Seinni bylgjan: Var ÍBV sátt með tap í Krikanum? ÍBV tapaði með tveggja marka mun gegn FH í lokaumferð Olís-deildar karla. Það þýðir að liðin mætast á nýjan leik í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 29.5.2021 15:01
Rosengård með fullt hús stiga á toppnum eftir stórsigur | Sveindís Jane sneri aftur í tapi Þrjú Íslendingalið voru í eldlínunni í sænsku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu í dag. Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Rosengård unnu stórsigur á meðan Sveindís Jane Jónsdóttir sneri aftur eftir meiðsli í tapi Kristianstad. 29.5.2021 14:00
Má alveg velta fyrir sér hversu gáfuleg ákvörðun það var að láta hana sitja út af á þessum tímapunkti Valur vann Hauka í fyrsta leik úrslitaeinvígis Domino´s deildar kvenna á fimmtudagskvöld. Ákvörðun þjálfara Hauka að kippa Alyeshu Lovett af velli í síðari hálfleik vakti athygli Domino´s Körfuboltakvölds. 29.5.2021 13:31
Ederson stefnir á að taka víti ef þess þarf Brasilíski markvörðurinn Ederson stefnir á að taka vítaspyrnu ef leikur Manchester City og Chelsea í kvöld fer alla leið í vítaspyrnukeppni. 29.5.2021 13:00
Aron spilaði ekki er bikarinn fór á loft Barcelona fagnaði spænska meistaratitlinum í handbolta í dag. Liðið lagði Frigoriíficos Morrazo 35-23 áður en fagnaðarlætin gátu hafist. Aron Pálmarsson var ekki með Börsungum í dag. 29.5.2021 12:30
Jón Arnór um síðasta leik ferilsins: „Var þarna með félögunum þó ég hafi verið í öðrum búning“ Jón Arnór Stefánsson, einn albesti íþróttamaður Íslandssögunnar, hætti í körfubolta eftir tap Vals gegn KR í 8-liða úrslitum Domino´s deildar karla í gærkvöld. Hann ræddi við Körfuboltakvöld um leikinn, ferilinn og margt fleira að leik loknum. 29.5.2021 11:30
PSG vill hægri bakvörð Ítalíumeistaranna Franska knattspyrnufélagið París Saint-Germain leitar að hægri bakverði þessa dagana og virðist sem þeirra helsta skotmark sé Achraf Hakimi, hægri bakvörður Ítalíumeistara Inter Milan. 29.5.2021 10:30
Hawks tók forystuna, Tatum hélt Celtics á floti og stjörnuleikur Luka dugði ekki | Myndbönd Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í kvöld. Atlanta Hawks tók 2-1 forystu í einvígi sínu gegn New York Knicks, lokatölur 105-94. 29.5.2021 09:45
Inzaghi að taka við meisturum Inter | Allegri snýr aftur á gamlar slóðir Allt stefnir í að Simone Inzaghi sé að taka við Ítalíumeisturum Inter Mílan en Lazio tilkynnti fyrr í kvöld að Inzaghi hefði yfirgefið félagið. 28.5.2021 07:00
Dagskráin í dag: Úrslitaleikir í Garðabæ og að Hlíðarenda Tveir RISA leikir eru á dagskrá Stöð 2 Sport í dag. Um er að ræða oddaleiki í 8-liða úrslitum Domino´s deildar karla í körfubolta. 28.5.2021 06:00