Þarf að framreiða fimm kokteila á sjö mínútum Síðar í dag kemur í ljós hvort að Grétar Matthíasson kemst í lokaúrslit á Heimsmeistaramóti barþjóna sem nú fer fram í Róm. Grétar skráði sig til keppni með kokteil sinn Candied Lemonade. Þrír komast í lokaúrslit sem fara fram á morgun. 30.11.2023 14:20
Loka hluta af húsnæði Reykjalundar: 32 starfsmenn missa vinnuaðstöðu Endurhæfingarmiðstöðin Reykjalundur í Mosfellsbæ hyggst loka hluta af húsnæði sínu en komið hefur í ljós að nokkrar af byggingum heilbrigðisstofnunarinnar eru í bágu ásigkomulagi. Úttekt verkfræðistofu sýnir að óheilnæmt sé fyrir sjúklinga og starfsfólk að dvelja í húsnæðinu. 30.11.2023 14:15
Segja gloppu í kerfinu Jóhannes Karl Sveinsson, lögmaður Eddu Bjarkar Arnardóttur, skilaði í gærkvöldi greinargerð til Landsréttar en þangað áfrýjaði hann niðurstöðu héraðsdóms um gæsluvarðhald Eddu Bjarkar hér á landi. Staðfesti Landsréttur úrskurðinn verður hún flutt til Noregs innan fimm daga samkvæmt lögum. 30.11.2023 13:00
Lögregla skoðar að senda fulltrúa út Lögreglan á von á skýrslu frá lögreglunni í Dóminíska lýðveldinu í næstu viku er varðar rannsókn þeirra á hvarfi Magnúsar Kristins Magnússonar í Dóminíska lýðveldinu í september á þessu ári. Ekkert hefur heyrst frá Magnúsi síðan í september. 30.11.2023 09:10
Unnið að lausn hjá lífeyrissjóðum fyrir Grindvíkinga Landssamtök lífeyrissjóða segjast ekki hafa verið höfð með í ráðum þegar kynnt var heildstæð lausn frá lánastofnunum til Grindvíkinga. Unnið sé að lausn með aðkomu lífeyrissjóðanna sem sagt er að þurfi að rúmast innan ramma laga. 30.11.2023 08:52
„Ég get ekki lifað án fjölskyldu minnar“ Hussein Hussein óttast hvað verði um hann þegar fjölskyldan hans fer til Grikklands á laugardag. Hann er í hjólastól og þarf mikla aðstoð við dagleg verk. Honum hefur ekki verið tryggð fullnægjandi aðstoð við brottför fjölskyldu sinnar sem hingað til hefur séð um alla aðstoð við hann. 29.11.2023 19:57
Ekki lengur bara blá augu í Myndinni hennar Lísu Rithöfundurinn Olga Guðrún Árnadóttir hefur breytt einni línu í ljóðinu Myndin hennar Lísu svo lagið faðmi betur fjölbreytileika samfélagsins. Lagið er samið fyrir 46 árum og samfélagið hefur tekið miklum breytingum síðan þá segir Olga. 29.11.2023 15:32
Höfðu ekki orku í að halda áfram fyrr en í upphafi árs Þingkona Flokks fólksins og eiginmaður hennar hafa stefnt sýslumanninum vegna fyrndra vaxta sem þau þurftu að greiða í tengslum við uppboð á heimili þeirra árið 2017. Málið á uppruna sinn að rekja til Hrunsins árið 2008. Ásthildur Lóa segir málið mikið réttlætismál og að sýslumaður hafi brotið á jafnræði. Það hafi ekki allir greitt þessa fyrndu vexti. 29.11.2023 08:54
Reglur um farsímanotkun barna í nær öllum grunnskólum Meirihluti skóla hefur sett reglur um farsímanotkun barna. Oftast er hún háð takmörkunum og jafnvel staðsetningu. Algengara er að eldri börn megi vera með síma en þau yngri. Stundum þurfa börnin símann til að komast í almenningssamgöngur og fá því að hafa hann í töskunni. 28.11.2023 15:56
Flutningi Hussein fjölskyldunnar frestað til laugardags Fjölskylda Hussein Hussein flýgur til Grikklands á laugardag. Þeim hafði áður verið tilkynnt að þau myndu fara í dag. Hussein verður einn eftir á landinu en það er samkvæmt ákvörðun Mannréttindadómstóls Evrópu. Landsréttur á enn eftir að úrskurða í máli fjölskyldunnar. 28.11.2023 14:34