Pistlar

Rónalíf
Hér er fjallað um morgunverk rónanna í Reykjavík, lífið á bekkjunum á Lækjartorgi og inni á veitingastaðnum Kaffi Skít, óþrifaðinn í bænum um helgar, sómasamloku sem datt af himnum ofan og stefnu Samfylkingarinnar, ríkisstjórnarinnar og Moggans í varnarmálum...

Bankasalan - vonandi sagan öll
Hér er fjallað um fyrsta hluta af fréttaskýringu um sölu Búnaðarbanka og Landsbanka sem birtist í Fréttablaðinu, Halldór Ásgrímsson sem hefur áhyggjur af göngustígum á Esjunni og Davíð Oddsson sem skipar sendiherra eins og hann eigi lífið að leysa, en einnig er minnst á malaríu og skordýraeitrið DDT...

Að byggja úti í eyjunum
Hér er fjallað um djarfar skipulagshugmyndir sjálfstæðismanna sem Steinunn Valdís segir að þeir hafi stolið frá sér, málamiðlun í flugvallarmálinu, fréttaflutning af meintu kosningasvindli Ágústs Ólafs Ágústssonar og einnig er vikið að matvöru og sjónvarpsefni sem Íslendingar eru að selja í útlöndum...

Herferð gegn dólgum
Hér er fjallað um stjórn Tonys Blair sem hefur skorið upp herör gegn dólgshætti í enskum borgum, bann við hettupeysum í verslunarmiðstöðvum og "happy hours" sem heyra sögunni til, sérstæða stjórnmálaskýringu Árna Mathiesen og ungan áhugamann um marsbúa...

Gömlustrákafélagið að störfum
Hér er fjallað um klíkur í íslensku samfélagi, "the old boys network", ráðhúsklíkuna og Jóhönnu Sig sem er ekki boðið sendiherraembætti, prest sem er í uppnámi, gáfumannlega umfjöllun um nýju Star Wars myndina, stelpur með Gucci töskur í Kína og Davíð sem fór hvergi...

Alvarlegt en um leið hlægilegt
Hér er fjallað um Evróvision, hið misheppnaða íslenska atriði, ömmuna frá Moldavíu, Evópusambandið og Love Parade, Norðurlandamafíuna, okrið á Íslandi, viðtal við Gísla Martein í Mogganum, vofu sem leitar að borgarandanum og örvæntingarfullan landsbyggðarþingmann úr Samfylkingu...

Steingrímur J. þingmaður ársins
Steingrímur J. Sigfússon, formðaur Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs er þingmaður ársins að mati lesenda Vísis. Niðurstöður kosninga á Vísi voru kynntar í lokaþætti Silfurs Egils í dag og hlaut Steingrímur J. afgerandi kosningu. Þá er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sá einstaklingur sem lesendur Vísis vilja helst sjá á þingi.

Egill á nú Silfur Egils
Magnús Ragnarsson, sjónvarpsstjóri Íslenska sjónvarpsfélagsins, sem m.a. rekur Skjá einn, afsalaði í dag vörumerkinu "Silfur Egils" til Egils Helgasonar, þáttastjórnanda á Stöð 2. Magnús mætti í lokaþátt Silfurs Egils og afhenti Agli afsal til staðfestingar þessu.

Það kvað vera fallegt í Kína
Hér er fjallað um ferð Ólafs Ragnars og íslenskra bisnessmanna til Kína, þrálát ferðalög Halldórs Ásgrímssonar, óvini Georges Galloway, tvískinnung sumra andstæðinga Írakstríðsins og söluna á Manchester United til bandarísks auðkýfings...

Keisarastjórnin og kommarnir
Bolsévíkabyltingin er einn mesti harmleikur mannkynssögunnar. Heilt samfélag var dregið ofan í barbarisma – og síðan breiddist þetta út um löndin. Keisaradæmið hafði tekið mikilli framþróun undir lokin. Í sveitum var sterk hreyfing bændafrömuða, eins konar framsóknarmanna...

Nytsamur harðstjóri í vanda
Hér er fjallað um atburðina í Úsbekistan og Islam Karimov, sérstakan vin Bandaríkjanna í þessum heimshluta, vanstillta múslima, vandræði General Motors, gamla og nýja bandaríska módelið, lífskjör í Noregi og æsta verjendur kommúnismans...

Vinstri absúrdismi
Hér er fjallað um George Galloway, þingmann á breska þinginu og sérstakan málsvara Saddams Hussein, málflutning Jónínu Benediktsdóttur, sölu Búnaðarbankans, lekann úr skrám Samfylkingarinnar, brotthvarf Gunnars Örlygssonar úr Frjálslynda flokknum og heimspekinginn Wittgenstein...

Manhattan höfuðborgarinnar?
Hér er fjallað um afmæli Kópavogs og blað sem var gefið út af því tilefni, reiðileg viðbrögð sendiherra Rússlands við leiðara Morgunblaðsins um stríðslokin, brotthvarf Gunnars úr Frjálslynda flokknum og loks minnist ég Sæmundar Guðvinssonar með nokkrum orðum...

Fallegt og ljótt í Reykjavík
Hér er greint frá umræðum sem hafa sprottið vegna greinar sem ég skrifaði um skipulagsmálin í Reykjavík, velt vöngum yfir því hvaða staðir í Reykjavík séu fegurstir og hverjir séu ljótastir - frá Tjörninni og Þingholtunum yfir í Breiðholtsbrautina og Hlemminn...

Sæt og loðin aðskotadýr
Hér er fjallað um bísamrottur, kanínuplágu sem hefur herjað á Ástralíu í hundrað ár, samgönguáætlun Gunnars Birgissonar og viðbrögð Sturlu við henni, svarta borða sem voru hengdir upp hús við Laugaveg og vanmetna stjórnmálamenn...

