Bændasamtökin: ríki utan ríkisins?

Í 15. gr. svokallaðs búnaðarlagasamnings sem gerður er á grundvelli laga nr. 70/1998 er kveðið á um að Bændasamtök Íslands skuli halda aðskildum fjármunum sem til samtakanna renna úr ríkissjóði og öðrum fjárreiðum sínum.

Skoðun
Fréttamynd

Vaskurinn og laxinn

Ríkissjóður Íslands er í vanda vegna skulda. Stjórnvöld virðast leita allra leiða til að auka tekjur og draga úr útgjöldum. Forsvarsmenn í atvinnulífi bera sig illa vegna fyrirhugaðra hækkana á ýmsum rekstrartengdum álögum. Telja jafnvel að fótum sé kippt undan starfsemi sinni.

Skoðun
Fréttamynd

Fjárhagsumsvif Bændasamtaka Íslands

Samkvæmt ríkisreikningi ársins 2010 runnu 16,5 milljarðar króna af skatttekjum til landbúnaðartengdra málefna. Greiðslur til Bændasamtaka Íslands námu um hálfum milljarði króna auk þess sem Bændasamtökin sáu (og sjá) um útgreiðslu fjár úr ríkissjóði eða um að safna nauðsynlegum upplýsingum vegna slíkra útgreiðslna.

Skoðun
Fréttamynd

Vandtaldir keppir í sláturtíðinni

Í grein í Bændablaðinu 29. september sl. fjallar forstjóri Sláturfélags Suðurlands (sem notar hina útflutningsvænu skammstöfun SS á sumar vörur sínar) um ávinning sauðfjárbænda af útflutningi sauðfjárafurða. Tilefni greinar forstjórans er greinarskrif mín í Fréttablaðið undanfarið.

Skoðun
Fréttamynd

Einkasala, einhliða viðskiptahættir, reykur, speglar og slæður

Gouda-ostar eru kenndir við borgina Gouda í Suður-Hollandi og hafa verið í framleiðslu frá því fyrir 1667 en það ár var lagður sérstakur söluskattur á þessa ostategund. Tekjurnar voru notaðar til að fjármagna húsnæði fyrir ostamarkaðinn í Gouda og til að greiða kostnað löggiltra vigtarmanna auk annars.

Skoðun
Fréttamynd

Sauðfjárbúskapur: 7 milljarða árlegt tap?

Umræða undangenginna vikna um afkomu sauðfjárbænda og réttlætingu fyrir styrkjum til þeirra vekur upp spurningar um framlag greinarinnar til þjóðarbúsins. Ekki er auðvelt að finna öruggar tölur þar um. Byggja má á búreikningum Hagþjónustu landbúnaðarins. Á heimasíðu Hagþjónustunnar má finna upplýsingar um afkomu meðalsauðfjárbús á árinu 2009. Tölurnar sem þar eru birtar er þó ekki hægt að nota eins og þær koma beint af skepnunni ef svo má segja.

Skoðun
Fréttamynd

Hæpinn gjaldeyris-ávinningur

Í grein hér í blaðinu 3ja ágúst síðastliðinn gerði ég tilraun til að meta gjaldeyriskostnað tengdan útflutningi lambakjöts að verðmæti 2,75 milljarða króna á árinu 2010. Í samhljóma aðsendum greinum í Fréttablaðinu og Bændablaðinu gerir forstöðumaður félagssviðs Bændasamtaka Íslands tilraun til að bæta ágiskanir mínar í þessum efnum.

Skoðun
Fréttamynd

Sauðir og sauðfjárrækt í sjálfheldu styrkja

Búreikningar eru skýrslur og úrvinnsla sem Hagþjónusta landbúnaðarins hefur unnið upp úr bókhaldi bænda. Ekki er um tilviljanakennt úrtak að ræða, en yfirleitt er gengið út frá að það séu frekar betur búandi bændur sem senda inn bókhaldsupplýsingar en þeir sem lakar eru búandi. Raunafkoma meðalbús ætti því að vera heldur lakari en fram kemur í úrvinnslu Hagþjónustunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Kjötverð, beingreiðslur, útflutningur og matvælaöryggi

Íslenskir neytendur og íslenskir kjötsalar lenda í verulegum hremmingum vilji þeir flytja inn erlent kjötmeti. Íslenskum bændum er hins vegar frjálst að flytja út kjöt eftir því sem tollasamningar og almenn skilyrði aðflutningslanda tilgreina.

Skoðun
Fréttamynd

Hrútar á haug og aðrir heimsborgarar

Kindakjötsframleiðendur hafa í tímans rás ýmist flutt út kjöt eða fargað til að takmarka framboð og hækka verð á innanlandsmarkaði. Útflutningur kindakjöts er ekki og hefur ekki verið útlátalaus fyrir skattgreiðendur á Íslandi. Í þessari grein verður gerð tilraun til að útskýra gangvirki förgunar og útflutnings kindakjöts jafnframt því sem reynt verður að svara þeirri spurningu hvort réttlætanlegt sé að flytja kindakjöt til útlanda í þeim tilgangi að afla gjaldeyris.

Skoðun
Fréttamynd

Kostaðar rannsóknir

Til að stunda fræðilegar rannsóknir þarf sérhæfðan mannafla. Stundum þarf dýran tækjabúnað. Oft þarf að ráðast í kostnaðarsama og umfangsmikla gagnaöflun.

