Erlendur ferðamaður lést í Hljóðaklettum Erlendur ferðamaður féll til bana fram af hamrabrún í Hljóðaklettum í dag. Lögreglan á Norðurlandi eystra segir að nánari tildrög slyssins liggi ekki fyrir. Maðurinn féll niður um fimmtán til tuttugu metra. 7.7.2017 19:30
Pútín neitaði að hafa hakkað kosningarnar í Bandaríkjunum Bandaríkjastjórn og Rússar einbeita sér að því að horfa fram á veginn eftir ásakanir um afskipti þeirra síðarnefndu af forsetakosningunum í Bandaríkjunum í fyrra. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir að Trump og Pútín hafi átt "kröftugar“ umræður um tölvuárásir Rússa á fundi þeirra í dag. 7.7.2017 18:48
Salvör Nordal skipuð umboðsmaður barna Forsætisráðherra hefur skipað Salvöru Nordal, heimspeking, í embætti umboðsmanns barna til fimm ára. Salvör hefur verið forstöðumaður Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands og lektor í heimspeki. 7.7.2017 17:25
G-20: Tugir lögreglumanna sárir eftir mótmælin í Hamborg Lögreglan í Hamborg segir að tæplega 75 lögreglumenn séu sárir eftir átök við mótmælendur í aðdraganda leiðtogafundar G-20-ríkjanna í borginni. 6.7.2017 23:37
Réttað aftur yfir Bill Cosby í nóvember Dómari í máli Bill Cosby tilkynnti í dag að réttað yrði aftur yfir honum í nóvember. Fyrri réttarhöld yfir gamanleikaranum voru ómerkt í síðasta mánuði. 6.7.2017 23:10
Beraði sig við lögreglumenn og sagði þeim að blása Þegar lögreglumenn á norðvesturhluta Spánar ætluðu að láta ölvaðan bifhjólamann blása í áfengismæli beraði hann á sér kynfæri og sagði þeim að „blása hérna“. Maðurinn hefur verið dæmdur í níu mánaða fangelsi. 6.7.2017 22:18
Blair kom ekki hreint fram um Íraksstríðið Höfundur opinberrar skýrslu um þátt Breta í Íraksstríðinu segir að Tony Blair, þáverandi forsætisráðherra Bretlands, hafi ekki komið hreint fram við þjóðina um þær ákvarðanir sem hann tók. Þetta er í fyrsta skipti sem hann tjáir sig opinberlega um efni skýrslunnar sem kom út fyrir ári. 6.7.2017 21:14
G20-fundurinn: Óeirðir í Hamborg Óeirðir brutust út í mótmælagöngu gegn G20-fundinum í Hamborg í dag. Að minnsta kosti einn er sagður alvarlega slasaður eftir átök mótmælenda og lögreglumanna. 6.7.2017 19:40
Microsoft segir upp þúsundum starfsmanna Sölumenn Microsoft, aðallega utan Bandaríkjanna, byrjuðu að fá uppsagnarbréf í hendur í dag. Hugbúnaðarrisinn stefnir að því að breyta því hvernig það selur vörur sínar. 6.7.2017 18:46
Trump greip í tómt þegar hann ætlaði að taka í hönd forsetafrúarinnar Handabönd halda áfram að valda Donald Trump erfiðleikum. Hann greip í tómt þegar hann hugðist heilsa forsetafrú Póllands í opinberri heimsókn í landinu í dag. 6.7.2017 18:05