KA átti engin svör: „Allt í lagi, þá höldum við þessu áfram“ KA-menn virtust ekki eiga nein svör gegn Haukum á sunnudag þegar Haukar styrktu stöðu sína á toppi Olís-deildar karla í handbolta með 32-23 sigri. Einar Andri Einarsson rýndi í spilamennsku Hauka. 27.4.2021 09:30
Aðeins 33 ára en ráðinn þjálfari Bayern til næstu fimm ára Hinn 33 ára gamli Julian Nagelsmann hefur verið ráðinn þjálfari Bayern München frá og með 1. júlí. Nagelsmann skrifaði undir samning til fimm ára við sigursælasta félag Þýskalands. 27.4.2021 09:13
Settu reglu til að banna ofurdeildarlið Ítalska knattspyrnusambandið hefur samþykkt reglu sem kemur í veg fyrir að lið geti spilað í ítölsku A-deildinni samhliða því að spila í annarri keppni sem ekki er á vegum FIFA eða UEFA. 27.4.2021 08:00
Sældarlífinu lauk í New York og toppliðið tapaði aftur fyrir einu lakasta liðinu Devin Booker undi sér ekki hvíldar fyrr en hann hafði séð til þess að magnaðri níu leikja sigurgöngu New York Knicks lyki í nótt. 27.4.2021 07:31
NBA dagsins: Curry óður í apríl, Brooklyn vann stórleikinn og Boston hangir á brúninni Stephen Curry greip frákast á ögurstundu og hélt áfram að fara á kostum í NBA-deildinni í körfubolta í gær. Brooklyn Nets unnu stórleikinn við Phoenix Suns en Boston Celtics tapaði leik í harðri baráttu um öruggt sæti í úrslitakeppninni. Þetta og meira til í NBA dagsins hér á Vísi. 26.4.2021 15:01
„Viss um að Gróttustrákunum líður ekkert sérstaklega vel“ Þórsarar fengu mikið lof í Seinni bylgjunni í gærkvöld eftir sigurinn frækna gegn Val í Olís-deild karla í handbolta. Eftir sigurinn eygja Þórsarar svo sannarlega von um að halda sér í deildinni. 26.4.2021 14:01
„Þetta er fáránlegt prógramm“ „Þetta er mjög erfitt. Við fáum ekki eina einustu æfingu með allt liðið og erum þar fyrir utan með marga nýja leikmenn,“ segir Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari karla í handbolta, fyrir síðustu þrjá leiki Íslands í undankeppni EM. 26.4.2021 12:31
Lið Hlínar spilaði þrátt fyrir smit Hlín Eiríksdóttir og liðsfélagar hennar í Piteå spiluðu leik í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta þrátt fyrir að smit hafi greinst í leikmannahópnum. Fjórir leikmenn liðsins til viðbótar hafa nú greinst með kórónuveiruna. 26.4.2021 11:31
Þrjár goðsagnir Arsenal með Svíanum í kauptilrauninni Daniel Ek, hinn sænski eigandi Spotify, hefur fengið þrjár af þekktustu stjörnunum úr „hinu ósigrandi“ liði Arsenal til að taka þátt í kaupum á félaginu. 26.4.2021 11:00
Pepsi Max-spáin 2021: Belgísk áhrif á Brekkunni Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir KA 5. sæti Pepsi Max-deildarinnar í sumar. 26.4.2021 10:00