Kjaramál

Einstæð þriggja barna móðir reynir að lifa af mánuð á lágmarkslaunum
Anna Lára Friðfinnsdóttir, starfsmaður á fjármálasviði WOW air, ætlar annað árið í röð að fylgjast vel með peningunum í janúar.

Sólveig Anna valin maður ársins af fréttastofunni
Sólveig Anna Jónsdóttir er valin maður ársins 2018 af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fyrir óvænta, einarða og hvassa verkalýðsbaráttu.

Ríkisráð kom saman á Bessastöðum
Staðan á vinnumarkaði verður eitt stærsta verkefni ríkisstjórnarinnar á nýju ári að sögn ráðherra. Tillögur að breytingum í þágu umferðaröryggis verða kynntar fljótlega á nýju ári. Venju samkvæmt á gamlársdag kom ríkisráð saman til fundar á Bessastöðum í morgun.

Laun verði að duga fyrir framfærslu
Forseti ASÍ segir markmið árið 2015 hafi verið að fólk gæti lifað á lægstu laununum, þeim markmiðum hafi ekki enn verið náð. Formaður Samtaka iðnaðarins, segir atvinnurekendur hafa staðiðíþeirri trú, í kjarasamningagerð 2015, að verið væri að nálgast norrænt samningalíkan til að koma á meiri stöðugleika í samfélaginu.

Segir samskipti við verkalýðshreyfinguna mikil og góð
Katrín Jakobsdóttir,forsætisráðherra er ósammála Styrmi Gunnarssyni fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins sem segir að VG hafi misst tengslin við Verkalýðshreyfinguna.

Styrmir segir „unga fólkið“ í ríkisstjórninni ekki vita hvað geti verið í vændum
Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins segir stjórnmálamenn ekki átta sig á undiröldu kjaramála í samfélaginu.

Ferlið hjá sáttasemjara hafið
Formaður Eflingar segist viss um að það hafi verið rétt ákvörðun að vísa deilunni til ríkissáttasemjara. Framkvæmdastjóri SA leggur áherslu á að samhliða haldi samningaviðræður við aðra aðila áfram.

Framsýn íhugar að skilja sig frá Starfsgreinasambandinu
Stéttarfélagið Framsýn hefur samþykkt að draga til baka samningsumboð Starfsgreinasambands Íslands fyrir sína hönd til baka, miði samningaviðræðum sambandsins við Samtök atvinnulífsins ekki áfram í byrjun næsta árs. Þetta kemur fram í tilkynningu félagsins sem barst fréttastofu nú í kvöld.

Leggja áherslu á að sett verði upp áætlun fyrir viðræðurnar
Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, býst ekki við löngum fundi hjá ríkissáttasemjara í dag.

Félögin þrjú gera kröfu um afturvirkni
Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness funda með SA í húsakynnum ríkissáttasemjara á morgun. Félögin slitu sig nýverið úr samfloti með Starfsgreinasambandinu. Formaður VLFA væntir ekki stórtíðinda af fundinum en félögin muni ganga hart eftir svörum frá SA.

Ummæli ársins: Klaustursmálið, drullusokkur og maðurinn sem gleypti Messi
Nokkur af eftirminnilegustu ummælum ársins 2018.

Segir Fréttablaðið „standa sig einna verst“ í umfjöllun um kjaramál
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir skrif Kristínar Þorsteinsdóttur útgefanda og fyrrverandi ritstjóra vera öfgafull níðskrif.

Segir SA ýkja kröfur verkalýðsfélaganna
Formaður VR býst við að fleiri verkalýðsfélög komi í samflot með Eflingu, VR og Verkalýðsfélagi Akraness sem vísuðu kjaradeilu sinni við samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara í dag.

Boðar deiluaðila á fund milli jóla og nýárs
Bryndís Hlöðversdóttir ríkissáttasemjari hefur boðað fulltrúa Erlingar, VR og Verkalýðsfélags Akraness á fund með Samtökum atvinnulífsins á milli jóla og nýárs, föstudaginn 28. desember.

Vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara
Stéttarfélögin VR, Efling og Verkalýðsfélag Akraness hafa tekið ákvörðun um að vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.

Framkvæmdastjóri SA segir fjölda við samningaborðið ekki breyta því sem er til skiptanna
Tvö fjölmennustu stéttarfélög landsins, Efling, VR og Verkalýðsfélag Akraness munu að öllum líkindum vísa kjaradeilu félaganna og Samtaka atvinnulífsins til ríkissáttasemjara á morgun.

Gulu vestin hennar Kolbrúnar
Kolbrún Bergþórsdóttir skrifar leiðara Fréttablaðsins síðasta mánudag og fjallar um gul vesti og kröfur VR vegna komandi kjarasamninga.

Útlit fyrir að nokkur félög vísi deilu til ríkissáttasemjara fyrir helgi
Efling og VR og jafnvel fleiri verkalýðsfélög munu vísa kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara fyrir jól, jafnvel í dag.

„SGS mun halda viðræðum áfram af krafti“
Starfsgreinasambandið hefur sent frá sér tilkynningu í kjölfar frétta af því að Efling og Verkalýðsfélag Akraness hafa ákveðið að draga samningsumboð sitt til SGS til baka.

Verkalýðsfélag Akraness slítur sig einnig frá SGS
Félagið fylgir þar með fordæmi Eflingar sem í gær ákvað að draga samningsumboð sitt til SGS einnig til baka.

Vonast til að félögin geti unnið saman þrátt fyrir niðurstöðuna
Samninganefnd Eflingar samþykkti í gær að draga samningsumboð sitt til Starfsgreinasambandsins (SGS) til baka.

Efling slítur sig frá SGS
Samninganefnd Eflingar hefur dregið samningsumboð sitt frá Starfsgreinasambandinu.

SA segir fullkomlega ótímabært að vísa kjaradeilu til ríkissáttasemjara
Það gæti dregið til tíðinda við samningaborð verkalýðshreyfingarinnar og Samtaka atvinnulífsins á fundi samninganefndar Eflingar sem hófst klukkan sex varðandi áframhaldandi samflot með öðrum félögum innan Starfsgreinasambandsins.

Úrslitafundur hjá Eflingu í kvöld varðandi samstarf verkalýðsfélaga
Vilji er til þess innan nokkurra félaga innan Starfsgreinasambandsins að segja sig frá samfloti innan þess og mynda nýja sameiginlega samninganefnd með VR.

BHM gagnrýnir Ásmund fyrir stöðuveitingar
BHM hvetur stjórnvöld til að fara að auglýsingaskyldu þegar ráðið er í störf hjá hinu opinbera.

Mikill verðmunur á jólamatnum samkvæmt könnun ASÍ
Að því er fram kemur í tilkynningu ASÍ var verðmunurinn mestur á algengum jólamat eins og til dæmis kjöti, gosi, jólaöli og konfekti.

Verðbólguvæntingar að aukast hjá stjórnendum stórfyrirtækja
Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækja landsins búast við aukinni verðbólgu næstu tólf mánuði. Hafa verðbólguvæntingar þeirra ekki verið meiri frá því í aðdraganda síðustu kjarasamninga.

Veigra sér við að fara til læknis vegna fjárskorts
Fjórðungur félagsmanna Einingar-Iðju hefur frestað læknisheimsókn vegna fjárhagserfiðleika síðustu tólf mánuði. Um fjórir af hverjum tíu hafa frestað að fara til tannlæknis.

Spá fækkun starfa í fyrsta sinn frá 2009
Stjórnendur 400 stærstu fyrirtækja landsins eru svartsýnir á stöðuna í atvinnulífinu samkvæmt nýrri könnun Gallup sem unnin er fyrir Samtök atvinnulífsins og Seðlabankann.

Skýrist á næstu dögum hvort samninganefnd SGS klofnar
Á formannafundi félaganna á föstudag vildu sjö félaganna vísa kjaradeilunni strax til Ríkissáttasemjara en ellefu félög vildu láta reyna lengur á viðræður við atvinnurekendur.