Silfur Egils

Fréttamynd

Skynsemi sem er gengin af göflunum

Hagvaxtarhyggjan er stækasti rétttrunaður samtímans. Hún er nánast eini mælikvarðinn sem er lagður á verk ríkisstjórna. Það sem er einkennilegast við hana er að hún íklæðist gervi skynseminnar, lætur eins og hún sé hin eina og sanna skynsemi...

Fastir pennar
Fréttamynd

Staðan í borginni

Það verður enginn hreinn meirihluti. Sumir gera því skóna að Framsókn myndi meirihluta með Sjálfstæðisflokki. Það myndi vissulega veita Framsókn völd langt umfram kjörfylgi – sem er þekkt og eftirsótt staða á þeim bæ. En miðað við hina pólitísku taflstöðu er þetta ólíklegt...

Fastir pennar
Fréttamynd

Bítlabærinn – Þjóðleikhús að hrynja

Hér er fjallað um skemmtilega heimildarmynd um bítlabæinn Keflavík, þá merku listgrein skautadans, Þjóðleikhúsið sem stendur með brotna glugga og múrhúð sem er að hynja af byggingunni og loks er minnst á viðtal við Sjón sem birtist í Silfrinu...

Fastir pennar
Fréttamynd

Sektarþrá og eilífar afsakanir

Samt verður maður var við ótrúlega tregðu við að styðja gildi vestræns samfélags, hjá mörgum þykir það beinlínis ljótt. Afstæðishyggjan með öllum sínum flóknu réttlætingum er býsna notaleg – maður þarf í raun aldrei að taka afstöðu til neins, allt má skýra með menningarmun og félagsmótun...

Fastir pennar
Fréttamynd

Hægri grænir?

Hér er fjallað um stórlaxa í viðskiptalífinu sem gagnrýna stóriðjustefnuna, hræsnina í múslimaleiðtoganum Sir Iqbal Sacranie, mæður, börn og lýsi og rokktónlist sem er álíka spennandi núorðið og endurskoðun eða fluguveiðar...

Fastir pennar
Fréttamynd

Prófkjör skerpa hugann

Hér er fjallað um hugmyndir um að gæða Klambratún lífi, frumvarp um dreifiveitur sem Mörður hefur lagt fram, rifjuð upp skýrsla um nýja skipun upplýsingamála í heiminum og loks er aðeins minnst á hnignun bílaiðnaðarins í Bandaríkjunum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Blýárin, Róska og Berlusconi

Maður þóttist alltaf vita að Róska hefði verið innundir hjá harðasta kjarna róttæklinganna á Ítalíu. Hér heima voru sögusagnir um að hún tengdist Rauðu herdeildunum, einhverju virkustu hryðjuverkasamtökum í vestrænu ríki. Úr þessu var ekki skorið í myndinni...

Fastir pennar
Fréttamynd

Álflokkarnir, Samfylkingin og sókn félagshyggjunnar

Hér er fjallað um stóriðjustefnuna og áhrif hennar á stjórnmálin fram að næstu þingkosningum, Framsóknarflokk sem vill ekki rugga bátnum, félagshyggjuna sem hefur gripið um sig í Sjálfstæðisflokknum og loks er spurt hvaða afstöðu Þorsteinn Pálsson tekur í Baugsmálum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Múgæsingar og myndir af spámanninum

Sýrland er lögregluríki sagði menningarritstjóri Jótlandspóstsins í sjónvarpsviðtali sem ég sá áðan. Hann hefur rétt fyrir sér þegar hann segir að mótmælin í Sýrlandi hefðu ekki orðið nema með leyfi yfirvaldanna þar. Í Sýrlandi er ekki heimilt að efna til mótmæla...

