Ragnar dregur sig líka úr landsliðshópnum Landsliðsmiðvörðurinn Ragnar Sigurðsson hefur dregið sig út úr landsliðshópi Íslands fyrir komandi leiki gegn Mexíkó, Færeyjum og Póllandi. 27.5.2021 23:47
Knicks banna áhorfandann sem hrækti á Trae Young Úrslitakeppnin í NBA-deildinni í körfubolta hefur farið af stað með látum. Áhorfendur eru mættir aftur á hliðarlínuna og hafa þeir heldur betur látið taka til sín. Sumir á jákvæðan hátt en aðrir á neikvæðan hátt. 27.5.2021 23:30
Sjáðu markið sem skaut liði Bjarka og Óttars upp í ítölsku úrvalsdeildina Venezia tryggði sér sæti í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, Serie A, í kvöld er liðið gerði 1-1 jafntefli við Cittadella í síðari leik liðanna í úrslitum umspilsins. Fyrri leiknum lauk með 1-0 sigri Venezia og liðið því komið upp í úrvalsdeildina á nýjan leik. 27.5.2021 22:30
Selfoss og Haukar með sigra í lokaumferðinni Lokaumferð Olís-deildar karla fór fram í kvöld. Selfoss vann fjögurra marka útisigur á Gróttu, 27-23, og Haukar unnu stórsigur á botnliði ÍR, 41-22. 27.5.2021 21:50
Viktor Gísli og félagar úr leik er Álaborg tryggði sér sæti í úrslitum Arnór Atlason, aðstoðarþjálfari Álaborgar, mun sjá lið sitt leika til úrslita í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta. Liðið lagði Viktor Gísla Hallgrímsson og félaga í GOG í síðari leik liðanna í undanúrslitum í kvöld. 27.5.2021 20:36
ÍBV stal þremur stigum undir lokin í Keflavík Eyjakonur lögðu Keflvíkinga 2-1 á útivelli í leik liðanna í Pepsi Max deild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Sigurmarkið kom þegar ein mínúta var eftir af venjulegum leiktíma. 27.5.2021 19:30
Ómar Ingi magnaður í liði Magdeburg | Jafnt hjá Alexander og Ými Ómar Ingi Magnússon átti ótrúlegan leik er Magdeburg vann Essen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Þá léku Bjarki Már Elísson, Alexander Petersson, Ýmir Örn Gíslason og Arnar Freyr Arnarsson einnig með sínum liðum. 27.5.2021 19:11
Óðinn Þór skoraði fjögur en það dugði ekki til Óðinn Þór Ríkharðsson átti fínan leik í tapi Holstebro gegn Bjerringbro-Silkeborg í undanúrslitum dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í dag. Lokatölur 30-25 Bjerringbro-Silkeborg í vil sem þýðir að lið Óðins leikur um bronsið. 27.5.2021 18:26
Alfons og félagar enn taplausir á toppnum Það var líf og fjör í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Alfons Sampsted og félagar í meistaraliði Bodø/Glimt eru enn taplausir á toppi deildarinnar. 27.5.2021 18:00
Lof og last: Elfar, Sævar, Jason, föst leikatriði Keflavíkur, væl Fylkis og Meistaravellir Það er leikið ört í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu og lauk 6. umferð í gærkvöld. Umferðin var leikin á tveimur dögum og hefur mikið gengið á, hér að neðan má sjá hvað á skilið lof og hvað á skilið last. 26.5.2021 11:01