Beit lögreglumann sem stoppaði hann fyrir að vera á nöglum Ökumaður bíls sem lögreglumenn stöðvuðu í nótt fyrir að vera á nagladekkjum réðst á annan lögreglumanninn og beit hann. Grunur leikur á að maðurinn hafi ekið undir áhrifum fíkniefna. 15.6.2017 07:20
SÞ: Gífurlegt mannfall í loftárásum Bandaríkjanna og bandamanna í Raqqa Hundruð óbreyttra borgara eru talin hafa fallið í orrustunni um Raqqa í Sýrlandi frá því í mars. Stríðsglæparannsakandi SÞ segir gífurlegt mannfall hafa hlotist af loftárásum Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra. 14.6.2017 14:54
Fella einnig niður reikigjöld á frelsisnotendur Símanotendur með frelsisnúmer hjá Símanum og Vodafone munu finna fyrir afnámi reikigjalda á morgun eins og aðrir viðskiptavinir fyrirtækjanna. 14.6.2017 14:24
Trump blokkar hryllingssagnahöfundinn Stephen King á Twitter Stephen King hefur gagnrýnt Donald Trump forseta á Twitter síðustu mánuði. Trump virðist nú hafa blokkað hryllingssagnahöfundinn. 14.6.2017 10:06
Stýrivextir lækka um 0,25 prósentustig Seðlabankinn hefur lækkað stýrivexti um fjórðung úr prósentustigi. Fyrir höfðu stýrivextirnir ekki verið lægri í tvö ár. 14.6.2017 09:09
Varað við snörpum vindhviðum á Suðurlandi í kvöld Snörpum vindhviðum undir fjöllum syðst á landinu er spáð í kvöld. Þær geta verið varasamar ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. 14.6.2017 08:53
Koma fyrir salernum fyrir ferðamenn á 15 stöðum Vegagerðin vinnur að því að koma fyrir salernum fyrir ferðamenn á fimmtán stöðum á landinu. Stjórnstöð ferðamála telur það forgangsmál að bæta aðgengi að salernum á landsbyggðinni. 14.6.2017 08:15
Hundruð þingmanna stefna Trump vegna erlendra greiðslna Demókratar ætla að höfða mál gegn Bandaríkjaforseta vegna meintra stjórnarskrárbrota sem hann á að hafa framið með því að gefa viðskiptaveldi sitt ekki upp á bátinn. 14.6.2017 07:52
Reikigjöld ættu að falla niður hjá íslensku símafyrirtækjunum á fimmtudag Reikigjöld á farsímaþjónustu verða felld niður í Evrópu á fimmtudag og tekur reglugerð þess efnis þá einnig gildi hér á landi samkvæmt upplýsingum frá Hrafnkeli Viðari Gíslasyni forstjóra Póst-og fjarskiptastofnunar. 13.6.2017 18:00
Loftslagslögsókn barna gegn Trump lifir enn Hópar barna hefur höfðað mál gegn ríkisstjórn Donalds Trump. Þau telja alríkisstjórnina brjóta gegn rétti sínum með því að stuðla að framleiðslu jarðefnaeldsneytis og losunar gróðurhúsalofttegunda sem skaða loftslag jarðar. 13.6.2017 14:56