Þingmaður ársins - síðasti séns
Valið á þingmanni ársins stendur yfir hér á vefnum fram á laugardagskvöld. Tilkynnt verður um úrslitin í Silfri Egils á sunnudag. Kosið verður um þingmann sem hefur skarað fram úr á árinu, en einnig leiðir kosningin í ljós hverjir eru fremstir meðal jafningja í hverjum þingflokki fyrir sig. <A href="http://www.visir.is/?PageID=742" target=_self><FONT color=#000080><STRONG>Smellið hér</STRONG></FONT></A> til að kjósa...

Jean Paul Sartre í Silfrinu
Meðal gesta eru Pétur Gunnarsson rithöfundur og Gérard Lemarquis háskólakennari sem munu ræða hinn áhrifamikla franska heimspeking Jean Paul Sartre. Það eru liðin hundrað ár frá fæðingu Sartres og í Frakklandi fer fram mikið endurmat á arfleifð hans. Meðal þess sem hefur verið spurt er hvort Sartre hafði alltaf rangt fyrir sér?

Spáð í kosningakerfi
Hér er fjallað um mismunandi aðferðir við að kjósa til þings, í Bretlandi, á Íslandi og í Skandinavíu, lélegt fylgi bæði Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins í bresku kosningunum, skrítna leiðtoga Íhaldsins og hugsanlega sendiherratign handa Guðmundi Árna...

Klisjur um hrútspunga og lauslæti
Hér er fjallað um Íslandsþátt Oprah Winfrey, fárið út af svonefndri Mannréttindaskrifstofu, milliuppgjör formannsframboðs Össurar, þrýsting sem er settur á Ingibjörgu um að birta samskonar upplýsingar og byggingu risaverslunar IKEA í Garðabæ...

Brjálaðir á samstarfsflokknum
Hér er fjallað um ástandið á stjórnarheimilinu, framsóknarviku Deiglunnar, litla ánægju með störf ráðherra, þingmanninn og verkalýðsforingjann Ögmund Jónasson, frumvarp um Ríkisútvarpið og brandara Lauru Bush...

Olía, jeppar og risaeðlur
Hér er fjallað um olíuna og hvernig æ fleiri telja að Vesturlönd séu alltof háð henni, þar á meðal óvænt bandalag hægrimanna og græningja í Bandaríkjunum, General Motors og stóra jeppa en einnig er spurt hvort sumt fólk sækist eftir því að vera í Séð & heyrt...

Skógarferð í Slóveníu
Hér er fjallað um skemmtilega gönguferð í fjalllendi Slóveníu, Jónas Hallgrímsson þeirra Slóvena, hús þar sem Krútsjof, Bokassa og Monica Lewinsky hafa gist, eiturefni í farþegaflugvél, gamanmál Lauru Bush og "en hvað með–ismann"...

Jón Ormur, Össur, Björn og Steingrímur
Meðal gesta í Silfri Egils á sunnudaginn verða Jón Ormur Halldórsson, Össur Skarphéðinsson, Steingrímur J. Sigfússon, Björn Bjarnason, Dagur B. Eggertsson, Margrét Frímannsdóttir og Hjálmar Árnason.

Í húsi Titos
Hér segir frá undurfögru stöðuvatni í Slóveníu, villu sem Tito marskálkur lét reisa sér, dásamlegum matarmarkaði í Ljubljana og ævintýrum Mozarts...

Um Ólaf kristniboða
Fyrir stuttu tók ég þátt í dagskrá um Kína á vegum Listvinafélags Seltjarnarneskirkju. Framlag mitt var að fjalla um afa minn, Ólaf Ólafsson kristniboða, en hann starfaði í Kína um 14 ára skeið á árunum 1921 til 1937. Lifði mjög viðburðaríka ævi og var einn víðförlasti Íslendingurinn á sinni tíð...

Fleiri blöð - stórir auglýsendur
Hér er fjallað um blaðaútgáfuna á Íslandi og spurt hvort hún verður aðallega í höndum stórra auglýsenda, sjónvarpsþáttinn Strákana sem er fyrirtaks dæmi um það sem kallast "laddishness", stjórnmálaflokk fyrir innflytjendur og fermingarbarn sem efnaðist vel...

Mun þetta líta svona út?
Hér er fjallað um byggingu Háskólans í Reykjavík við Reykjavíkurflugvöll, spurt hvort það verði flæmi bílastæða með lágreistum húsum, lítinn málefnaágreining mili Össurar og Ingibjargar og birtingu upplýsinga um fjármál þingmanna...

Flatir skattar og Untergang
Meðal þess sem fjallað verður um í Silfri Egils á sunnudag eru hugmyndir um flatan skatt sem eru mjög að ryðja sér rúms, kvikmyndin Der Untergang, fjarskiptalög og persónunjósnir og margt fleira...

Ömurð
Hér er fjallað um göngutúr um hina þunglyndislegu Reykjavík, Bentley lúxusbifreiðar og ameríska jeppa, skoðanir Benedikts XVI á rokktónlist og spurt hvort öll umræðan um formannskjörið í Samfylkingunni breyti einhverju?

Á Íslendingaslóðum í Kaupmannahöfn
Hér er fjallað um Íslendinga í Kaupmannahöfn fyrr og síðar, Ögmund Sívertsen, Stefán Íslandi og ungt fólk á Norðurbrú, sjálfstæðismenn sem eru beðnir að kjósa í Samfylkingunni, langar kosningar og hinn vinsæla Gordon Brown...