

Ferðamönnum til Íslands hefur fækkað stórlega með tilkomu Covid 19. Hótel og matsölustaðir standa tómir, samdráttur í ferðaþjónustu hefur víða áhrif. Blikur eru á lofti í íslenskum landbúnaði, mun minni sala hefur verið á íslenskum landbúnaðarvörum en í venjulegu árferði.
Í dag er ég er glöð því í fyrsta skipti í sögu þessarar þjóðar er lögð fram heildstæð stefna íslenskra stjórnvalda í kvikmyndagerð. Því ber að fagna.
Alþingi hefur samþykkt frumvarp um hlutdeildarlán, þau eru byltingarkennd lausn á húsnæðismarkaði og kemur til móts við ungt fólk og tekjulága. Markmiðið með lögunum er að auðvelda þessum hópi að eignast sína fyrstu íbúð.
Undanfarin ár hefur það verið skýr og sanngjörn krafa landsmanna að allir hafi góðan og greiðan aðgang að heilbrigðisþjónustu. Krafan er að allir hafi aðgang, óháð stöðu, búsetu eða efnahag.
Þau sögulegu tíðindi áttu sér stað í liðinni viku að í fyrsta skipti skipa konur meirihluta í ríkisstjórn fyrir Framsóknarflokkinn.
Ísland er í einstakri stöðu. Atvinnuþátttaka hefur sjaldan verið jafn mikil og nú. Í raun hefur atvinnuleysi ekki verið minna síðan árið 2008 og getur jafnvel farið niður í eitt til tvö prósent í sumar
Það hefur verið ansi merkilegt að fylgjast með umræðunni síðustu viku. Mörg misgáfuleg ummæli hafa verið látin falla um hæfi forsætisráðherra.
Eitt sinn kunnu nánast allir leiðir til að nýta matvæli sem best og okkur þótti eðlilegt að borða afganga. Á tímabili hurfu menn frá þessu því heimilishald breyttist í takt við þjóðfélagið og hraða þess. Tími til matarundirbúnings varð minni og áherslurnar breyttust.
Ein helsta áhersla Framsóknar – á þessu kjörtímabili sem öðrum – hefur verið á heimilin í landinu. Í byrjun ársins fórum við að sjá áhrif leiðréttingarinnar á verðtryggðum húsnæðislánum og í vor var samþykkt, samhliða gerð kjarasamninga, að ráðast í umfangsmiklar aðgerðir til úrbóta á húsnæðismarkaði, bæði fyrir leigjendur og eigendur.
Mikill órói var á vinnumarkaði síðastliðið vor, þar sem hart var tekist á í viðræðum um kjarasamninga. Tekist var á um hve háa upphæð hver og einn ætti að fá í launaumslagið.
Frumskylda stjórnvalda er að verja þjóðarhagsmuni og huga að hagsmunum heildarinnar. Framsóknarflokkurinn var eini flokkurinn sem þorði að taka afgerandi afstöðu og lýsa því yfir í aðdraganda kosninga að hægt væri að fara þá leið sem boðuð hefur verið við losun hafta.
Í aðdraganda kjarasamninga undanfarna mánuði hefur töluvert verið rætt um að nauðsyn sé á miklum almennum hækkunum og verkalýðsleiðtogar sagst tilbúnir í verkfallsaðgerðir ef kröfur þeirra verða ekki samþykktar undanbragðalaust.
Fjölmörg heimili fá nú leiðréttingu á verðtryggðum húsnæðislánum sínum. Markmiðið er að skila til baka því "tjóni“ sem heimilin urðu fyrir og færa lánin í þá stöðu sem þau hefðu verið í ef óvænt og mikil verðbólga hefði ekki sett skuldastöðu þeirra í uppnám á árunum 2008 og 2009.
Allt frá stofnun Atlantshafsbandalagsins árið 1949 hefur Ísland verið aðildarríki. Aðildin ásamt varnarsamningnum við Bandaríkin hefur því verið hornsteinn íslenskra öryggis- og varnarmála í 65 ár.