Fastir pennar
Fréttamynd

Þegar Íslendingar móðguðust við Svía

"Eftir þessi skrif fór dr. Helgi Briem á fund utanríkisráðherra Svíþjóðar, þar sem hann mótmælti blaðaskriftunum og vildi að ríkisstjórnin gerði eitthvað til þess að blöðin birtu leiðréttingu," skrifar Haukur Sigurjónsson sagnfræðingur...

Skoðun
Fréttamynd

Lifi málfrelsið – leyfum þeim að móðgast

Í raun er notkun þessa orðs, múslimar, vandræðaleg. Hér á landi myndu menn fyrst líta á sig sem Íslandinga, svo sem íbúa einhvers bæjarfélags, síðan kristna menn eða eitthvað annað. Við tölum ekki um alla íbúa hins kristna heims sem eitt mengi...

Fastir pennar
Fréttamynd

Handboltaangistin

Handboltamennirnir standa á einhvern hátt miklu nær hjarta okkar en moldríku fótboltamennirnir sem maður sér á Sýn. Þeir eru einhvern veginn miklu raunverulegri. Við munum aldrei komast á heimsmeistaramót í fótbolta. Það er fyrir fólk úr stórum borgum.

Fastir pennar
Fréttamynd

Stórt skúbb fyrir Reykjavík

Einhver mesti snillingurinn í arkitektúr og skipulagsfræðum verður Reykjavíkurborg til ráðgjafar um uppbyggingu í Vatnsmýri. Það er að sönnu mjög spennandi. Á sama tíma á að fara að reisa hið ógurlega hátæknisjúkrahús og Hringbrautarvitleysan heldur áfram með nýrri bensínstöð...

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjálfstæðismenn í hjarta sínu

Þorsteinn Pálsson, ritstjóri Fréttablaðsins – detta mér allar dauðar lýs úr höfði! Ég spurði í gær hvort þessi ákvörðun snerist um pólitík eða blaðamennsku – hallast nú fremur að því fyrrnefnda. Þorsteinn var óskýr minning í blaðamennsku þegar ég var að hefja störf...

Fastir pennar
Fréttamynd

Hættum griðkaupum

Breskir listamenn og grínarar, með Rowan Atkinson í fararbroddi, mótmæla nýjum lögum sem miðast við að banna andróður gegn trúarbrögðum. Samkvæmt lögunum hefði Salman Rushdie ekki getað gefið út Söngva Satans, Atkinson hefði ekki getað sýnt grínatrið...

Fastir pennar
Fréttamynd

Birtum fleiri skopmyndir

Einu viðbrögðin við mótmælum í múslimalöndum gegn teikningunum af Múhammeð spámanni sem birtust í Jótlandspóstinum er að birta fleiri myndir. Út um allt, í blöðum og á vefnum. Hræddir pólitíkusar og bisnessmenn vilja...

Fastir pennar
Fréttamynd

Sjálfstæðisflokkur flýgur hátt – Samfylking í vanda

Í skoðanakönnunum fyrir síðustu þingkosningar mældist Samfykingin oft á tíðum með meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn. Í kosningunum skildu einungis tvö prósentustig, Samfylkingin fékk meira fylgi en Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík norður. Samkvæmt nýrri könnun er munurinn tuttugu prósentustig...

Fastir pennar
Fréttamynd

Baby Mozart, Stroheim og Szabó

Hér er fjallað um Mið-Evrópumenn. Fyrstan skal frægan telja Austurríkismanninn Mozart, en líka landa hans Erich von Stroheim sem gerði hina furðulegu mynd Greed og svo ungverska kvikmyndaleikstjórann Iztván Szabó sem kyssti á hendur allra kvenna...

Fastir pennar
Fréttamynd

Nokkur atriði um tunguna

Í mér hefur alltaf blundað málfeigðarsinni, stundum vildi ég vera alveg laus við þetta tungumál sem er talað af nokkur hundruð þúsund hræðum á afskekktu og sjálfbirgingslegu eyland, íbúatölu smáborgar...

