Sagðist aka á eðlilegum evrópskum hraða Þegar erlendur ökumaður hópferðabifreiðar var stöðvaður á Suðurlandsvegi á hátt í sextíu kílómetra meiri hraða á klukkustund en leyfilegur hámarkshraði sagði hann lögreglu að það væri eðlilegur hraði í Evrópu. 16.6.2017 08:29
Viðskipti tengdasonar Trump til rannsóknar Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins rannsakar nú viðskipti og fjármál Jareds Kushner, tengdasonar og eins helsta ráðgjafa Donalds Trump. Það er liður í rannsókninni á íhlutun Rússa í forsetakosningunum og mögulegu samráði þeirra við framboð Trump. 16.6.2017 07:57
Trump grípur enn til gervifréttavarnarinnar Bandaríkjaforseti segir frétt Washington Post um að hann sé til rannsóknar vegna þess að hann kunni að hafa hindrað framgang réttvísinnar sé "gervifrétt“. Reuters hefur hins vegar fengið aðra staðfestingu á frétt blaðsins. 15.6.2017 14:31
Mældu gríðarlega bráðnun viðkvæmrar íshellu Svæði sem er tæplega átta sinnum stærra en Ísland að flatarmáli bráðnaði síðasta sumar á viðkvæmri hafíshellu við Suðurskautslandið. 15.6.2017 13:50
Kolaframleiðsla hefur aldrei dregist meira saman Eftirspurn eftir kolum dróst saman í heiminum á síðasta ári eftir vaxtartímabil undanfarinn áratug. Mengandi kol hafa orðið undir í samkeppni við hreinni orkugjafa. 15.6.2017 11:46
Ferðamaður frá Íslandi gripinn með uppstoppaðan lunda í Bandaríkjunum Tollayfirvöld á Baltimore-flugvelli gerðu uppstoppaðan lunda upptækan sem ferðamaður sem kom frá Íslandi flutti með sér. Bannað er að flytja inn farfugla til Bandaríkjanna. 15.6.2017 11:18
Repúblikanar hafna því að Trump hafi hindrað framgang réttvísinnar Formaður landsnefndar Repúblikanaflokksins sakar sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins um "staðlausar ásakanir“ um að Donald Trump sé til rannsóknar fyrir hindrun á framgangi réttvísinnar. Repúblikanar telja að eini glæpurinn sem hefur verið framinn séu "ólöglegir lekar“. 15.6.2017 10:45
Birkifrjóið að fjara út en grasið að taka við Lítið hefur verið um frjókorn í lofti í borginni síðustu vikuna en birkifrjótímanum er að ljúka. Grasið er hins vegar að taka við og frjótímabil þess gæti varað fram í september. 15.6.2017 09:30
Kviðdómendur Cosby sitja enn á rökstólum Mikið álag hefur verið á kviðdómendum í kynferðisbrotamálinu gegn Bill Cosby. Þeir hafa ráðið ráðum sínum í yfir tuttugu tíma og hafa meðal annars fengið að hlusta aftur á lykilframburð í málinu. 15.6.2017 09:05
Vitni að skotárásinni á þingmenn birtir myndband Yfir fimmtíu skot heyrast á myndbandi frá vitni að skotárásinni á bandaríska þingmenn sem fjölmiðlar hafa birt. Sex eru sagðir særðir, þar á meðal þingflokksformaður repúblikana sem er talinn í lífshættu. 15.6.2017 07:46