NBC ýfir upp sár foreldra barnanna í Sandy Hook Foreldar barna sem voru myrt í Sandy Hook eru ósátt við að NBC ætli að birta langt viðtal við alræmdan samsæriskenningasmið sem segir bandarísk stjórnvöld hafa sett fjöldamorðið á svið. Fylgjendur hans hafa áreitt foreldra myrtra barna undanfarin ár. 13.6.2017 11:15
Dómsmálaráðherra Trump ber vitni í dag Ekki er búist við því að Jeff Sessions, dómsmálaráðherra, greini frá samtölum sínum við Donald Trump Bandaríkjaforseta þegar hann kemur fyrir leyniþjónustunefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í dag. 13.6.2017 10:11
Keflavíkurflugvöllur í 47. sæti yfir bestu flugvelli heims Kastrup í Kaupmannahöfn og Vantaa í Helsinki eru á meðal tíu bestu flugvalla heims samkvæmt nýrri könnun. Keflavíkurflugvöllur er í 47. sæti af 76 flugvöllum sem voru metnir eftir stundvísi, gæðum og þjónustu. 13.6.2017 09:11
Tugir fórust í skriðum í Bangladess Einar mestu monsúnrigningar síðari ára hafa valdið skriðum í suðausturhluta Bangladess sem að minnsta kosti fjörutíu manns hafa farist í. 13.6.2017 08:52
Trump gæti rekið rannsakanda Rússatengsla Orðrómar ganga nú fjöllunum hærra að Donald Trump sé að íhuga að reka Robert Mueller, sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins, sem rannsakar meint tengsl samstarfsmanna foretans við Rússa. 13.6.2017 08:01
Forsetinn sigraði hæsta tind landsins Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, gerði sér lítið fyrir og komst á topp Hvannadalshnjúks, hæsta tind landsins, í nótt. 13.6.2017 07:33
Brutust inn hjá Eimskipum við Sundahöfn Fimm menn sem grunaðir eru um húsbrot voru handteknir á athafnasvæði Eimskips við Sundahöfn í nótt. Þeir voru vistaðir í fangageymslu lögreglunnar í nótt vegna rannsóknar innbrotsins. 13.6.2017 07:24
Rússar sagðir geta hakkað raforkukerfi Spilliforrit sem rússneskir hakkarar beittu gegn Úkraínu í desember er sagt geta valdið rafmagnsleysi í Bandaríkjunum með nokkrum breytingum. 12.6.2017 14:20
Trump stefnt fyrir dómstólum vegna spillingar Forsetinn er sakaður um meiriháttar brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar sem banna embættismönnum að taka við gjöfum eða greiðslum frá erlendum ríkiserindrekum í stefnu dómsmálaráðherra Maryland-ríkis og Columbia-svæðis. 12.6.2017 13:37
Sigmundur Davíð segir vogunarsjóðina sigurvegara kosninganna Fyrrverandi forsætisráðherra fullyrðir að erlendir vogunarsjóðir og fjármálakerfið hafi unnið kosningarnar síðasta haust og sakar núverandi ríkisstjórn um u-beygju gagnvart sjóðunum í aðsendri grein í Morgunblaðinu. 12.6.2017 10:18