Skoðun
Fréttamynd

Gengi krónunnar og leigugjald fyrir kvóta

Fyrir nokkru leyfði ég mér að draga athygli lesenda Fréttablaðsins að upplýsingum Hagstofu Íslands um afar góða afkomu veiða og vinnslu á fyrsta heila árinu eftir hrun. Þessar upplýsingar falla ekki vel að fullyrðingum talsmanna stærri útgerðarfyrirtækja. Þeir hafa haldið því fram að kæmi til þess að útgerðin þyrfti að greiða leigu eða afgjald fyrir afnot af sjávarauðlindinni myndi horfa til auðnar í greininni. Hagstofutölurnar sýna að gjaldþol greinarinnar er umtalsvert, hvað sem barlómi talsmanna hennar líður.

Skoðun
Fréttamynd

Veiðigjald og gengi

Nýbirt samantekt Hagstofu Íslands úr reikningum sjávarútvegsfyrirtækja sýnir að svokallaður hreinn hagnaðar (sem sumir enskumælandi hagfræðingar kalla superprofit, ofurhagnað) í veiðum og vinnslu nam 45

Skoðun
Fréttamynd

Gjaldþol útgerðar

Hagstofa Íslands vinnur árlega yfirlit yfir hag fiskveiða og fiskvinnslu. Yfirlit þetta er byggt á skattframtölum fyrirtækja í þessum greinum. Yfirlit ársins 2009 kom út í lok janúar 2011. Það er fróðleg lesning í ljósi umræðu um

Skoðun
Fréttamynd

Að gera illt verra

Stjórn samtaka sem kenna sig við hagsmuni heimilanna hefur tekið sér umboð til að krefjast flatrar niðurfærslu húsnæðislánanna. Rökin eru að lagfæra þurfi laskaða efnahagsreikninga heimilanna í landinu.

Skoðun
Fréttamynd

Þórólfur Matthíasson: Fjármálastöðugleiki, matvælaöryggi og afhending raforku

Þeir eru margir, lærdómarnir af hruni íslensku bankanna haustið 2008. Einn lærdómurinn snýr að fjármálastöðugleika. Allmargar stofnanir innan stjórnkerfisins bára ábyrgð á ákveðnum þáttum fjármálastöðugleikans. Á ytra borði leit út fyrir að hér á landi væri verið að nota bestu þekkingu til að tryggja stöðugleika fjármálakerfisins.

Skoðun
Fréttamynd

Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur

Eva Joly hefur tekið að sér að vera íslenskum stjórnvöldum til ráðgjafar um rannsókn á efnahagsbrotum í aðdraganda bankahrunsins í október 2008. Aðkoma hennar hefur orðið til þess að efla hjá íslenskum almenningi trú á að verið sé að vinna af heilindum að rannsókn hugsanlegra efnahagsglæpa enda á hún glæstan feril að baki á þessu sviði. Joly var nýverið kosin á Evrópuþingið þar sem verkefni hennar verður m.a. að endurmóta umgjörð efnahags- og fjármálalífs álfunnar.

Skoðun
Fréttamynd

Staðreyndir og blekkingar

Þórólfur Matthíasson svarar Ögmundi Jónassyni Ögmundur Jónasson sendir mér tóninn á heimasíðu sinni auk þess að veita málglöðum einstaklingum sem bera nöfn eins og Pétur, Aðalsteinn eða Árni athvarf á þessari sömu síðu. Svo undarlega vill til að þessir bréfavinir Ögmundar eru allir á sama máli og hann. Vera kann að þetta marghenta vefsíðu-orgelspil sé verk margra manna. En hvort sem Ögmundur er margur eða einn í þessum skrifum er eitt víst og það er að þau auka ekki gæði þjóðfélagsumræðunnar á Íslandi. Síðasta pistil sinn kallar Ögmundur Hættum blekkingum! Þann pistil mun hann einnig hafa birt í Morgunblaðinu.

Skoðun
Fréttamynd

Ekki meir, ekki meir

Sögur af fátæku fólki þriðja heimsins og basli þess voru fastur liður í jólaheftum blaða og tímarita sem ég las í æsku. Þessar sögur voru nokkur svölun þeim sem lítt var kunnur högum fólks í útlöndum. Seinni tíma reynsla sýnir reyndar að þessar jólasögur voru slæm heimild um útlönd, en góð heimild um hugarheim þeirra sem rituðu og birtu.

Skoðun
Fréttamynd

Tekjutengjum sjómannaafsláttinn

Frá því er greint í fréttum Ríkisútvarpsins 25.11.2009 að dæmi séu um að hásetahlutur á fjölveiðiskipum sem svo eru nefnd geti farið í 30 milljónir króna á ári. Jafnframt er tekið fram að gjarnan séu 2 menn um hvert pláss á slíkum skipum. Árslaun einstakra starfsmanna á fjölveiðiskipi geta þá rokkað á milli 15 og 35-40 milljóna króna eftir því hvort um háseta eða yfirmann er að ræða. Með öðrum orðum: Tekjur þessara aðila sveiflast frá því að vera rífleg forsætisráðherralaun og yfir í það að losa laun forsætisráðherra og 2ja óbreyttra þingmanna að auki! En þar með er ekki allt talið því almenningur leggur sérhverjum einstaklingi í þessum hópi til 100 til 200 þúsund krónur á ári í formi skattafsláttar, sjómannaafsláttarins. Ríkisskattstjóri upplýsir að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna sjómannaafsláttarins nemi um 1,1 milljarði króna.

Skoðun
Fréttamynd

Er plús mínus?

Margt skrítið hefur verið sagt um lán og lántökukostnað síðustu mánuðina. Sumir þeirra sem taka þátt í opinberri umræðu um þau mál virðast hafa þann tilgang helstan að rugla fólk í ríminu og koma af stað misskilningi. Nú síðast er ruglað saman verðinu sem greitt er fyrir þjónustu lánastofnana og magni þeirrar þjónustu sem seld er.

Skoðun