Fastir pennar
Fréttamynd

Þrjótur úr Bond-mynd

Rupert Murdoch er hrollvekjandi maður. Í raun ætti hann að leika illmennið í næstu James Bond mynd. Hún gæti þá endað með því að Bond lokaði óþverrablaðinu The Sun með tilheyrandi sprengingum og pomsarapomsi – tæki kannski Fox News með í leiðinni...

Fastir pennar
Fréttamynd

Sorpblöð og óvelkomin starfsemi

Í Bretlandi er sorpblaðamennskan hvað ruddalegust. Við höfum tvö nýleg dæmi, bæði úr sama blaði – News of the World. Það er almennt talið botninn. Annað er um landsliðsþjálfara Bretlands, Sven Göran Eriksson. Hann var leiddur í gildru...

Fastir pennar
Fréttamynd

Þegar ég elti William Hague

Það sem stóð upp úr var að Hague virtist ekkert þekkja til Davíðs Oddssonar, eða allavega gaf hann ekkert út á það. Ég tjáði honum að það væri miður – Oddsson væri einhver sigursælasti íhaldsmaður á Vesturlöndum...

Fastir pennar
Fréttamynd

Er sársaukinn söluvara?

"Aggressív fréttamennska er nauðsyn nútímaþjóðfélagi, en hún er vandasöm og krefst þekkingar. Hún snýst ekki um sársauka einkalífs eða um að niðurlægingu," skrifar Guðmundur Gunnarsson í hugvekju...

Skoðun
Fréttamynd

Plís, allt nema flís!

Hér er fjallað um prófkjör sem eru víða á döfinni vegna kosninganna í vor, úrslit prófkjörs Sjálfstæðisflokksins í Garðabæ, hlutafélagavæðingu RÚV og afstöðu stjórnarandstöðunnar til hennar og loks er aðeins vikið að hugmyndum um skólabúninga...

Fastir pennar
Fréttamynd

Um fordóma og fáfræði

Það er algengt mælskubragð núorðið að ásaka þá sem ekki eru sammála manni um fordóma. Þeir sem er núið slíkt um nasir verða yfirleitt kjaftstopp. Öllum finnst óþægilegt að fá á sig þennan stimpil. Biskupinn yfir Íslandi er sagður vera bæði fáfróður og fordómafullur...

Fastir pennar
Fréttamynd

Víst verður kosið um skipulag!

Skipulagsmál eru ekki einhverjar abstraksjónir, hugarleikfimi fyrir menningarvita sem koma alþýðufólki ekkert við, heldur fræðin um það hvernig við lifum í borgum. Mistök í skipulagi geta haft skelfilegar afleiðingar – mótað líf milljóna manna...

Fastir pennar
Fréttamynd

Eins og úr sjónum

Hér er vitnað í endurminningar bresks diplómata sem gefur óviðjafnanlega lýsingu á Íslendingi, sagt frá þemakvöldi um Ísland í danska sjónvarpinu sem var fullur af klisjum um álfa og vísað í skrif á bloggsíðu fyrrverandi blaðamanns á DV...

Fastir pennar
Fréttamynd

Of gott fyrir þessa þjóð?

Mér sýnist að Eiríkur Jónsson telji að blaðið hafi hvergi misstigið sig - enda er hann einn helsti hugmyndafræðingur þess. Eiríkur kvartar undan hræsni í umfjöllun um DV og varpar fram þeirri spurningu hvort blaðið sé "of gott" fyrir þessa þjóð?

Fastir pennar
Fréttamynd

DV, sannleikurinn og siðferðið

DV í síðustu birtingarmynd sinni hefur gengið miklu lengra en áður hefur verið gert í íslenskri blaðamennsku - og lengra en flest blöð úti í heimi. Sumt af því myndi varða við lög í nágrannalöndum - án þess að blaðamenn þar telji sig lifa undir áþján ritskoðunar...

Fastir pennar